Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1996, Page 178
ingu bundins slitlags á Bólstaðarhlíðarbrekku (Botnastaða-
brekku) og þar með þeim áfanga að fá bundið slitlag a
veginn milli Reykjavfkur og Akureyrar. Raunar var þa
komið bundið slitlag frá Kálfavöllum í Suðursveit til Húsa-
víkur utan smákafla í Eldhrauni. Á Norðurlandsvegi var
einnig talsvert unnið við kaflann Kísiliðja-Biskupsháls. - A
Austurlandsvegi var stærsta verkefnið tengt brúarsmíð yfir
Jökulsá á Dal.
Bundið slitlag var lagt á 172 km á árinu (153 km árið áð-
ur). í árslok voru 2.670 km af bundnu slitlagi komnir á vegi
landsins eða um 35% þjóðvega og á þeim fara fram 84% aí
öllum akstri á þjóðvegum í landinu.
Auk þeirra framkvæmda við bundið slitlag, sem áður var
getið um, má nefna 4,0 km kafla á Þjórsárdalsvegi, 8,3 km
á Ólafsvíkurvegi frá Lágafelli að Staðará, 4,5 km á Barða-
strandarvegi, 8,4 km á Bfldudalsvegi og 5,0 km um Breið-
dalsós. Þá var lagt á 11,9 km kafla á Austurlandsvegi milli
Uppsala og Reynivalla.
Langmestu framkvæmdir við vegagerð voru eins og árið
á undan við Vestfjarðagöng og var varið til þeirra á árinu
1.098 millj. kr. Hinn 16. febrúar var síðasta haftið sprengt
milli ísafjarðar og Súgandafjarðar. Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra sprengdi og öllum Súgfirðingum var boðið
til ísafjarðar. Um sumarið var gerður 150 m langur forskáli
í Súgandafirði og vegur að skálanum. Hinn 19. desember
var leyfð takmörkuð bílaumferð um göngin til Súganda-
fjarðar. Um áramót var búið að sprengja 91% af göngun-
um og aðeins 645 m eftir. Talið var að heildarkostnaður við
göngin yrði um 3,8 milljarðar.
Ýmsar framkvœmdir
Reykjavík. Lokið var við smíð 690 íbúða á árinu (árið
áður 579). Hafin var smíð 546 íbúða (373), 799 íbúðir voru
í smíðum í árslok (830 í árslok 1993). - Mest var sem fyrr
unnið við byggingar í Grafarvogi og byggt í Rimum, Engj-
um, Borgum og Húsum og Víkum. Síðastnefnda hverfið er
í Borgarholti II og voru þar eingöngu byggð fjölbýlishús.
(176)