Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Side 13
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 13
Kurteis þjófur
Kona í HoUandi kom
heim úr búðarferð og
hitti þá kurteisasta þjóf í
heimi í íbúð sinni. Hinn
18 ára gamli þjófur hafði
farið úr skónum við
dymar og þegar konan
kom inn á heimili sitt í
Utrecht tók hann í hendi
hennar og kynnti sig.
Sagðist hafa ætlað upp á
þak að ná í fótbolta, fór í
skóna og yfirgaf íbúðina.
Konan hringdi í lögregl-
una sem náði þjófnum á
hjóli skammt frá. Engu
mun hafa verið stolið en
þjófúrinn var eftirlýstur
fyrir önnur innbrot.
Rómeó rekinn
Miðaldra Rómeó hefur
verið rekinn af stefriumóta-
síðu á netinu eftir að hann
svaf hjá fleiri en 100 kon-
um. Fyrrverandi kolanámu-
maðurinn Clive Worth, 55
ára, fór á 119 stefnumót á
fimm árum og endaði í
rúminu með flestum kon-
unum að sögn breska
blaðsins Daily Mirror.
Stefnumótasíðan
DatingDirect.com ákvað að
taka hann út af síðunni
vegna „skorts á skuldbind-
ingu.“ Clive sem borgaði 85
pund á ári fyrir að vera með
er óhress. „Eg er niðurbrot-
inn maður og ég hef
ekki gert neitt
af mér. Ég hef
bara ekki hitt
réttu konuna
ennþá," segir
hann.
Meðlimir í kafaraklúbbi í Ástralíu
Settu heimsmet í að
strauja neðansjávar
Ástralskur köfunarklúbbur segir
að félagar í hópnum hafi sett heims-
met í áhættuíþróttinni að strauja
neðansjávar. Alls tóku 43 meðlimir í
Bay City Scuba Diving klúbbnum
þátt í metinu þegar þeir straujuðu föt
á 10 feta dýpi í Port Philip flóanum.
Alan Igoe talsmaður klúbbsins
segir að þeir hafi notað köld óraf-
mögnuð straujám og f leiðinni hafi
þeir safnað 250 pundum til góðgerð-
armála. „Við reynum ailtaf að gera
eitthvað sérstakt eftir vetrarhléið og
hugmyndin um heimsmetið varð
ofan á," segir Igoe.
Extremeironing.com hefur stað-
fest að hinir áströlsku kafarar hafi
náð að bæta fyrra met sextán manna
hóps neðansjávarstraujara frá Nýja
Sjálandi. íþrótt þessi var fundin upp
af þýska straujaranum Iron Lung
sem stundaði hana fyrst í sjónum
undan ströndum Mallorca árið
2001.
Ef ákæruvaldið í New York nær fram vilja sínum er mafíu-
foringinn Joseph Massino, höfuð Bonanno-hölskyldunnar,
dauður maður. Massino hefur þegar verið dæmdur til lífstíð-
arfangelsis án möguleika á náðun fyrir sjö morð. En áttunda
morðið getur komið honum á „dauðaganginn“.
Vilja dauöarelsingu
yiir mafíuforingja
Ef ákæruvaldið í New York nær fram vilja sínum er mafíuforinginn
Joseph Massino, höfuð Bonanna-fjölskyldunnar, dauðans matur.
John Ashcroft, fráfarandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hef-
ur gefið saksóknurum í Brooklyn grænt ljós á að fara fram á dauð-
arefsingu yfir Massino fyrir morð á mafíubófa árið 1999.
Massino, sem orðinn er 61 árs hef-
ur þegar verið dæmdur í lífstíðarfang-
elsi fyrir sjö önnur morð. Hið áttímda
gæti komið honum á „dauðaganginn"
en það yrði þá í fyrsta sinn í sögu
Bandaríkjanna sem háttsettur mafiu-
foringi eða „capo“ yrði dæmdur til
dauða.
