Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2005, Blaðsíða 9
DV Fréttir
FÖSTUDACUR 4. FEBRÚAR 2005 9
fyrir Dani
Nýtt deiliskipulag að
svokölluðum þjóðleikhús-
reit verður sent í auglýs-
ingu að því er skipulagsráð
Reykjavflcur hefur ákveðið.
Eftir grenndarkynningu
hafði meðal annars
borist athugasemd
frá danska sendi-
ráðinu sem taldi
fyrirhugaða stækk-
un húss á Spítala-
stíg 10 myndu
verða til lýta
og rýra verð-
gildi fast-
eignar sendiráðsins á
aðliggjandi lóð á Hverfis-
götu 29. Skipulagsfulltrúi
lagði til að húsið á Spítala-
stíg yrði lækkað um 60
sentímetra ffá því sem áður
var áformað. Gengið yrði
þannig frá að ekki yrði til
lýta fyrir Danina.
Ætla að
fjðlqa sér
Vestfirðingar verða
orðnir 8300 talsins árið
2020, ef mat verkefnis-
stjórnar um byggðaáætl-
un Vestíjarða gengur eft-
ir. Til þess að ná mark-
miðinu verða Vestfirð-
ingar að fjölga sér um
0,5% á hverju ári. f gær
var fundur í Stjómsýslu-
húsinu á ísafirði, þar
sem tillögur verkefnis-
stjórnarinnar vom
kynntar. Að sögn Bæjar-
ins besta fela tillögumar
meðal annars í sér upp-
byggingu ísafjarðarbæjar
$em byggðakjarna og
Deira sem eykur hagvöxt
ög fjölgar atvinnutæki-
fæmm.
20 milljónir
tilrannsókna
Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra ogÁrni M.
Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra hafa gert samkomu-
lag um að efla rannsóknar-
og þróunarstarfsemi í sjáv-
arútvegi. Munu iðnaðar-
ráðuneytið og sjávarútvegs-
ráðuneytið vinna
sameiginlega að
tveimur verkefn-
um á ísafirði á ár-
inu 2005. Annað
verkefnið er á sviði
veiðarfærarannsókna
en hitt varðar
þorskeldi í
sjókvíum.
Ráðuneytin
tvö leggja
10 mflljónir hvort til verk-
efnanna af fjárveitingu til
framkvæmdar byggðaáætl-
unar 2002-2005.
Cage slappar
af í karaókí
Leikarinn Nicolas Cage
segir að hann noti karaókí
til að slappa af og
ná sér niður eftir
stress dagsins.
„Þetta er mín að-
ferð við að slaka
á,“ segir Cage.
„Uppáhaldslögin
mínemMyWay
og I do it, svona í
stfl við Sex
Pistols. Ég vil öskra lögin í
stað þess að syngja þau.
Þegar ég vann að myndinni
National Treasure þurfti
stundum að fresta tökum
þar sem ég mætti raddlaus
á staðinn.“ Cage hefur
vinnu við nýjustu mynd
sína, Ghost Rider, í næsta
mánuði.
Hildur Árdís Sigurðardóttir, Hagamelsmóðirin, var í gær dæmd í öryggisgæslu og til
vistunar á Réttargeðdeildinni að Sogni. Hildur var sakfelld fyrir að verða dóttur
sinni að bana og veita syni sínum lífshættulega áverka en var fundin ósakhæf sam-
kvæmt geðrannsóknum. Harmleikurinn á Hagamel vakti mikinn óhug á sínum tíma.
Hagamelsmamman
dæmd á Sogn
Málið vakti mikinn óhug og ríkti myrkur og sorg í Vesturbæ
Reykjavíkur. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í Haga-
melsmálinu í gær. Hildur Árdís Sigurðardóttir, móðirin sem varð
dóttur sinni að bana með hnífstungum, særði son sinn alvarlega
og reyndi að taka eigið líf, var dæmd ósakhæf og til vistunar á
Réttargeðdeildinni að Sogni. Sonur Hildar fær eina og hálfa
milljón í bætur.
Atburðimir sem Hildur Árdís var
dæmd fýrir gerðust í kjallaraíbúð við
Hagamel í lok maí. Lögreglan var
kölluð til eftír að sonur Hildar hafði
sloppið úr íbúðinni við illan leik og
gengið blóðugum skrefum að blokk í
nágrenninu þar sem vinur hans átti
heima. Aðkoman á heimili Hildar
var óhugguleg. Guðný Hödd, dóttir
Hildar, var látin og Hildur hafði
stungið sjálfa sig en lifað af.
Óhugnanlegt mál
Hildur var flutt á spítala þar sem
lögreglumenn og fangaverðir gættu
hennar meðan gert var að sárum
hennar. Síðan var hún flutt á Sogn
þar sem hún hefur dvalið síðustu
mánuði. Samkvæmt dómnum verð-
ur það hennar dvalarstaður áfram.
