Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1996, Page 196
Gildistími samningsins var hinn stytzti, sem vitað er um,
aðeins rúmur sólarhringur.
15. janúar sameinuðust Hjúkrunarfélag íslands og Félag
íslenzkra hjúkrunarfræðinga. Félagar eru 2.700. Fyrsti for-
maður nýja félagsins er Asta Möller. - Oskar Vigfússon lét
af formennsku í Sjómannasambandinu í byrjun nóvember.
Sævar Gunnarsson var kosinn formaður í hans stað. Hann
var formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur.
ÝMISLEGT
Áfengissala. Sala á áfengi jókst um 16,49% á árinu að
magni til, úr 8,24 milljón lítrum í 9,60. Ef mælt er í alkóhól-
lítrum varð aukningin minni eða úr 881.751 lítra í 923.324,
þ.e. um 4,65%. Heildarsala á áfengi hjá ÁTVR á árinu
nam 7,775 milljörðum króna. - í Reykjavík hefur verið sí-
felld fjölgun vínveitingahúsa síðan 1989, og voru þau orðin
um 140 í árslokin með leyfilegan gestafjölda upp á 25.000.
Af þeim voru um 70 í miðbænum og þar af 20 við Lauga-
veg.
Báðu um vatn og vígslu. Séra Gunnar Sigurjónsson á
Skeggjastöðum á Langanesi fékk heimsókn í ágúst. Þýzkt
par bað um vatn að drekka og að þau yrðu gefin saman í
hjónaband. Eftir að nauðsynlegir pappírar höfðu verið fax-
aðir frá Þýzkalandi, voru hjónaleysin gefin saman.
Benny Hinn í Hafnarfirði. Bandaríski sjónvarpspredikar-
inn og kraftaverkalæknirinn Benny Hinn hélt samkomu í
íþróttahúsi í Hafnarfirði 21. ágúst. Fjölmenni var og nokkr-
ir töldu sig hafa fengið bót meina sinna.
Blöð og tímarit. Tíminn kom út að nýju 4. janúar og nú
sá Frjáls fjölmiðlun um rekstur blaðsins, en ritstjórnin var
óháð DV. Ritstjóri var Jón Kristjánsson, en 20 starfsmenn
af eldra blaði fluttust að hinu nýja. - í febrúar var tímaritið
Heimsmynd selt. Kaupandi var Friðrik Friðriksson hjá AB.
- Hinn 30. marz var öllu starfsliði Dags sagt upp um leið
og Bragi Bergmann hætti ritstjórn. Margir voru síðar end-
urráðnir og útgáfu blaðsins var haldið áfram. - Viðskipta-
(194)