Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Page 21
DV Sport
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 21
Campbell ekkl
með í seinni
leiknum
Útlit er fyrir aö Sol Campbell,
varnarmaðurinn sterki hjá
Arsenal, veröi ekki með Úðinu í
seinni leiknum gegn Bayem
Miinchen í sextán liða úrslitum
meistaradeildarinnar eftir tvær
vikur. Campbell er meiddur á
ökkla og Arsene Wenger, knatt
spyrnustjóri Arsenal, viður-
kenndi fýrir íjölmiðlamönnum í
gær að það væri ólíklegt að
Campbell yrði með. „Það er of
snemmt að segja til um það núna
hvort hann verði klár í slaginn en
ég hef ekki mikla trú á þvf að
hann verði tilbúinn," sagði
Wenger sem þarf svo sannarlega
á Campbell að halda miðað við
irammistöðu varnarmanna liðs
ins í Þýskalandi á þriðjudaginn.
Aldrei
svona
auðvelt
Jens Lehmann, hinn þyski
markvörður Arsenal, gekk
snej'ptur af velli eftir tapið gegn
Bayem Múnchen á þriðjudags-
kvöldið. Lehmann mætti Oliver
Kahn, keppinaut sínum um
markv'aróarstööuna hjá þýska
landsliðinu og er óhætt að scgja
að Kahn hafi haft betur í þetta
skipti. „Ég veit það eitt að við
gáfiim öll þrjú mörkin. Ég man
ekki eftir því þann tíma sem ég
hef verið héma að við höfúm gef-
___ ið svona auðveíd
-■ . mörkenstund-
umgeristþað.
V % Það hefði verið
(íí \ aö
|H komast
/ 1 áframefvið
f\ ! jKjtj 5 heföum
' ‘Úf* htapað 3-0
- enmarkið
rC-* ■ semvið
1I-«.. - skoruöum
j gefur okk-
I ur von.
! ,Þaö erailt
?!*■ > hægt
fc 1 m m ,t-------nuna,
’ W ,'s sagðiLeh-
sP mann.
jEcá
irl
Liverpool vann nokkuð óvæntan en öruggan sigur á Lever-
kusen í sextán liða úrslitum meistaradeildarinnar þrátt fyrir
að vera án síns besta manns, Stevens Gerrard.
Líf í Liverpool
án Gerrards
Liverpool tók stórt skref í átt að sæti í átta
liða úrslitum meistaradeildarinnar með
því að leggja Bayer Leverkusen að velli,
3-1, á Anfield í fyrri leik liðanna í sex-
tán liða úrslitum á þriðju-
dagskvöldið.
„Efeinhver hefði sagt
við mig fyrir leikinn
Æ aðvið myndum vinna
3-1 þáhefðiégþegið
það meðþökkum."
Staða
Liverpool hefði
getað verið enn
betri því eftir að þýski
miðjumaðurinn Dietmar
Hamann hafði aukið muninn í 3-
0 í leiknum þá urðu mistök
pólska markvarðarins Jerzys
Dudek til þess að brasilíski
sóknarmaðurinn Franca náði
að minnka muninn í 3-1 á
síðustu mínútu leiksins og gefa
þýska liðinu von.
„Ef einhver hefði sagt við mig
fyrir leikinn að við myndum
vinna 3-1 þá hefði ég þegið það
méð þökkum. Miðað við hvernig
leikurinn þróaðist hefði ég held-
ur viljað vinna 2-0 og 3-0 hefðu
verið frábær úrslit. Leikmenn
verða að gera sér grein fyrir því
að þeir þurfa að halda einbeit-
ingu allt til síðustu sekúndu
leiksins,“ sagði Rafael Benitez,
knattspyrnustjóri Liver-
pool, eftir leikinn.
Hann horfði
upp á Luis
Garcia og John
Luis Garcia Sést
hér fagna marki slnu
fyrir Liverpool gegn Bayer
Leverkusen á þriöjudaginn.
