Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
Tilberará
Ströndum
Strandamenn sitja nú
sveittir við að búa til tilbera
og fleiri galdratæki fyrir
galdrasýningu á Ströndum.
Verkefnið hófst um síðustu
mánaðamót og unnið hefur
verið að ýmsum hugmynd-
um að handgerðum minja-
gripum. Tilberar voru þekkt-
ir sem kvengaldur á fýrri tíð.
Dæmi voru um að prestar
flettu upp um konur til að
reyna að sanna á þær að
þær hefðu þar undir tilbera.
Einn missti hempuna vegna
þess. Nú geta konur komið
sér upp tilbera á ný ef þær
eiga leið um Strandir.
íbúðaverð
hækkar
Miklar hækkanir hafa
verið á íbúðaverði að und-
anfömu og hafa verðhækk-
anir á höfúðborgarsvæðinu
á síðustu tólf mánuðum
verið 27,9%. Þetta kemur
fram á vef Alþýðusambands
íslands þar sem fjallað er
um nýja áfangaskýrslu Hag-
deildar ASÍ um þróun
íbúðaverðs. Þar kemur
einnig fram að hækkanimar
á höfuðborgarsvæðinu hafa
verið mun meiri og hraðari
en á öðrum svæðum lands-
ins. „Hækkun íbúðaverðs
hér á landi hefur verið langt
umfram hækkanir í löndun-
um í kringum okkur," segir
á vefnum.
Laugavegur
eða
Kringlan?
Samúel Samúelsson
tónlistarmaður.
„Það er nú Laugavegurinn.
Ég bý niðri í bæ og þar vil ég
vera. Mér líöur hálfilla I versl-
unarmiðstöðvum þó aö þær
séu nú til margs gagnlegar I
landi þar sem veður eru
válind.
Hann segir / Hún segir
„Laugavegurinn. Ekki spurn-
ing. Laugavegurinn rokkar!
Ég var nú í myndatöku áðan
í Smáralind og það var hleg-
ið þessi ósköp að mér þvi ég
haföi bara komið þangað
tvisvar. Svo það er miðbær-
inn.Hannermálið."
Steinunn Valdfs
Óskarsdóttir
borgarstjóri.
Ómar Þór Ómarsson, nemandi í Verzlunarskóla íslands, þáöi boð Strákanna á Stöð
2 og fór í sleik við skólafélaga sinn í sjónvarpinu gegn 10 þúsund króna greiðslu.
Þorvarður Elíasson skólastjóri varð ekki ánægður með þetta og fleira kom til þegar
hann setti Ómar Þór út af sakramentinu í félagslífi skólans.
Sjonvarpssleikur dregur
dilk á eflir sár í Verzlé
| Dýrkeyptur sleikur
Ómar Þár Ómarsson fer
sleik við skólafélaga sint
hjá Strákunum á Stöð 2.
„Annars var það ekki bara sleikurinn sem fór fyrir brjóstið á
skólastjóranum. Frekar annar hrekkur sem við gerðum þegar við
læddum laxerolíu í drykk eins nefndarformanns hér í skólanum
og tókum hann svo upp með falinni myndavél á salerni þegar
hann var kominn með niðurgang af drykknum."
Ein aðalsprautan í félagslífi nem-
enda í Verzlunarskóla Islands hefur
verið fryst úti eftir að hún tók tilboði
Strákanna á Stöð 2 um að fara í sleik
fyrir tíu þúsund króna þóknun.
Hefði svo sem verið í lagi ef ekki
hefði verið um að ræða pilt sem fór í
sleik við annan pilt. Ómar Þór
Ómarsson er ekki sáttur við að vera
kominn út f kuldann:
Videó-bann
„Við höfum staðið fyrir starfsemi
hér í skólanum sem kölluð er Rjóm-
inn en þar tökum við alls kyns
viðburði í skólalífinu upp á mynd-
band og sýnum svo hér á göngun-
um. Nú hefur mér verið bannað að
að sjá um þetta frekar og reyndar
fengið skipun frá skólastjóra um að
snerta ekki myndbandsupptökuvél
hér í skólanum það sem eftir lifir
skólaársins," segir Ómar Þór Ómars-
son sem er ekki sáttur þó svo hann
hafi farið í sleik við strák í sjónvarp-
inu.
