Bræðrabandið - 01.12.1979, Síða 2
AÐ ÞGKKJA
GUÐ
Sköpunarverkið opinberar Guð.
"Því að hið ósýnilega eðli hans,
bæði hans eilífi kraftur og guðdómleiki,
er sýnilegt frá sköpun heimsins, með
því að það verður skilið af verkunum."
RÓm.1,20.
Biblían er opinberun á Guði. "í
upphafi var orðið, og orðið var hjá
Guði, og orðið var Guð." JÓh. 1,1.
Kristur er opinberun á Guði. "Og
orðið varð hold - og hann bjó með oss,
fullur náðar og sannleika, og vér sáum
dýrð hans, dýrð sem eingetins sonar frá
föður. Enginn hefur nokkurn tíma séð
Guð; sonurinn eingetni, sem hallast að
brjósti föðurins, hann hefir veitt oss
þekking á honum." JÓh.1,14 og 18.
"Hann sem er ljómi dýrðar hans og ímynd
veru hans." Heb.1,3.
Kristur kunngjörði Guð í Gamla
testamentinu þegar hann talaði til
ísraelsmanna, og hann kom til jarðar-
innar sem Manns-sonurinn til þess að
kunngjöra hann, vegna þess að "í því
er hið eilífa líf fólgið, að þeir þekki
þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem
þú sendir, Jesúm Krist." JÓh.17,3.
Af þessu sjáum við að það er alger
nauðsyn að þekkja Guð. Fyrir þekkingu
á honum öðlumst við hlutdeild í eðli
hans. "Náð og friður margfaldist yður
til handa með þekkingu á Guði og Jesú
Drottni vorum. Þar eð hans guðdómlegi
máttur hefir veitt oss allt,sem heyrir
til lífs og guðrækni með þekkingunni
á honum, sem kallaði oss með sinni
eigin dýrð og dáð, og með því hefir
hann veitt oss hin dýrmætu og háleitu
fyrirheit, til þess að þér fyrir þau
skylduð verða hluttakandi í guðlegu eðli,
er þér hafið komist undan girndaspill-
ingunni, sem er í heiminum." 2,Pét.l,2-4.
Þetta er það sem Guð hafði í huga
til handa mannkyninu í upphafi, að öll
jörðin væri full af þekkingu á Guði.
"Hvergi á mínu heilaga fjalli munu menn
illt fremja eða skaða gjöra; því að
jörðin er full af þekkingu á Drottni,
eins og djúp sjávarins er vötnum hulið."
Jes.ll,9.
Skortur á þekkingu á Guði hefur
alltaf verið börmulegur fyrir manninn.
Gyðingarnir glötuðu þekkingu sinni a
Guði, og Kristur sagði um þá: "Er það
ekki af því sem þér villist, að þér
hvorki þekkið ritningarnar né mátt
Guðs?" Mark. 12,24. "Uxinn þekkir eig-
anda sinn og asninn jötu húsbonda sins,
en ísrael þekkir ekki, mitt fólk skilur
ekki." Jes.1,3.
Þannig var ástatt með ísrael á
dögum HÓsea. "Hún veit þá ekki að það
er ég, sem hefi gefið henni kornið og
vínberjalöginn og olxuna og veitt henni
gnótt silfurs og gulls - þeir hafa var-
ið því handa Baal." HÓs.2,8. Hjáguði
voru gjafir Guðs eignaðar. "Villist
ekki bræður mínir elskaðirT Sérhver góð
gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan
að og kemur niður frá föður ljósanna,
en hjá honum er hvorki umbreyting né
umhverfingarskuggi." Jak.1,16 og 17.
Hversu allt öðruvísi hefði ekki
ísrael farnast hefðu þeir vitað þetta.
En þeir þekktu ekki Guð né lyndiseink-
unn hans.
Það þýðingarmesta fyrir okkur er
að þekkja lyndiseinkunn Guðs. Það var
lyndiseinkunn sína sem Guð sýndi MÓse
þegar hann bað: "Hafi ég nú fundið náð
í augum þínum, þá bið ég: gjör mér
kunna vegu þína, að ég megi þekkja þig
... lát mig þá sjá dýrð þinal" 2.MÓs.
33,13 Og 18. Og Guð svaraði honum og
sagði: "Ég vil láta allan minn ljóma
líða fram hjá þér og ég vil kalla nafn-
ið Drottinn frammi fyrir þér; og ég
vil líkna þeim, sem ég vil lílcna, og
miskunna þeim sem ég vil miskunna...
Þá steig Drottinn niður í skýi; en hann
staðnamndist þar hjá honum og ákallaði
nafn Drottins. Síðan gekk Drottinn
fram hjá honum og kallaði: Drottinn,
Drottinn, miskunnsamur og líknsamur
Guð, þolinmóður og gæskuríkixr og harla
trúfastur, sem auðsýnir gæsku þúsundum
og fyrirgefur misgjörðir, afbrot og
syndir, en lætur þær þó eigi með öllu
óhegndar, heldur vitjar misgjörða feðr-
anna á börnum og barnabörnum, já í
þriðja og fjórða lið." 2.MÓs.33,19
og 34, 5-7.
Það er afarmikilvægt að þekkja
lyndiseinkunn Guðs, vegna þess að
óvinurinn, Satan, er stöðugt að rang-
túlka guð og fá menn til að misskilja
lyndiseinkunn hans.