Það er morðið á Sikileyjar-
manninnum Gerlando Sciascia sem
setur Massino í þessa stöðu þar sem
það var framið eftir 1988 þegar lögum
um dauðarefsingar var breytt í New
York-fylki. Massino gaf skipunina um
morðið með orðunum „George verður
að fara" á ítölsku veitingahúsi á Long
Island. Fyrrverandi samstarfsmaður
Massino og mágur, Salvatore Vitale,
hefur borið vitni um þetta en Vitale var
áður einn af nánustu samstarfsmönn-
um Massino.
Blóðugt morð
Sciascia stjómaði eiturlyfjavið-
skiptum Bonanno-fjölskyldunnar í
Kanada og aðstoðaði Massino við
drápið á þremur mafiubófúm, sem
vom keppinautar þeirra, árið 1981.
„Glæpur" Sciascia
fólst í því að kvarta
við Massino yfir eit-
urlyfjanotkun ann-
ars meðlims innan
íjölskyldunnar.
Massino fór til
Mexíkó áður en af-
taka Sciascia átti
sér stað en eftir á Joseph Massino
sagði hann að þetta Áttunda morðið
værigottáhannog 9*ti komið honum
Sciascia hefði ekki
átt að reyna að segja sér hvemig ætti
að stjóma fjölskyldunni. Vitale hefur
borið vitni um að allt aftursætið í bíln-
um sem Sciascia var drepinn í hafi
flotið í blóði og því þurftu þeir að losa
sig við hann. „Honum hlýtur að hafa
blætt til dauða," segir Vitale.
Joseph Massino komst til áhrifa
sem höfuð Bonanno-fjölskyldunnar
árið 1993 er hann losnaði úr fangelsi
fyrir ýmsa glæpi en um það er meðal
annars fjallað í myndinni Donnie
Brasco með þeim Johnny Depp og A1
Pacino. Á þessum tíma hafði Bon-
anno-fjölskyldunni næstum verið út-
Donnie Brasco Massino kemur við
sögu I myndinni Donnie Brasco en
mynd afJohnny Depp hangir uppi ú
veitingastað hans.
rýmt og búið var að reka hana úr
„Nefndinni" bandalagi fimm stærstu
mafíufjölskyldnanna sem stjóma New
York.
Samvinna við Gotti
Massino lét lítið á sér bera sem höf-
uð Bonanno-fjölskyldunnar. Hann átti
strax náið samstarf með hinum al-
ræmda John Gotti og fjölskyldu hans
og brátt hafði honum tekist að ná aftur
sæti fjölskyldunnar í „Nefndinni".
Hann stjómaði starfsemi fjölskyld-
unnar frá ítalska veitingahúsinu Casa-
blanca í Queens sem hann á hlut í.
Þetta þykir eitt besta ítalska veitinga-
húsið í borginni en lætur lítið yfir sér. Á
veggjunum hanga myndir af frægu
fólki sem hefur borðað þar, þar á með-
al Johnny Depp.
.. .að vera geðsjúklingur
„Þegar ég var sex ára fékk ég
mótorhjólastýri í hausinn og fót-
brotnaði. Var aldrei sami maður
eftir það, sagði pabbi minn," segir
Jónas Gunnarsson, manísk
depressívur maður, og alkóhólisti í
þokkabót. „Ég er fæddur í Mos-
fellsdalnum, er skyldur Þórbergi
Þórðarsyni og Einari Benediktssyni
í föðurætt en Jóhannesi úr Kötlum
og Jóni frá Ljáskógum í móðurætt.
Ég fékk geðsjúkdóm út af ítrekuð-
um höfuðhöggum. Ég varð fyrir lík-
amsárás á Grundarfirði tæplega
tvítugur. Ég beygði mig og það var
sparkað undir hökuna á mér.
Kjálkinn brotnaði og það flísaðist
úr honum, en háls, nef og eyma-
læknirinn neitaði
að láta mig fá
áverkavottorð.
