Alþýðublaðið - 07.11.1919, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Slys.
Steinn keraur í háalofti ofan
úr Skólavörðuliolti og brýtur 6
ráður í Bergstaðastræti.
í fyrraœorgun vildi til slysalegt
atvik, sem hæglega hefði getað
orðið manns bani.
í Skólavörðuholti suður og upp
af Bjargarstíg er verið að sprengja
fyrir holræsi, og í fyrramorgun
vildi svo slysalega til við spreng-
ingu, að umbúnaðurinn bilaði
ö'órumegin, og fór einn steinn svo
hátt og langt, að hann fór yfir
hið háa hús Jóns Þorsteinssonar
við Bjargarstíg og alla leið niður
að Bergstaðastræti, og lenti þar á
bakhlið hússins nr. 17 (eign Guðm.
Sæmundssonar og Kristjáns Snorra-
sonar). Steinninn kom á glugga-
póst, og brotnuðu sex rúður; hefði
steinninn komið á rúðu hefði hann
ef til vill orðið mannsbani, því
innan við gluggann lá í legubekk
11 ára drengur, Axel Kristjáns-
son, sonur Kristjáns Kristjánsson-
ar steinsmiðs og konu hans Guð-
rúnar Ólafsdóttur.
Það slær óhug á marga þegar
atvik eins og þetta koma fyrir,
enda eiga þau ekki fyrir að koma
Það þarf að búa svo vel um við
sprengingar sem framkvæmdar eru
inni í bænum, að ekki geti slys
orðið að, hvad sem það kostar.
€jtirbreytnisvert.
Bæjarstjórn Kristjaníu hefir ný-
lega samþykt lög um almennan
mæðrastyrk, sem ná skal til ekkna
og annara einstæðingskvenna, er
börn eiga, hvort heldur eru frá-
skildar eiginkonur, konur sem eig-
inmennirnir hafa yfirgefið, ógiptar
mæður, eða konur óvinnufærra
manna. Þessi styrkur á að gera
móðurinni kleyft að standa straum
af börnunum, þó fyrirvinnu föð-
ursins njóti ekki við.
Skilyrði til styrksins eru þau
að móðirin hafi fyrir barni að
sjá sem sé ekki orðið íullra 15
ára, ef sérstök önnur skilyrði eru
fyrír hendi, má lengja styrkveit-
ingartímann til 17 ára.
Til þess að hafa rétt til styrks-
ins má móðirin og börnin ekki
hafa hærri tekjur en:
Móðir með 1 barn kr. 2000,00
— — 2 börn — 2400,00
— — 3 — — 2800,00
— — 4 — — 3000,00
Hæzti styrkur getur orðið þessi:
Móðir með 1 barn kr. 600,00
— 2 börn — 980,00
— — 3 — — 1440,00
— — 4 — — 1800,00
Gifti konan sig missir hún styrk-
inn. Auk hans er mæðrum og
börnum ætluð ókeypis læknishjálp,
meðul og sjúkrahússvist.
Lögin öðlast gildi 1. jan. 1920.
Hver getur nú annað en öfund-
að Kristjaníu, sem orðið hefir fyrst
bæjai félaga á Norðurlöndum að
koma á jafn stórkostlegum um-
bótum og þessum. Hugsum oss
hvílík umskifti verða við lög þessi.
Ekkert barn þarf að alast upp við
skort, engin móðir að standa ráð-
þrota yfir því hvar taka skuli
brauð handa barni sínu — og
ekkert fátækt heimiii þarf lengur
að borða beiska náðarbrauðið sem
fátækrastjórnirnar oft og einatt
rétta fátækum mæðrum með
barnahóp, þar sem fyrirvinnuna
vantar. Hvenær fáum vér sann-
gjörn lög um þetta efni?
19. júní.
Svar. Þegar Alþýðuflokknrinn
fer að hafa áhrif á Alþingi.
Olíuofhar eru „lakkeraðir"
og gerðir sem nýir. Gert við iampa
og lampagrindur á Laugaveg 27.
Ágæt sítróimolía, á 5 kr.
pelinn, fæst í Aiþýðubrauðgerðinni.
AUí
veröur haldinn í JBárulbiiö
sunnudaginn 9. þ. m. kl. 5. a. h.
Konur og menn! Munið a5 koma á fundinn.
ríí
heldur fund í G.-T.-húsinu laugardaginn 8. þ. m. kl. 7V* s. d.
Félagsmenn beðnir að fjölmenna.
Fólagsstjórnin.
Innrömmun á myndum
afgreidd fljótt og vel. Lágt verð.
Hjálmar Porsteinsson,
Skólavörðustíg 4. Sími 306.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafar Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.