Laxerað í beinni
„Annars var það ekki bara sleik-
urinn sem fór fýrir brjóstið á skóla-
stjóranum. Frekar annar hrekkur
sem við gerðum þegar við læddum
laxerolíu í drykk eins nefndarfor-
manns hér í skólanum og tókum
hann svo upp með falinni myndavél
á salerni þegar hann var kominn
með niðurgang af drykknum," segir
Ómar Þór og skammast sín ekkert
fyrir hrekkinn. „Við sýndum upptök-
una af stráknum á klósettinu hér í
frímínútum og fátt efni frá okkur
hefur vakið jafn mikla athygli og
kátínu," segir hann.
Hvað segir skólastjórinn?
Þorvarður Elíasson, skólastjóri
Verzlunarskóla íslands, vill sem
minnst tjá sig um strákapör nem-
enda sinna eða franska kossa skóla-
pilta í sjónvarpinu:
„Ég tel mig geta skammað nem-
endur eins og þarf án þess að fara
með það á síður DV,“ segir Þorvarð-
ur skólastjóri í Verzló.
Ómar Þór Ómarsson er 21 árs og
stefnir að því að
Ijúka námi í
Verzló í vor:
„Nei, ég ætla
ekki í kvik-
myndagerð eða
leikhst. Ætli ég
fari ekki í Háskól-
ann í Reykjavfk
segir hann.
Skólastjórinn
Þorvarður Eií-
asson áskilursér
rétttiiað
skamma nem-
endursínaað
vild án þess að
fara með þaö á
siðurDV. .
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi þung-
an dóm yfir landskunnum lögfræðingi
Lögfræðingur
dæmdur í átta
mánaða fangelsi
Lögfræðingurinn Sveinn Skúla-
son var í gær dæmdur í átta mánaða
óskilorðsbundið fangelsi fyrir auðg-
unarbrot. Hann var ákærður fyrir að
hafa skert rétt þrotabús með því að
búa til kröfu og falsa dagsetningu til
að koma í veg fyrir að þrotabúið gæti
gert kröfu í eign skjólstæðinga hans.
Skjólstæðingur Sveins, Petra Jóns-
dóttir eiginkona hins látna, var
einnig dæmd í fjögurra mánaða
fangelsi.
Sveinn Skúlason segir málið
eiga sér afar langa forsögu. Hann
hafi lent upp á kant við ríkislög-
reglustjóraembættið og þarna sé
vegið áð starfsheiðri hans og æru.
„Ég ætla að áfrýja málinu enda er ég
saklaus," segir Sveinn ákveðinn.
Samtals voru það um fimm millj-
ónir sem Sveinn er sagður hafa svik-
ið út úr þrotabúinu. Málið snýst um
fasteign í Reykjavík sem Sveinn kom
höndum yfir. Málið komst upp árið
Sveinn Skúlason lögfræðingur
Segist saklaus og setlar að áfrýja.
2002 en ekki var dæmt í
því fyrr en nú.
Dómurinn taldi brot
Sveins alvarlegt. Hann
hafi framið auðgunarbrot
í skjóli opinbers leyfis og
því sé brot hans sérlega
ámælisvert þar sem í
þeim felist brot á mikils-
verðum starfsskyldum
hans sem lögmanns.
Þá er dómurinn yfir
Sveini ekki skilorðs-
bundinn, þannig að ef
Hæstiréttur staðfestir
dóminn mun lögfræð-
ingurinn Sveinn þurfa
að dúsa átta mánuði
innan fangelsisveggja.
En Sveinn ætlar sér það
ekki. Hann segist sak-
laus og trúir því að réttlæt-
ið muni sigra að lokum.
simon@dv.is