Reuters
Dudek ósáttur
við mistðk sin
Pólski markvöröurinn
Jerzy Dudek, sem leikur
með Liverpool, var ósáttur
við sjálfan sig eftir leik
Liverpool og Bayer
Leverkusen í sextán liöa
úrslitum meistaradeildar-
innar á Anfield Road á
þriðjudagskvöldið. Dudek
gerði hrapaleg mistök sem
gerðu brasilíska sóknar-
manninum Franca kleift að
skora eina mark þýska
Uðsins og gera stöðu Uðsins
betri. Dudek missti laust
skot Búlgarans Dimitar
Berbatov frá sér og Franca
fylgdi á eftir. „Ég held að
skotiö hafi kornið frá víta-
teignum. Boltinn skoppaði
fyrir framan mig og fór í
öxlina á mér. Þetta var
fúllkomið fyrir framherja til
að fylgja á eftír og ná
frákastinu. Þetta er alltaf
erfitt fyrir markverði. Ég er
mjög pirraður yfir þessum
mistökum en verð aö halda
haus. Við unnum leikinn og
það er mikilvægt," sagði
Dudek.
Ame Riise koma
Liverpool í 2-0 áður
en Hamann bætti við
þriðja markinu. Mark
Leverkusen var reiðarslag
en Benitez vildi ekki kenna
markverðinum Dudek um það.
Kenni Dudek ekki um
„Ég vil ekki kenna Jerzey um
markið. Hann spilað mjög vel í
leiknum, varði tvívegis frábærlega
og ég er mjög ánægður með hann."
Það hlýtur að gleðja Benitez mik-
ið að Liverpool skyldi vinna þennan
góða sigur án fyrirliða síns og besta
manns, Stevens Gerrards, en hann
var í leikbanni. Gerrard verður með í
seinni leiknum og það er Benitez
ánægður með.
„Steven Gerrard er lykilmaður
hjá okkur. Þegar hann spilar þá gerir
hann aðra leikmenn í kringum sig
betri. Hann er einn af bestu leik-
mönnum heims en ég þarf líka að
hafa lið sem snýst ekki í kringum
eúin leikmann. Allir þeir ellefu leik- j
menn sem eru inni á vellinuml
hverju sinni verða að standa sig."
PSV bar sigurorð, 1-0, af Mónakó í gær
Hlddink vill fleiri mörk
frá sínum mönnum
Staða PSV Eindhoven er þokka-
leg fyrir seinni leikinn gegn Mónakó
í sextán liða úrslitum meistaradeild-
arinnar eftir sigur, 1-0, í fyrri leik lið-
anna í Hollandi á þriðjudagskvöldið.
Það var brasilíski sóknarmaður-
inn Alex sem skoraði sigurmarkið
strax á níundu mínútu leiksins. Gus
Hiddink, þjálfari PSV, ætlar þó ekki
að leggjast í skotgrafirnar í seinni
leiknum í Frakklandi og segist vilja
fleiri mörk í þeim leik.
„Seinni leikurinn ræður úrslitum
en ég get sagt ykkur að PSV mun ekki
spila varnarleik. Við ætlum okkur að
skora mörk í Frakklandi. Við erum í
ágætri stöðu en við verðum að skora
fleiri mörk til að komast áfram,"
sagði Hiddink sem var þokkalega
ánægður með spilamennsku sinna
manna.
„Við byrjuðum leikinn vel og
vorum sterkari í fýrri hálfleik en
leikmenn Mónakó komust meira
inn í leikinn í þeim síðari."
Didier Deschamps, þjálfari
Mónakó, sagði sína menn ekki hafa
spilað sinn besta leik.
„Við áttum í vandræðum með að
skapa pláss fyrir sóknarmenn okkar.
Það er alveg ljóst að við verðum að
spila betur í seinni leiknum ef við
ætlum að komast áfram. PSV er með
gott lið en ég veit að við eigum mikið
inni,“ sagði Deschamps.
Mark van Bommel, fyrirliði PSV
Eindhoven, sagði að hann væri
ánægður með sigurinn og að liðið
gæti slakað örlítið á fyrir seinni leik
liðanna í Frakklandi.
„Það er alltaf upplifun að spila
leiki í meistaradeildinni. Andrúms-
loftið á leikjunum er alltaf öðruvísi,
leikirnir eru stærri og meira í húfi.
Við ætluðum okkur að skora annað
mark en vissum að við þurftum að
hafa varann á því að Mónakó-liðið
er stórhættulegt í skyndisóknum,"
sagði van Bommel.