Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005
Sport DV
Fimm leikir á dagskrá Intersport-deildarinnar í körfubolta 1 kvöld:
\ Bollaleggingar Einars Bollasonar
KR - ÍR
Snæfell - Fjölnir
Hamar/Selfoss - Skallagrímur - Njarðvík -
Fimm leikir eru á dagskrá Intersport-deildarinnar í körfubolta í kvöld og geta Keflvíkingar
hampað deildarmeistaratitiinum með sigri á Skallagrími í Borgarnesi. DV Sport fékk Einar
Bollason, hinn kunna körfuboltaspeking, til að kortleggja leiki kvöldsins og telur hann afar
líklegt að lið Keflavíkur tryggi sér þar með heimavallarrétt út alla úrslitakeppnina í kvöld.
Brenton Birmingham „Hann er algjör
lykilmaður í liði Njarðvíkur og sá sem ræður því
hvort að liðið verði ítitilbaráttunni,"segir Einar.
„Keflvíkingar eru með gríðarlega
sterkt lið og er það lið sem öll önnur
lið munu forðast að mæta í úr-
slitakeppninni,“ sagði Einar í sam-
tali við DV Sport í gær.
Með umferðinni í kvöld eru þrjár
umferðir eftir af deildarkeppninni.
Línurnar í efri helmingnum eru
nokkuð skýrar og er mesta spennan
fólgin í því hvort það verði Njarðvík
eða Snæfell sem nær öðru sæti
deildarinnar.
Mesta spennan er engu að síður í
kringum neðstu sætin sem gefa sæti
í úrslitakeppninni. KR-ingar eru í
góðri stöðu í sjöunda deildarinnar
og munu með sigri gegn ÍR á
morgun fara langt með að tryggja sig
í úrslitakeppninni. Keppnin um
áttunda sætið er galopin og eiga
liðin Grindavík, Hamar/Selfoss og
Haukar í raun öll jafna möguleika.
Demetric Shaw Hefur
spilað frábærlega eftirað
hann gekk tilliðs við Hauka
fyrir skömmu og segir Einar
Bollason að Sævar
Haraldsson njótigóðs af
þvi að hafa Shaw sér við
hhð.„Saman mynda þeir
besta bakvarðarpar í
deildinni, * segir Einar.
Allir forðast
Keflmk
KR eru liklegra því að:
KR-ingar eru með gjörbreytt lið
eftir að Aaron Harper gekk til liðs
við þá. Og það er mjög athyglis-
vert að með komu Harpers hefur
Cameron Echol blómstraö hjá KR
og þessir tveir saman eru illviðráð-
anlegir fyrir hvaða andstæðinga
sem er.
VonÍRfelsti:
þeirri feykilega öflugu vörn sem
liðið getur spilað. EfÍR nær upp
þeirri stemningu sem einkennir
liðið á köflum eru KR-ingar I
vondum málum.
Niðurstaða:
KR-ingar hafa loksins fengið topp-
leikmann ÍAaron Harpersem ger-
ir, líkt og Shaw hjá Haukum,
alla leikmenn I kringum sig
betri. Liðsmenn ÍR hafa sann-
að að liðið er dúndurlið og
unnu KR-inga mjög sann- .
gjarnt I Seljaskóla fyrr í I 4
vetur. Þeir eru ekki lengur Y jjjj
þetta upp/niöur lið sem k
þeir voru. Gæti orðið
mjög spenndandi leik-
urenégheldað
heimavöllurinn geri ?:
útslagið hér.
Fylgist með:
Hvernig leikur KR hefur gjör-
breyst með tilkomu Aarons
Harper. Þetta er í raun alveg
nýttlið.
Snæfell eru liklegra því að:
liðsmenn eru á heimavelli og hafa
þannig leikmenn að þeirsætta sig
ekki við að tapa tveimur leikjum í
röð. Fjölnismenn er i sárum eftir
að hafa tapað bikarúrslitunum og
ég held að það verði erfitt fyrir þá
að ná sér aftur á strik.
Von Fjölnis felstí:
því að hinir fjölmörgu ungu, efni-
legu og íslensku leikmenn nái sér
á strik. Þeir verða að láta meira tii
sín taka efFjölni á að takast þetta.
