Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1996, Síða 170
leiksviði með því að barnakór söng en sinfóníuhljómsveitin
lék undir stjórn Garðars Cortes. Matthías Á. Mathiesen,
formaður þjóðhátíðarnefndar, setti hátíðina, en síðan flutti
Davíð Oddsson ræðu. Þá var komið að ávörpum norrænu
þjóðhöfðingjanna og var þeim vel fagnað. Sérlega var Svía-
konungi vel tekið, en hann mælti á íslenzku nokkur orð úr
Hávamálum, þar sem segir, að maður sé manns gaman.
Haraldur Noregskonungur sagðist þess fullviss, að deilur
Norðmanna og íslendinga út af veiðum í Smugunni mundu
verða kveðnar niður. Síðustu ávörpin fluttu Vigdís Finn-
bogadóttir og Olafur Skúlason biskup, en einnig voru
sýndir þjóðdansar og flutt atriði úr íslandsklukkunni.
Nokkrir tugir þúsunda sóttu hátíðina á Þingvöllum og
taldi lögreglan, að þar hefðu verið um 60.000 manns.
Steinn Lárusson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, taldi há-
tíðagesti hafa verið nær 75.000. Ljóst er hins vegar, að þús-
undir urðu frá að hverfa vegna umferðaröngþveitis, sem
varð á vegum til Þingvalla, er fólk þyrptist þangað undir
hádegi. Urðu sumir að bíða í bílum sínum í bílalestum allt
að 5 stundum og náðu ekki nógu snemma á hátíðina. Veð-
ur var gott lengst af, en gerði þó rigningarskúr síðdegis.
Nokkur afmœli félaga, stofnana og fyrirtœkja
10. janúar: 110 ár liðin frá því að góðtemplarareglan hélt
innreið sína á íslandi, en stúkan ísafold var stofnuð þenn-
an dag árið 1884 á Akureyri.
17. janúar: Eimskipafélag íslands 80 ára. í tilefni afmæl-
isins var kveikt á nýjum ljósabúnaði, sem lýsir upp Eim-
skipafélagshúsið í Pósthússtræti.
25. janúar: Sunnukórinn á ísafirði 60 ára.
26. janúar: Kvenfélagið Hringurinn 90 ára.
1. febrúar: Liðin voru 90 ár frá því að heimastjórn komst
á og Hannes Hafstein tók við ráðherraembætti. Athöfn var
í ráðhúsi Reykjavíkur, þar sem settur var á svið leikþáttur
um embættistöku fyrsta ráðherrans. Einnig var athöfn við
Stjórnarráðið fyrir frumkvæði Orators, félags laganema.
24. febrúar: Liðin 70 ár frá afhjúpun styttu Ingólfs Arn-
(168)