Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Side 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2005 J1
SirkusJacko
aftur í gang
Réttarhöldin yfir Mich-
ael Jackson eru aftur komin
í gang með vali í
kviðdóm. Auk
þess hefur lög-
maður Jackos sett
ífam nýjan lista af
þekktu og ríku
fólki sem hann
hyggst leiða í
vitnastúkuna og láta tjá sig
um hve dásamlegur per-
sónuleiki Jacko er í raun og
veru. Á listanum eru nöfn á
borð við Eddie Murphy,
Macauley Culkin og Smok-
ey Robinson. Bætast þessi
nöfn við fyrri fistann sem
innhélt m.a. Liz Taylor, Jay
Leno, Larry King og Stevie
Wonder. Réttarhöldunum
hefur verið lýst sem fjöl-
miðlasirkus af ýmsum vest-
anhafs.
„Frítt háskólanám"
Ungu fólki eru flestir vegir færir í
dag. Götur eru svo greiðar að bank-
amir slást um að dæla í okkur pen-
ingum þangað til að einn daginn allt
fer í botn. Stopp. Við höldum þeim
uppi með vöxtunum okkar, en ok?
Myndlistarneminn segir
Sylvía Dögg
Halldórsdóttir
gefur skuldsettum
ungmennum sem
vilja I háskóla erlendis
góðráð.
Fyrsta memitaskóladaginn minn
slógust þrír bankar um aö veita okk-
ur 50 þúsund króna yfirdrátt án
ábyrgðarmanns og þar eiginlega
byrjaði lífið. Já takk! - Hvar skrifa ég
undir? Ef þú vast klár þá náttúrlega
gastu opnað reikning með yfirdrætti
í öllum bönkunum, ekki vandamál-
ið. Ég þekki fúllt af þessum „klárum"
sem sitja efdr f skuldasúpunni og
komast ekki út fýrir landsteinana.
Ég þekki ekki einn sem skuldar
ekki krónu! Allt of margir snillingar
sitja fastir á Fróni að drukkna í
skuldum. Námslánin þurfa að vera
hærri, en þetta er samt besta líf í
heimi! Vera í nýju umhverfi og læra.
Ef kæri/a þú ert einn af þessum snill-
ingum - taktu þá eftir. Mörg Evr-
ópulandanna styrkja ungdóminn til
framhaldsnáms. Ráð er að pakka
saman ogyfirgefa eyjuna okkar góðu
og fá sér vinnu innan EES. Þar get-
urðu svo unnið og pikkað upp máfið
á einu ári. Að því loknu ertu kominn
inn í kerfið. Það þýðir að þú nýtur
sömu réttinda og fólkið í landinu.
Sem þýðir í mörgum löndum að þú
átt rétt á styrk til náms frá viðkom-
andi ifld. Eftir árið ertu svo kominn
með menninguna og málið á hreint
og getur skellt þér í skóla á kostnað
viðkomandi lands. Þú hefúr lagt þitt
í þjóðarbúið - með sköttunum þín-
um á heilu ári og getur eytt hverri
krónu nánast í landinu líka. En til
baka færðu fullt háskólanám, nánast
í vasann! Ef þú stendur þína pligt og
nærð öllu, þarftu ekki einu sinni að
endurgreiða ríkinu!
„Frítt háskólanám." Þetta er eina
leiðin sem ég sé fyiir skuldahalana
okkar sem þrá að komast utan í
nám. Vinna erlendis og greiða skuld-
imar að utan. Lifa helmingi ódýrara
lffi og betra fyrir vikið! Hin Ieiðin,
námslán frá LÍN - sem þarf að
hækka svo ég og fleiri getum hætt að
hækka yfirdráttinn okkar - er ekki
jafn snjöll, en sæt.
Evrópusambandið endurgreiðir
LÍN-fólkinu svo 80% af skólagjöld-
um innan, jú auðvitað - Evrópu.
Góður dfll. Þá er bara að drífa sig.
Dansgólfið þar sem JohnTravolta sveiflaði sér til heimsfrægðar í myndinni Saturday
Night Fever verður boðið upp. Búið er að rífa næturklúbbinn þar sem gólfið var stað-
sett en eigandi klúbbsins, Jay Rizzo, bjargaði gólíinu frá því að enda á haugunum.