Þessir þrír útlendingar hjá Fjölni
geta ekki borið liðið á herðum sér
heilt mót. Það bara gengur ekki.
Niðurstaða:
Bæði þessi lið töpuðu í síðustu
umferð og má gera ráð fyrir að
þau bæði ætli sér að sýna það og
sanna að þau séu miklu betri. Þess
vegna verður þetta örugglega
mikill baráttuleikur. En heima-
völlurinn gerir útslagið og
Snæfell vinnur á endanum.
Fylgist með:
þvísem verður án efa rosa-
legt einvígi á milli Hlyns
Bæringssonar hjá Snæfell
og Darrel Flake hjá Fjölni.
Efég þekki Hlyn rétt á hann eftir
að vera brjálaður eftir tapið gegn
[R i síðustu viku og það verður
ekkert„elsku mamma" fyrir Flake í
baráttunni um fráköstin.
Haukar
Keflavík
Haukar eru liklegri því að:
þeir hafa á að skipa þvi sem ég tel
vera besta bakvarðarpar landsins,
þeim Sævari Haraldssyni og Dem-
etric Shaw. Mikið hefur mætt á
Sævari í vetur en nú er hann kom-
inn með mann við hliðina á sér
sem tekurafhonum mikið álag.
Það verður erfitt að stoppa þessa
tvo menn.
Von Hamars/Selfoss felst í:
gríðarlega sterkum heimavelli þar
sem Hamar/Selfoss er ekki þekkt
fyrirað tapa mörgum leikjum.
Niðurstaða:
Leikur sem gæti orðið mjög
spenndandi en Haukar eru
á mikilli siglingu og hafa
bætt sinn leik mikið með
komu nýja Kanans. Hann
mun reynast ofstór biti
fyrir Hamar
Fylgist með:
Demetric
Shaw, nýj-
um útlend-
ingi Hauka.
Hannerótrú-
lega skemmtilegur leik-
maður og skorar ekki
bara mikiö heldur er
líka hann mikill liðs-
maðurog geriralla
samherja l kring-
um sig betri.
Keflavík er liklegri því að:
Liðið er einfaldlega með besta
leikmannahópinn í deildinni og
þetta er besta liðið á landinu eins
og staðan er I dag.
Von Skallagríms felst í:
sterkum heimavelli, íþví að sjálfs-
traustið eftir frábæran sigur á
Fjölni í síðustu umferð sé enn til
staðar og að stöðva þriggja stiga
skyttur Keflavíkur.
Niðurstaða:
Liðsmenn Keflavíkur búa yfir mun
meiri reynslu og það skilar liðinu
sigri íþessum leik. Þeir hafa
breiddina og efeinn leikmað-
ur finnur sig ekki tekur ann-
ar einfaldlega afskarið á
meðan leikurSkallagríms
ræðst að miklu leyti af
dagsformi Cliftons Cook.
Fylgist með:
Clifton Cook og einvígi hans
við Sverri Þór Sverrisson. Ef
að Cook nær sér á strik
mega Keflvíkingar vara sig
en Sverrir er frábær varnar-
maður og gæti haldið hon-
um niðri.
Tindastóll
Njarðvik er líklegri þvi að:
Lið Njarðvíkur er einfaldlega
miklu sterkara en lið Tindastóls.
Auk þess eru þeir nýkrýndir bikar-
meistarar og það gæti loksins
komið liðinu á flug.
Von Tindastóls felstí:
því að kraftaverk eigi sérstað í
Ljónagryfjunni. Ég sé Tindastól
ekki eiga neinn séns.
Niðurstaða:
Njarðvikingar misstíga sig ekki og
það er nánast formsatriði fyrir lið-
ið að klára þennan leik. Öruggur
heimasigur hér þrátt fyrir að liðið
hafi valdið mér miklum vonbrigð-
um í vetur.
Fylgist með:
i Brenton Birmingham hjá Njarvík.
Hann er að finna sitt gamla
form á ný eftir að hafa verið í
vandræðum framan afvetri.
Hann er algjör lykilmaður í
bessu liði, mikill persónuleiki
og maðurinn sem kemur til
með að ráða því hvort að
Njarðvík hampi meistaratitl-
inum I vor eða ekki. Það er
ekkert flóknara en það.