Dælt lyfjum
„Geðlæknar
hafa neytt ofan í
mig 12 til 15 lyf
sem öll gera verra.
Ég var úti í Dan-
mörku um daginn,
flaug með Iceland
Express. Ég fór til
Legó að kynna
uppfinninguna
mína. Þeir stóðu á
öndinni yfir henni
og sögðu mig snill-
ing. Ég hannaði
píramída sem
skiptir um lití þeg-
ar homunum er
snúið. Hefurðu
ekki séð greinina
„Verkfræðingar
töldu mig snill-
ing?“ Ég fór inn á
geðdeild í Dan-
mörku og þar var
engum lyfjum
dælt í mig. Þau
gera bara verra,
lyfin, en geðlæknar héma vita ekk-
ert hvað þeir em að gera, dæla bara
lyfjum.
Heilahrörnun móður
Ég hef verið sviptur sjálfræðinu.
Samt er ég dæmdur saíchæfur. Ég
hef ekki brotið af mér. En ég tók
traktor frá Kleppi og keyrði hann
upp á lögreglustöð, tvisvar. Það var
vegna þess að mér var sagt að ef ég
myndi
„Ég tók traktor frá
Kleppi og keyrði
hann upp á lög-
reglustöð, tvisvar.
Þaðvarvegna
þess að mér var
sagtaðefég
myndi brjóta af
mér og yrði dæmd-
ur sakhæfur mætti
ég sækja um sjálf-
ræði aftur. Ég skil
ekki hvað þeir eru
að gera með
traktorá Kleppi,
ekki er neinn land-
búnaður þar."
brjóta af mér og yrði dæmdur sak-
hæfur mætti ég sækja um sjálfræði
aftur. Ég skil ekki hvað þeir em að
gera með traktor á Kleppi, ekki er
neinn landbúnaður þar. Forsaga
þess að ég var sviptur sjálfræði var
að móðir mín, sem var með heila-
hrömunarsjúkdóm, var plötuð til
að skrifa undir. Hún er dáin.
Gangandi kraftaverk
Ég er ekki á neinum lyfjum
núna. Ég er talinn ofvirkur, en ég
get verið í lagi ef ég er í erfiðis-
vinnu. Ég er ekki í erfiðisvinnu
núna, því ég var svikinn um vinnu.
Fyrir nokkram mánuðum flutti ég
út af heimilinu á Miklubraut 20.
Þar er allt í skipu-
lagsleysi. Það er
þröngvað í mann
lyfjum. Og þeir
sex sem em
sprautaðir þar em
keyrðir á Klepp
einn og einn, í
staðinn fyrir að
nýta ferðina og
fara með alla í
einu. Starfsfólkið
er mjög gott og
húsið líka, en allur
pósturinn minn
hefur horfið. Ég
var fluttur nær
dauða en lífi á
Miklubraut 20 á
sínum tíma. Þeir
sögðu að ég væri
gangandi krafta-
verk þegar ég kom
inn, að vera lif-
andi eftir alla
þessa áfengis-
drykkju. Ég var
líka sagður gang-
andi kraftaverk
þegar ég fór út.
Býr á götunni
Ég er fluttur af Miklubraut 20.
Nú bý ég á götunni. í nótt gisti ég á
gistiskýlinu í Þingholtsstræti. Á
mánudaginn [í dag] fer ég á Vog. Ég
ætla að hætta að drekka. Ég hef
fengið mörg bréf frá Mercedes
Benz. Þeir vilja samstarf. Ég skulda
svo mikið að ég verð örugglega að
fara að hnýta öngla. Get fengið þrjú
þúsund á dag fyrir það. Maður fær
krónu fyrir hvern krók."
frekar vi.ja vera á geðdei.d í Danmorku he.d-
,n hér. en seqist skulda of mikið ti. að fara ut. _________________