Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Page 6
6 MÁNUDAGUR 15. NÚVEMBER 2004
Fréttir DV
Hani truflar
umferð
Umferðaröngþveiti varð
á Hverfisgötu í Hafnarfirði
um klukkan þrjú á laugar-
daginn. Tveir hanar og
nokkrar hænur sluppu úr
litlu hænsnabúi sem fjöl-
skylda á Hverfisgötunni
heldur í garðinum sínum.
Auðveldlega gekk að koma
hænunum af götunni en
stór hani neitaði að hreyfa
sig um set. Á endanum
tókst þó að leysa málið þar
sem eigendur hanans náðu
í hann og settu aftur í búið.
Höfðu reiðir bílstjórar það
á orði að svona lagað gæti
bara gerst í Hafnarfirði.
Gunnarvíkur
fyrir Sigurlín
Gunnar örlygs-
son, þingmaður
Frjálslynda flokks-
ins, hefur verið í
launalausu fríi und-
anfarnar vikur.
Hann segist taka sér
um mánaðarfrí á
haustin og vorin til
að Sigurlín Margrét Sigurð-
ardóttir varaþingmaður
komist að. Sigríður Mar-
grét er heyrnarlaus og segir
Gunnar það mikilvægt að
hennar skoðanir fái að
njóta sín á þingi. Gunnar
mun snúa aftur á þing á
þriðjudaginn og vinna að
frumvörpum sínum um
réttindi gjaldþrota einstak-
linga og forsjárlausra
feðra.
Davíð í Gísla
Marteini
Davíð var alveg frábær og ég
hafði mjög gaman afhonum.
Hann var mjúkur, skemmtileg-
ur, aflslappaður og hlýr eins
og ég þekki hann reyndar.
Davíð er mikill sögumaður og
kann þá list vel enda held ég
að fólk hafi haft mjög gaman
afDavíð en hann kom mér
ekki á óvart.
Hann segir / Hún segir
Var hann ekki bara ágætur?
Hann kom mér ekki á óvart
þvl við þingmenn höfum oft
orðið vör við þennan eðlisþátt
I honum. Hann geturmjög
auðveldlega brugðið á leik og
verið gamansamur og þarna
sýndi hann þá hlið á sér. I
Davíð hefur ekki verið ein
tepra en það vita atiirsem
hafa unnið með honum.
Kolbrún Halldórsdóttir,
Alþingismaður Vinstri grænna.
Guðmundur Steindórsson var lögreglumaður í 27 ár. Hann slasaðist fyrir fimm
árum og hefur verið öryrki síðan. Síðan þá hafa hlaðist upp skuldir. Hann er æfur
yfir aðförinni gegn sér á meðan hann gat ekki unnið.
Fyrrum lögreglumaöur
gerður gjaldþruta
vegna örorku
„Ég fæ hvergi fyrírgreiðslu og
er alls staðar skráður. Þetta
er aftaka, en þó lifandi."
Guðmundur Steindórsson, fyrrverandi lögreglumaður á Sel-
fossi, á í baráttu við sýslumann sinn sem hann segir siðlausan
fyrir að gera hann gjaldþrota.
„Ég skulda gjöld frá árinu 1999
þegar ég veiktist. Ég hef ekki getað
borgað þau gjöld sem á mig voru
lögð meðan ég var óvinnufær,“ segir
Guðmundur Steindórsson, sem
lenti í ótrúlegu slysi nokkru eftir að
hann hætti sem lögreglumaður. „Ég
var að vinna á gröfu uppi í Lands-
sveit. Ég stóð uppi á beltinu á gröf-
unni og var að athuga olíuna þegar
ég fæ á mig vindhviðu. Ég kastaðist
upp í loftið og lenti á bakinu á
malarplani. Ég lenti á grjóthnullingi
og fékJc svo mikið högg á hryggjalið-
inn að þeir stækkuðu og klemmdu
mænuna. Ég þurfti að fara í upp-
skurð vegna þess." Guðmundur var
óvinnufær en gafst þó ekki upp. „Ég
fór svo hrikalega illa fyrst þegar ég
veiktist eftir slysið. Ég hefði aldrei
trúað því að ég gæti ekki lyft hend-
inni upp til að drekka úr mjólkur-
glasi. Ég slasaðist 1999 og út frá því
var ég lamaður öðru megin og þurfti
að fara í mikla aðgerð þannig að tvö
stykki voru höggvin úr hryggjarlið-
unum til að losa upp mænuna. Síð-
an náðist ég upp aftur með mikilli
þjálfun. En 2001 veiktist ég aftur og
fór inn á spítala. Þá þurfti að skipta
um fjórar æðar og það náðist að
endurvekja annað lungað. Þá var all-
ur þróttur búinn," segir hann.
