Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1996, Síða 122
Bjarnason og Kristján Jónasson (Víkingi), í tvíliðaleik
kvenna Aðalbjörg Björgvinsdóttir og Eva Jósteinsdóttir
(Víkingi), en í tvenndarkeppni Aðalbjörg og Kjartan
Briem (KR).
Brídds. I apríl sigraði Jón Baldursson á einmenningsmóti
í París. Margir þekktustu spilarar heims voru meðal þátt-
takenda. - Islandsmót í sveitakeppni, opnum flokki, var
um mánaðamótin marz / apríl. Sveit Landsbréfa sigraði, en
sveitina skipuðu Guðmundur Páll Arnarson, Þorlákur
Jónsson, Jón Baldursson, Sævar Þorbjörnsson og Sverrir
Armannsson. íslandsmót í tvímenningi, opnum flokki, var
haldið seint í apríl. íslandsmeistarar urðu Ásmundur Páls-
son og Karl Sigurhjartarson.
íslendingar urðu Norðurlandameistarar í karlaflokki á
móti sem fram fór í Vasa í Finnlandi seinni hluta júní.
Sveitina skipuðu Jakob Kristinsson, Jón Baldursson, Karl
Sigurhjartarson, Matthías Þorvaldsson og Sævar Þorbjörns-
son. Kvennasveitin varð í neðsta sæti. - í heimsmeistara-
keppni í tvímenningi í september urðu Björn Eysteinsson
og Aðalsteinn Jörgensen í 15. sæti, en Jakob Kristinsson og
Matthías Þorvaldsson í 33. sæti.
Fimleikar. Islandsmót var haldið í Reykjavík í marz. I
fjölþraut kvenna sigraði Nína Björk Magnúsdóttir (Björk),
en Guðjón Guðmundsson (Ármanni) sigraði í fjölþraut
karla. I einstökum greinum sigraði Nína í stökki, á tvíslá og
á gólfi, en Guðjón á gólfi, tvíslá, svifrá, í hringum og
stökki. Eva Rut Jónsdóttir (Björk) sigraði á jafnvægisslá
kvenna og Jóhannes Níels Sigurðsson (Ármanni) á boga-
hesti.
Frjálsíþróttir. Meistaramót Islands innanhúss var haldið í
Reykjavík í febrúar. Sigríður Anna Guðjónsdóttir (HSK)
setti íslandsmet í þrístökki,12,45, Geirlaug Geirlaugsdóttir
(Ármanni) jafnaði íslandsmetið í 50 m hlaupi, 6,3 sek. og
Pétur Guðmundsson (KR) kastaði 19,77 í kúluvarpi. -
Víðavangshlaup ÍR var haldið í 79. sinn á sumardaginn
fyrsta. Sigurvegari að þessu sinni var Sigmar Gunnarsson
(IJMSB). - Reykjavíkurleikar voru haldnir í júní. Þar setti
(120)