í mál við
Connery
Nágrannar
leikarans Seans
Connery á Man-
hattan hafa höfðað skaða-
bótamál gegn honum og
krefjast 1,7 milljarða króna.
Um er að ræða íbúð sem
sonur Seans á en nágrann-
arnir segja að gamfi maður-
inn hafi breytt lífi þeirra í
helvíti með því að spila há-
væra tónfist í íbúðinni allan
sólarhringinn. Einnig er
Sean lýst sem óforskömm-
uðum, feitum og gömlum
frethólki af nágrönnunum
sem greinilega þola ekki
leikarann. Sjálfur segir
Sean að máfið sé hreint
bull frá upphafi til enda þar
sem hann noti íbúðina afar
sjaldan.
Mætirekki
í giftinguna
Ekkert lát er á vand-
ræðaganginum í kringum
brúðkaup þeirra Karls
Bretaprins og Camillu
Parker Bowles því nú
hefur Elísabet Breta-
drottning, móðir brúð-
gumans, sagt að hún
muni ekki mæta í
giftingarathöfhina.
Ástæðan er sögð vera
óskir þeirra Karls og
Camillu um rólegt og
hógvært brúðkaup. Hins-
vegar telja allir að með
þessu sé Efi'sabet að lýsa
óánægju sinni með ráða-
haginn. Þetta er í fyrsta
sinn í 142 ár sem þjóðhöfð-
ingi Bretlands er ekki við-
staddur giftingu barna
sinna. Viktoría drottning
kom ekki í giftingu Edvards
sonar síns og Alexöndru
prinsessu árið 1863 þar
sem hún var þá nýbúin að
missa Albert, mann sinn.
Allir vilja diskógðlfið í
Saturday Night Fever
Blikkandi diskógdlf í Brooklyn sem John Travolta gerði frægt í
kvikmyndinni Saturday Night Fever fer á uppboð í vor. Myndin
og dansgólfið komu af stað diskóæðinu svokallaða á áttunda
áratugnum.
Búið er að rífa næturklúbbinn
þar sem gólfið var staðsett en eig-
andi klúbbsins, Jay Rizzo, bjargaði
gólfinu frá því að enda á haugunum.
Og nú lítur út fýrir að hann þéni dá-
góðan skilding því svo virðist sem
allir, og frændur þeirra líka, vilji
eignast gólfið.
Gólfið sem samanstendur af 300
blikkandi ljósum í öllum regnbog-
ans litum undir perspex-yfirborði
var eitt aðalaðdráttarafl 2001 Odyss-
ey-klúbbsins eftir að sýningar hófúst
á myndinni Saturday Night Fever.
Nafni klúbbsins var breytt í Spectr-
um árið 1987 en fram á þennan dag
hefur mikill fjöldi ferðamanna, víða
að úr heiminum, komið við í
klúbbnum bara til að sjá gólfið og
kannski sveifla sér svoldið á því í
leiðinni.
Mikill áhugi
Það er minjagripafyrirtækið
Profiles in History í Hollywood sem
sjá mun um söluna á gólfinu. Safn-
arar frá öllum heimshomum hafa
sent inn fyrirspumir um uppboðið á
gólfinu sem áformað er í aprfl. Upp-
boðsstríð er þegar hafið og er verðið
á gólfinu þegar komið í 80.000 doll-
ara, eða tæpar 5 milljónir króna.
„Við höfum fengið fyrirspumir frá
söfnurum sem vilja eignast gólfið
fyrir sig sjálfa og frá eigendum næt-
urklúbba sem skilja viðskiptalegt
gildi þess að hafa þetta gólf á sínum
stað,“ segir Brian Chanes sölustjóri
Profiles in History.
Óskarstilnefning
í myndinni Saturday Night Fever
sem gerð var 1977 leikur John Trav-
olta hinn 19 ára gamla Tony Man-
ero. Hann lifir leiðinlegu lífi sem af-
greiðslumaður í málningavömbúð í
Broolyn. Hins vegar gleymir hann
öllum leiðindunum og daglega
amstrinu hvert laugardagskvöld er
hann stígur fram á dansgólfið og er
konungur þess um stund. Travolta
var tilnefndur til óskarsverðlauna
fyrir hlutverk sitt, myndin halaði inn
tæplega 150 milljónir dollara og
plata með lögunum í myndinni
seldist í um 30 milljónum eintaka og
kom hljómsveitinni Bee Gees vel og
vandlega á heimskortið. Platan fékk
Grammy-verðlaunin sem plata árs-
ins 1978.