Skuldir hlóðust upp
Á meðan margþættum veikind-
um Guðmundar stóð hlóðust skuld-
irnar upp af fyrirtæki sem hann haf-
ði stofnað utan um vörubílaakstur
sinn. „Ég var aldrei í vanskilum
áður. Nú skulda ég í kringum fjórar
milljónir í gjöld með vöxtum. Hvað á
maður að gera? Maður getur ekkert
gert. Ég fæ hvergi fyrirgreiðslu og er
alls staðar skráður. Þetta er aftaka,
en þó lifandi," segir hann, og furðar
sig á því að gera eigi hann gjald-
þrota. Hann hefur mætt fyrir Hér-
aðsdóm Suðurlands einu sinni.
„Menn máttu biðja um frest eða
halda áfram með málið. Niðurstað-
an var sú að ég hafði ekkert fram að
færa. Ég gat ekki borgað neitt og því
varð bara að halda áfram með mál-
ið. Nú er búið að loka öllum reikn-
ingunum mínum, samt hef ég ekki
verið boðaður í fyrirtöku fyrir gjald-
þrot. En ég fékk leyfi til að opna einn
reikning þar sem ég get fengið út-
borgaðar örorkubæturnar," segir
hann.
Ráðist á liggjandi mann
Guðmundur er orðinn 64 ára
gamall og sér ekki fram á að geta
borgað þau gjöld sem féllu á hann
þegar hann gat ekki unnið. Hann
hefur farið með mál sitt til umboðs-
manns alþingis. Svo virðist nefni-
lega sem Guðmundur hafi ekki feng-
ið niðurfellt gjöld í þeim mæli sem
vera ber þegar veikindi hamla fólki
allri sjálfsbjörg. „Ábyrgðin liggur
náttúrulega hjá mér að hafa ekki
getað borgað þessar skuldir. Fólk er
ábyrgt fyrir sínum skuldum. En ég
var margbúinn að skrifa ríkisskatt-
stjóra, síðan skrifaði ég skattstjóran-
um á Hellu bréf. Ég fékk 60 þúsund í
niðurfelld gjöld, sem var algert
brotabrot. Samkvæmt skattalögum
getur fólk sótt um að fá niðurfellingu
á gjöldum og sköttum ef það veikist
eða verður fyrir slysi. Það er almennt
litið á það hér á Selfossi að þetta
dæmi sé ákaflega lítilmannlegt. Það
er verið að ráðast á liggjandi mann."
jontrausti@dv.is
Guðmundur Steindórsson Erf gjald-
þrotameðferð vegna þess að hann varð
veikur og gat ekki unnið.
DV-mynd Valdimar Bragason/Dagskráin
I ^ 1 1 T ..
6 l
Einn vann 37 milljónir í Lottó - vinningsmiði keyptur hjá Shell á Akranesi
Inga vill að lottókóngur bjóði henni til útlanda
„Við rákum upp stríðsöskur þeg-
ar við komum á vaktina og upp-
götvuðum að við hefðum selt vinn-
ingsmiðann. Það var kominn tími á
þetta því við seldum síðast góðan
miða árið 1996 en þá var vinningur-
inn 10 milljónir," segir Inga Lilja
Sigmarsdóttir, vaktstjóri í söluskála
Skeljungs á Akranesi.
Einn var með allar tölurnar rétt-
ar í lottói helgarinnar og fær í sinn
hlut 37 milljónir króna. Samkvæmt
upplýsingum íslenskrar getspár var
vinningsmiðinn keyptur hjá Skelj-
ungi síðastliðinn miðvikudag, á
milli klukkan 14 og 15, og er um að
ræða tíu raða
sjálfsvalsmiða
sem kostar 750
krónur. „Vinn-
ingshafinn hefur
ekki gefið sig
fram. Það er al-
gengt að fólk taki
nokkra daga í að
jafna sig áður en Bergsveinn
það hefur sam- Sampstedhjá
band," sagði Lottó Vinningshaf-
Bergsveinn Samp- ^nhafðiekkigefið
sted, fram- ^framigær.
kvæmdastjóri íslenskrar getspár, í
samtali við DV í gær.
Skaginn Hinn heppni keypti miða hjá Skelj-
ungi á Akranesi milii kl. 2 og 3 á miðvikudag.
Inga Lilja segir ómögulegt að
átta sig á hver hinn heppni sé. „Við
seldum gríðarlega marga miða
þessa vikuna og sumir komu meira
að segja nokkrum sinnum til að
kaupa miða. Ég spyr alla sem koma
til okkar í dag og er auðvitað að
bíða eftir að vera boðið til útlanda,"
segir Inga Lilja sem sjálf gleymdi að
lotta í öllum hamaganginum á
laugardag. „Það er betra að einhver
annar njóti þessa, ég hef það mjög
gott sjálf."
Vinningstölurnar voru 6, 9, 20,
26 og 35. Bónustalan var 7 og fengu
sex manns 4 réttar tölur auk bónus-
tölunnar. Það gefur 170 þúsund
krónur í aðra hönd. Potturinn um
helgina er einn sá stærsti í sögu
lottósins - þ.e. sem fellur einum að-
ila í skaut.