Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 2. JÚNI2005
Sport DV
Makedóni á
leiðinni til
Skallagríms
Borgnesingar komu mjög á
óvart í fyrra með góöu gengi sínu
í úrvalsdeildinni og komust í úr-
slitakeppnina. Þeir ætla greini-
lega ekki að láta þar við sitja og
hafa bætt við sig nokkrum leik-
mönnum fyrir átökin næsta vet-
ur. Þegar hefur liðið samið við þá
Pétur Má Sigurðsson, sem kom
frá KFÍ og Axel Kárason frá
Tindastóli, en nýjasti liösmaður
Borgnesinga er makedónski
landsliðsmaðurinn Dimitar Kar-
djovski, sem er 22 ára gamall
leikstjómandi.
Valur Ingimundarson, þjálfari
Borgnesinga, segist ánægður
með að vera búinn að landa leik-
stjómanda, en viðurkennir að
hann viti ekki mjög mikið um
hann. „Ég treysti mínum heim-
ildarmönnum fullkomlega og
það að þessi strákur skuli vera í
makedónska landsliðshópnum
em í sjálfu sér næg meömæli út
af fyrir sig, því Makedónar em
með nokkuð gott landslið. Þessi
strákur á að vera öflugur alhliða
leikmaður og ku geta spilað báö-
ar bakvarðarstöðumar. Ætli við
reynum svo ekki að fá okkur öfl-
ugan Kana til að spila undir körf-
unni og þá erum við að verða
komnir í ágætis mál með hóp-
inn, þótt auðvitað
séu ailir alltaf
velkomnir til
okkar,“ sagöi Val-
ur í samtali við
DV-Sport í
gær.
baldur@dv.is
m
Forráðamenn Real Madrid hafa ákveðið að láta einn sinn dáð-
asta leikmann, Luis Figo, fara frá félaginu.
Real sleppir Figo
Real Madrid leyfði í gær portúgalska vængmanninum Luis Figo
að fara frá félaginu án greiðslu að því er spænska dagblaðið
Marca greinir frá.
Framarar að
braggast
frski vamarmaðurinn Ross
McLynn hefur ekki leikið tvo síð-
ustu leiki Fram í Landsbanka-
deildinni vegna tognunar aftan í
læri. Hann er í meðhöndlun þessa
dagana en Ólafur Kristjánsson,
þjálfari liðsins, telur um 60% líkur
á þvl að hann verði með í næsta
leik. Eggert Stefánsson er allur að
koma til, hann var með á æfingu í
gær og er von á því að hann snúi
aftur um miðjan júní. Möguleiki er
á því að hann verði í hóp gegn ÍA f
næsta leik sem verður ll.júní, Iík-
legra er þó að hann verði til í leik-
inn gegn Fylki þann 16.júní. Þor-
björn Atli Sveinsson kemur líklega
aftur um svipað leyti og gæti leik-
ið í Árbænum. Lengra er í Selfyss-
inginn Ingólf Þórarinsson.
O Callaghan
farinn frá
Keflavík
Brian O'Callaghan, írski vam-
armaðiirinn sem leikið hefur með
Keflavík í Landsbankadeildinni nú
í upphafi móts, er á leið til síns
heima á ný og mun ekki spila ann-
an leik fyrir Suðumesjafélagið.
Ástæðan fýrir brottför O'Callagh-
an er sú að hefði hann spilað með
liðinu eftir 1. júní, daginn sem lok-
að var fyrir leikmannaskiptaglugg-
ann, hefði hann ekki getað spilað
nema hluta af næsta tímabili í
ensku knattspymunni. í tilkynn-
ingu sem birtist á heimasíðu
Keflavíkur kemur fram að
O'Callaghan hafi verið mjög
ánægður með reynslu sína af að
hafa spilað fyrir Keflavík.
Figo, sem er 32 ára gamall, átti
eitt ár eftir af samningi sínum við
Real en hefur ekki átt upp á pall-
borðið hjá Wanderley Luxemburgo,
sem ráðinn var til félagsins um mitt
tímabil, og oftar en ekki þurft að
verma varamannabekk liðsins.