Varð að bjarga því
Spectmm-klúbburinn verður
rifinn eftir að fasteignafyrirtæki
keypti lóðina undir íbúðablokkir.
Jay Rizzo, eigandi klúbbsins, segir
hins vegar að hann hafi fundið sig
knúinn til að bjarga gólfinu. „í
gegnum árin hafa þúsundir manna
komið hingað bara til þess að skoða
gólfið," segir Rizzo. „Það var gífur-
lega vinsælt meðal ferðamanna,
einkum frá Evrópu."
Klámhermir
fyrir tölvur
Klámstjaman Jenna
J ameson er dugleg við
að finna nýjar leiðir til
að þéna peninga á
kroppi sínum. Það nýj-
asta er tölvuspilið
„Virtual Jenna" sem er
nokkurskonar klám-
hermir fyrir tölvur.
Með spilinu geta allir, sem
orðnir em 18 ára, prófað að
vera klámstjama á netinu,
það er klámstjaman Jenna
Jameson. Viðkomandi getur
framleitt og ekki hvað síst
leikið í klámmynd með spil-
inu. Og ef marka má kynn-
ingu á spilinu á heimasíðu
Jennu er grafíkin þannig að
ekkert er skilið eftir handa
ímyndunaraflinu.
Ekkert múður í Alabama
Bannað að selja
kynlífsleikföng
Dómstóll í fylkinu Alabama í
Bandaríkjunum hefur ákveðið að
það sé ólöglegt að selja hjálpartæki
ástarlífsins í fylkinu. Og ef bannið er
brotið kostar það fangelsisvist eða
milljón krónur í sekt. Þeir sem em
gripnir með titrara eða uppblásna
dúkku í fórum sínum í Alabama em
því í slæmum málum.
Lög sem banna sölu á kynlífsleik-
föngum vom samþykkt í fylkinu árið
1998 en hópur fólks áfrýjaði þeirra
ákvörðun til dómstóla þar sem fólk-
ið taldi að það ætti rétt á að njóta
heilbrigðs kynlífs. Lögfræðingar frá
Stranglega bannað Þaökostar
fangelsisvist eöa milljón króna sekt
aö selja svona pakka I Alabama.
Bandarísku mannréttindasamtök-
unum sótm málið fyrir dómstólnum
og helsm rök þeirra vom að réttur
fólksins til þess arna væri bundinn í
stjómarskrá landsins. En áfrýjunar-
dómstólfinn í Alabama var ekki á
sama máli og staðfesti lögin frá
1998. Rannsóknir sýna að um 20%
bandarískra kvenna nota hjálpar-
tæki ástarlífsins að staðaldri. Tvö
önnur fylki banna einnig kynlífsleik-
föng en það em Georgia og Texas.
Búin að fá nóg af röngum veðurspám
Veðurfræðingar sekt-
aðir fyrir rangar spár
Veðurfræðingar í
Moskvu hafa fengið
þau skilaboð frá
borgaryfirvöldum að í
hvert sinn sem þeir
setja fram rangar
veðurspár muni
þeir verða sektaðir.
Borgaryfirvöld em
búin að fá nóg af
mgfinu í veður-
fræðingum sínum en það sem fyllti
mælinn var spá Ion Poiana sem sagði
að hlýjar lægðir væm á leið til borgar-
innar en í reynd kom eitt mesta frost
Snjór í Moskvu Sumir láta veöriö
ekkert á sig fá eins og þessi maöur
sem skutlar sér tilsunds leinum af
aimenningsgöröum Moskvuborgar.
vetrarins með allt að mín-
us 36 gráðu kulda. Ion var
ekki sektaður heldur rek-
inn úr starfi.
Juri Luschkov borgar-
stjóri Moskvu segir að
veðurfræðingar í borg-
inni og næsta nágrenni
verði látnir bera ábyrgð
á því ef rangar veður-
spár þeirra muni leiða
til fjárhagstjóns fyrir borgina. Oft
hafi komið fyrir að veðurfræðingar
hafi ekki gefið aðvörun um mikla
snjókomu.