Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Qupperneq 11
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ2005 11
Ferðamenn á
malarvegi
Bíll valt á Útnesvegi
gegnt Saxhóli í þjóðgarð-
inum á Snæ-
fellsnesi í
fyrradag. Að
sögn lögregl-
unnar í Ólafs-
vík tognaði ökumaðurinn
lítillega á hendi og fékk
hann og þeir sem með
honum voru í bílnum að
fara heim að lokinni lækn-
isskoðun. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar var
aðdragandi slyssins sá að
ökumaður, sem er erlendur
ferðamaður, gerði sér ekki
grein fyrir því að hann ók
út á malarveg þegar mal-
bikið endaði.
Ofsahraði
í Kópavogi
Ungur maður var hirt-
ur af lögreglunni í Kópa-
vogi á 150 kílómetra
hraða á Reykjanesbraut
nálægt Smáralindinni.
Atvikið átti sér stað laust
eftir miðnætti í fyrrinótt á
vegarkafla þar sem há-
markshraði er 70 kiló-
metrar. Ökumaðurinn
má búast við sviptingu
ökuréttinduna í þrjá
mánuði, samkvæmt
reglugerð dómsmála-
ráðuneytisins, auk 70
þúsund króna sektar og
fjögurra punkta.
Vilja bíó í
Mosfellsbæ
Á laugardaginn var hald-
ið íbúaþing í Mosfellsbæ
undir yfirskriftinni „Gerum
gott samfélag betra." Alls
sóttu um 250 manns þing-
ið, eða um 3,5 prósent íbúa
bæjarins. Mark-
mið íbúaþingsins
var að veita bæjar-
búum tækifæri til
að tjá sig um það
sem er gott og
finna leiðir til að
bæta samfélagið. Lýðræðis-
hópur unga fólksins sagði
almennt gott að búa í
bænum en hins vegar
skyldi byggja kvikmynda-
hús í bænum hið fyrsta.
Hvert áfalliö á fætur öðru ríður yfir Dalshraun 13 í Hafnarfirði. Síðustu níu mán-
uðina hefur kviknað þar í, maður hefur verið stunginn með hnífi og nýverið réð-
ust fimm manns þangað inn og börðu íbúa.
a
Það má með sanni segja að Dalshraun 13 í Hafnarfirði hafi ekki
fært íbúum sínum gæfu. Síðustu níu mánuði hefur húsbruni,
hnífsstunga og alvarleg líkamsárás dunið yfir íbúa hússins og
svo virðist sem bölvun hvíli á hverjum þeim sem þar býr. Spurn-
ingar vakna um hvað gerist næst og hver verður fdrnarlambið.
Á Dalshrauni 13 eru mörg fyrir-
tæki sem hafa dafnað vel og hafa
sem betur fer sloppið við ógæfu
hússins. En á efri hæð þess eru her-
bergi sem leigð eru út og það er í
þeim sem ógæfan hefur dunið yfir á
síðustu mánuðum og ekkert lát virð-
ist vera á. Það virðist aðeins tíma-
spurning hvenær næsta áfall mun
ríða yfir.
Bruni í september
Aðfararnótt 15. september síð-
astliðins kom upp eldur í sjónvarps-
tæki í einu herberginu þar sem tveir
einstaklingar voru. Sjö í viðbót
þurftu að yfirgefa vistarverur sínar á
meðan slökkviliðið slökkti eldinn.
Einn íbúanna var fluttur á sjúkrahús
með reykeitrun, en mildi þótti að
ekki urðu fleiri og alvarlegri meiðsl á
fólki. Töluverðar reykskemmdir
urðu á húsinu auk þess sem eldur-
inn olli skaða.
Hnífsstunga
Þann annan maí síðastliðinn
lenti tveimur mönnum saman í
stigagangi hússins. Mennimir
þekktust lítillega og bjó annar þeirra
í húsinu. Átökin enduðu þannig að
gesturinn dró upp hníf og lagði til
íbúa hússins. Hann var fluttur á
slysadeild en meiddist sem betur fer
óverulega. Málið er enn í rannsókn
hjá Lögreglunni í Hafnarfirði en telja
má mildi að ekki fór verr í þessu til-
viki.
Líkamsárás með stálröri
Nýjasta atvikið í blóðugri sögu
Dalshrauns 13 varð á laugardag þegar
fimm menn réðust inn í húsið og
lögðu herbergi eins leigjandans í rúst
og skildu ekkert eftir heilt nema sjón-
varpið. Þeir komu síðan aftur um
kvöldmatarleytið vopnaðir stálrömm
og öðrum bareflum og lömdu íbúann
,sem þeir höfðu leitað að fyrr um dag-
inn, til óbóta. Nágrannar sem urðu
vitni að atburðinum segja að ódæðis-
mennirnir hefðu drepið manninn
hefðu þeir ekki verið stöðvaðir.
Árásarmennirnir vom allir á fimm-
tugsaldri og litu ófgæfulega út sam-
kvæmt sjónarvottum. Lögreglan fann
sprautur og nálar á vettvangi sem þeir
telja að árásarmennimir hafi átt.
Rýrir verðgildi hússins
Eigandi hússins, Magnús Magnús-
son rafvirkjameistari, vildi ekkert tjá
sig um málið við blaðamann DV og
taldi að frétt af líkamsárásinni síðasta
laugardag hefði lækkað verðgildi
hússins um margar milljónir. Magnús
hefur aðeins átt herbergi hússins, þar
sem áföllin hafa dunið yfir, í um tvo
mánuði.
johann@dv.is
Dalshraun 13 Ibúðir d efri hæð
hússins eru vettvangur hvers
áfaiisins á fætur öðru og virðist
sem bölvun hvíliá þeim.
Sláturhús Stigagangurinn á Dals-
hrauni 13 leit út eins og sláturhús
eftir að fimm menn iömdu íbúa til
óbóta síðastliðinn laugardag.
Hús úfallanna
Dalsnraun
Skoðaðu bílana í smáauglýsingum Fréttablaðslns.
Skoðaðu bílana á www.brimborg.is. Komdu í Brimborg Reykjavík, Akureyri.
q,
brimborg
Öruggur staður til ad vera á
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.brimborg.is