„Ég var settur á bekkinn án nokk-
urra skýringa og þeir komu rnjög illa
fram við mig. Hann sagði mér aldrei
að ég væri ekki að fara að spila. Þessi
framkoma þeirra hefur sært stolt
mitt," sagði Figo í samtali við Marca.
Ljóst þykir að þessi fyrmm knatt-
spyrnumaður Evrópu mun ekki
þurfa að þola skort á atvinnutilboð-
um í framhaldi af brotthvarfinu frá
Real og er talið liklegast að leikmað-
urinn láti gamlan draum rætast með
því að spreyta sig í ensku úrvals-
deildinni. Lið á borð við Man.Utd.
Liverpool, Middlesbrough, Totten-
ham og jafnvel Everton voru öll
nefnd til sögunnar í gær sem líkleg-
ur áfangastaður Figos í sumar.
Forráðamenn Real hafa enn ekki
fengist til að staðfesta skrif Marca en
Arrigo Sacchi, yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá félaginu, lét hafa
eftir sér nýlega að framtíð Figos hjá
félaginu væri undir honum sjálfum
komin.
„Ég veit ekki hvort hann verður
áfram hjá okkur. Ég vona að hann
verði áffam því hann er frábær leik-
maður og fagmaður fram í fingur-
góma. En ef hann heldur áffarn að
svekkja sjálfan sig á því að fá ekki að
spila eins mikið og hann vill verður
það hvorki honum til framdráttar,
né liðinu," sagði Sacchi.
Figo var búinn að vera hjá Real
Madrid í fimm ár, eða allt frá því að
hann var seldur frá Barcelona árið
2000 fyrir metfé, 37 milljónir punda.
Luis Figo Hefur ekki
náð sérástrikmeö
Real á tímabilinu en
átti þó llklega ekki
von á þvi að vera
leysturundan
samningi.
Michael Owen fór á kostum.
Hann er einn sá
besti í heiminum
„Þessi leikur var ekk-
ert nýnæmi fyrir
Owen, hann var bara
hann sjálfur."
Englendingar unnu góðan 3-2
sigur á sprækum Kólumbíumönn-
um í síðari æfingaleik sfnum í
B andaríkj unum f fyrrakvöld, en liðið
hafði áður unnið heimamenn í
Chicago. Það var Michael Owen sem
stal senunni f leiknum og skoraði
þrennu fyrir Englendinga, sfna
fyrstu síðan hann skoraði þijú mörk
í 5-1 sigri liðsins á Þjóðveijum árið
2001.
Sven-Göran Eriksson var hæst-
ánægður með enska liðið í leiknum
og raunar á mótinu öllu, ekki síst
vegna mikilla forfalla í hópnum. ÖU
þessi forföll gerðu honum kleift að
prófa unga leikmenn sem hafa verið
að banka á landsliðsdyrnar undan-
farið og nokkrir þessara leikmanna
eiga að sögn þjálfarans, ágæta
möguleika á að komast með á HM í
Þýskalandi á næsta ári.
„Ég er mjög ánægður með
þessa ferð hingað til Banda-
ríkjanna og við getum ver-
ið mjög sáttir að ná að
vinna tvo leiki í annari
heimsálfu með ungt og
óreynt lið,“ sagði sá
sænski.
„Leikmenn eins og
Michael Carrick, Kieran Richard-
son, Jermaine Jenas, Zat Knight og
Peter Crouch komu einstaklega vel
út í leikjunum og þeir eiga allir
ágæta möguleika á að hljóta náð fyr-
ir mínum augum þegar kemur að
landsliðshópnum sem fer á HM,“
sagði Erilcsson, sem átti vart til orð
til að lýsa Michael Owen eftir þrenn-
una í fyrrakvöld.
„Það eru einfaldlega fáir leik-
menn í heiminum sem eru eins góð-
ir að klára færi og hann. Þessi leikur
var ekkert nýnæmi fyrir Owen, hann
var bara hann sjálfiir og raðaði inn
mörkunum eins og hann hefur verið
að gera fyrir England alla tíð. Það að
hann skuli vera orðinn einn af
markahæstu mönnum landsliðsins
aðeins 25 ára að aldri er ótrúlegt,"
sagði Eriksson.
baldur@dv.is
Markamaskina
MichaelOwen
stefnir hraðbyri að
markameti Bobbys
Charlton með
enska landsliðinu,