Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1996, Page 102
ureyri á árinu mældist 6. ágúst 23,5 stig, en kaldast varð 20.
marz, en þá mældist þar 15,5 stiga frost.
I janúar var kaldara en í meðalári og nokkuð umhleyp-
ingasamt. Hinn 10. gerði óveður á Austur- og Norðurlandi
og varð mikið foktjón í Siglufirði. 20-30 hús voru talin hafa
skemmzt, þar af voru 2 talin ónýt. Hinn 29. janúar kom
mikið ísingarveður á Suðurlandi og brotnuðu á 2. hundrað
rafmagnsstaurar í Mýrdal og Meðallandi. Mánuðurinn var
hinn þurrasti í Reykjavík síðan 1977. - Febrúar var einnig
umhleypingasamur en mildari en í meðalári. Petta var
þurrasti og sólríkasti febrúar á Akureyri síðan 1986. - í
marz var kalt og óhagstætt veðurfar. - Apríl var fremur
kaldur og þeim kulda fylgdi óvenjumikið sólfar á Suður-
landi. Mánuðurinn var hinn sólríkasti í Reykjavík frá 1935.
- Maí var góðviðrasamur og frekar hlýr. Mjög mikið var
um kyrrviðri í mánuðinum. Sólarhringsúrkoma í Reykjavík
29.-30.(kl.09-09) varð 35,9 mm, sem er met í maí. Eldra
metið var frá 1949, 26,7 mm. Hinn 29. urðu mikil flóð á
Norðvesturlandi. Ræsi á Stóru-Giljá tók af, og fór hring-
vegurinn í sundur. Flóð urðu einnig í Hvammsá í Svartár-
dal. - I júní var þokkaleg veðrátta syðra en kalt og vætu-
samt nyrðra. Grasspretta var hæg. 27. júní hófst samfelldur
sólarkafli sem stóð til 9. júlí víðast hvar á landinu. - Júlí var
hlýr og góðviðrasamur. Heitustu dagar mánaðarins voru 4.
- 6., en þá komst hiti í 25 stig í Borgarfirði, Árnessýslu og á
Héraði. I Reykjavík var mánuðurinn hinn næsthlýjasti síð-
an 1960 og var meðalhiti 12,0 stig, 1,4 stigum yfir meðaltali.
Urkoma var 53 mm, en sólskin 131 stund, sem er 40 stund-
um minna en í meðalári. Á Akureyri var meðalhitinn 12,2
stig. Á Akurnesi í Hornafirði var úrkoman 232 mm í mán-
uðinum, en þar af féll 101 mm í vatnsveðri 29.-30. - Ágúst
var hægviðrasamur og frekar hlýr. Hinn 7. komst hiti á Eg-
ilsstöðum í 26,7 stig, sem er mesti hiti í þessum mánuði síð-
an 1961. - September var þurr og sólríkur, en hiti var ná-
lægt meðaltali. I Reykjavík þurfti fyrst að skafa hrím af bíl-
rúðum hinn 15. Einkum var blítt veður fram um 20., en þá
gerðist umhleypingasamt. - í október var fremur kalt á
(100)