Málið vakti mikinn óhug og það
Guðný Hödd Hildardóttir Lést afvöldum
stungusára sem HildurÁrdís, móðir hennar,
veitti.
„Við vorum búin að
berjast í mörg ár við
þessa konu. Hún var
ekki heil á geði."
ríkti myrkur og sorg í Vesturbæ
Reykjavikur. Bamaverndarnefhd
hafði gert athugasemdir við ástand
móðurinnar og ættingjar höfðu
reynt að fá börnin í sfna umsjá.
Fáum óraði þó fyrir hvað átti eftir að
gerast.
Sorg íVesturbænum
„Við vorum búin að berjast í
mörg ár við þessa konu. Hún var
ekki heil á geði. En svona atburðum
átti enginn von á. Það dettur engum
í hug að svona geti gerst,“ sagði
Sigurður Anton Hallgrímsson afi
drengsins sem lifði af í viðtali við DV
um áramótín.
Örn Bárður Jónsson, sóknar-
prestur í Neskirkju, sagði við helgi-
stund sem haldin var í kirkjunni
daginn eftir fólk leita huggunar í
hvert öðru. „Við finnum hvað það er
mikilvægt að vera ekki ein. Því vil ég
þakka þeim foreldrum sem komu
með bömum sínum hingað til að
takast á við sorgina."
Brosmild og róleg
Rannsókn lögreglu lauk tiltölu-
lega fijótt en geðrannsókn á Hildi
tók lengri tíma. Við réttarhöldin
mættí Hildur tvisvar og studdist í
bæði skiptín við staf en þannig var
hún þekkt í Vesturbænum - sem ró-
leg og brosmild kona sem gekk við
staf. Réttarhöldin vom lokuð fjöl-
miðlum enda um viðkvæmt mál að
ræða. Þá barst dómur ekki frá
héraðsdómi í gær þar sem ekki hafa
enn verið strikuð út nöfn á þeim
sem komu að málinu.
Nánar verður fjallað um dóminn
á morgun.
simon@dv.is
Formaður gagnrýnir Fréttablaðskönnun
Stóllinn ekki frátekinn
össur Skarphéðinsson gagnrýnir
könnun Fréttablaðsins þar sem
spurt var „Hver telur þú að verði for-
maður Samfylkingarinnar að loknu
flokksþingi?" Rúm 60% svömðu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttír meðan
Össur fékk aðeins stuðning um 30%
þeirra sem tóku þátt.
„Þetta er ný aðferð. Þarna er fyrst
og fremst verið að spyrja um hvað
menn spá en ekki hvað menn vilja,"
segir Össur og kallar þessa könnun
„gisk“ Fréttablaðsins. Segir fjöl-
marga vilja styðja hann en myndu
kannski á þessum tímapunktí spá
Ingibjörgu sigri.
össur likir þessu við fótboltaleik
þar sem menn geta stutt annað liðið
en spáð öðm sigri. „Ég hef áður
kynnst andbyr þegar fiokkurinn var
langt undir 15%. Nú er flokkurinn
á öfiugu skriði, í nýjum höfuð-
stöðvum, með glæsilegan þing-
flokk og meira að segja framtíðar-
nefnd sem ég lagði til að yrði stofti-
uð á sínum tíma. Menn verða að
taka afstöðu
út frá verk-
um okkar
Ingibjarg-
ar. Það er
enginn
stóll frátek-
inn í Sam-
fylking-
unni."
Bæjarstjórn Árborgar markar nýja stefnu
Búgarðar á Suðurland
Byggja á búgarða á bújörðum
fýrir austan íjall. Einar Njálsson
bæjarstjóri Árborgar fékk samþykkta
tiUögu um þetta í bæjarstjóm í gær.
„Dreifbýlið í Flóanum
hefur þann augljósa
kost að vera í góðum
tengslum við bæði
Selfoss og höfuð-
borgarsvæðið. Því
hefur færst í vöxt að
fólk stundi þar bú-
skap sem aukastarf
eða haldi húsdýr,
einkum hross, sem ffí-
stundaiðju. Áhugavert
ætti að vera fyrir landeig-
endur að geta selt hluta
jarða sinna til slíks bú-
setuforms," segir
í tfllögu
Einars.
Bæjar-
stjórinn
bendir á að þegar sé kominn vísir að
myndarlegri „búgarðabyggð" við
Votmúlaveg. Hægt verði að halda
þeirri uppbyggingu áfram. Skipta
megi lóðum upp í nokkuð stórar
einingar og reisa vegleg íbúðar-
hús og hesthús eða hús fyrir
annars konar húsdýrahald.
Svipuð uppbygging bú-
garðabyggðar verði í Háeyr-
armýri norðan Eyrarbakka
og Stokkseyrarmýri norðan
þorpsins Stokkseyrar. Þar sé
þegar kominn vísir að slflcri
byggð.
Einar Njálsson Áhugavert fyrir
bændur að selja hluta lands síns
undir búgarða, segir bæjarstjóri
Árborgar