Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ2005 25
DV
Gottaf
'grillinu
Konurgeta líka
[ \
6. Sælkerinn Margrét Þóra Þor-
K láksdóttir mun halda uppi grill-
Mstemmingu I allt sumar.
w
„Ég lagði upp með það að hafa
uppskriftimar sem fjölbreyttastar
og með mörgum hráefnum," segir
Margrét Þóra Þorláksdóttir. Mar-
grét geíur út, í samtarfi við Vöku-
Helgafell, matreiðslubókina Gott af
grillinu og er þetta önnur bókin í
nýjum flokki matreiðslubóka en
fyrsta bókin, Sumarsalöt, kom út
fyrrasumar. í bókinni ætlar Mar-
grét að veita lesendum aðgang að
spennandi uppskriftum af ýmsu
tagi fyrir sumargrillið.
Margrét ætlar að brjóta upp
íslenskar hefðir í bókinni og vera
með „kosmópólítanismann" á
boðstólum ásamt fersku meðlæti.
„Ég legg mesta áherslu á kjötið en
er líka með eitthvað af fisk. Svo
kem ég með nýja tegundir af grill-
mat, sverðfisk, túnfisk, skötusel og
þannig. Ég hef alltaf verið spennt
fyrir stórum steikum með litlu
meðlæti. Bókin er unnin að hluta
til í samstarfi við Weber-grill. Þeir
eru að kynna mikið af nýjum grill-
aðferðum sem hafa ekki þekkst
áður hér á landi."
í bókinni er að finna matargerð
héðan og þaðan af jarðkringlunni.
Bók Margrétar Full afdýrindis
grillréttum. Nú geta allir grillaö.
„Þetta er ekki bara ítalskt eða
franskt heldur tælenskt og mikið
austurlenskt. Svo erum við með
mikið af forréttum og svoleiðis.“
Gera má ráð fyrir að matarilm-
urinn muni halda landsmönnum í
heljargreipum í allt sumar. Að lok-
um segir Margrét: „Ég er bara fyrst
og fremst áhugamanneskja um
mat. Mér finnst bæði gott að borða
hann og mjög gaman að gera til-
raunir í matargerð. Bara hreinrækt-
aður áhugamaður."
Ferskar fíkjur í hráskinku
200 g taleggio- eða mozzarella-
ostur
12 fíkjm, ferskar
12 sneiðar hráskinka
4 msk ólífuolía
11/2 msk balsamikedik
salt og nýmalaðm pipar
1 poki klettasalat
Skiptið ostinum í 12 sneiðar.
Skerið fíkjumar í tvennt. Setjið
eina sneið af ostinum á milli fíkju-
helminganna og pakkið þeim inn
í hráskinkuna.
Þeytið ólífuolíu og balsamik-
edik saman og kryddið með salti
og pipar. Penslið ólífuolfu á
skinkupakkana. Grillið þá óbeint
á meðalheitu grilli í 8-10 mínútur
eða þar til ostminn hefúr bráðn-
að.
Látið fíkjmnar á disk og hellið
ólífúolíu- og balsamikblöndunni
yfir. Berið fram strax. Gott að bera
fram með klettasalati.
Kálfafillet með jarðarberjasósu
600 g kálfafillet
marínering
1 msk óreganó, smátt saxað
1 msk ólífuolía
1 hvítlauksrif, marið
salt og nýmalaður pipar
jarðarberjasósa
1 boxjarðarber
1 msk balsamikedik
1 sítróna, safi og börkm
1/2 mskólífuolía
1- 2 tsksykur
2- 3 msk vorlaukm, smátt saxaður
Blandið saman öllu hráefninu í maríneringuna. Skerið kálfakjötið í
fernt og setjið bitana í mót. Hellið maríneringunni yfir og látið maríner-
ast í a.m.k. eina klukkustund.
Jarðarberjasósa
Setjið helminginn af jarðarberjunum í matvinnsluvél ásamt sítrónu-
berki og -safa, ólífuolíu, balsamikediki og sykri. Smakkið til með vorlauk,
salti og nýmöluðum pipar. Skerið afganginn af jarðarbeijunum í tvennt
og blandið þeim saman við maukið. Setjið í lítinn pott og látið suðuna
koma varlega upp.
Grillið kálfakjötið beint á heitu grilli í 6-8 mínútm - það fer eftir smekk
hvers og eins hversu mikið það á að vera steikt. Snúið einu sinni á meðan.
Setjið kjötið á fat og látið það standa í 5 mínútm áðm en það er borið
fram með heitri sósunni.
• Varast ber að nota gaffal þegar hráefni er snúið
á grillinu. Betra er að nota spaða eða tangir því
að annars er hætta á að dýrmætur safi leki úr.
• Ekki skal fylgja leiðbeiningum of nákvæmlega
þvf að tíminn fer alfarið eftir magni, þyngd og
lögun matarins. Jafnvel veðrið getur skipt máli.
Einnig þarf að taka tillit til þess að engin tvö grill
eru eins og því þarf hver og einn að taka mið af
sínu grilli.
® Fjarlægið sem mesta
fitu af hráefninu, þá
minnka líkurnará að
kvikni í matnum.
© Ef notuð eru grillkol er
mikilvægt að nota ekki of
mikið af grillolíu, það get-
ur komið af stað miklum
eldglæringum og stofnað
lífi og limum grillmeistar-
ans í hættu.Til eru sérstak
ir strompar sem kolin eru
sett ofan f þannig að ekki
er þörf á að nota grillolíu.
® Ekki láta hráefnin
snertast á grillfletinum
því að það kemur í veg
fyrir að allar hliðar eld-
ist jafnt.
Margrát Þóra Þoriáksdóttir er hreinræktuð áhugamanneskja um matreiðslu og allt sem við
kemur henni. Hún er að gefa út sína fyrstu matreiðsiubók og ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur heldur ryðst beint inn í karlaheim gasgrillanna.
Fimm heitir hlutir
sem þú verður að
eiga fyrir sumarið.
Óiifíuolíu-línan frá
L'Occitane er ómissandi
(vörunum eru öll stein-
efni og vítamfn sem lík-
aminn þarf á að halda f
sólinni. Þú verður silki-
mjúkog sæt f allt sumar.
iPod Shuffle
Lítið og sætt. Passar ofan í alla vasa
og það komast 240 lög á hann.
Fullkomið fyrir sumarsmellina.
Notaður sumarkjóll
í öllum regnbogans litum úr
Spútnik eða pantaður á eBay.
Vertu þorin og villt (sumar.
Þvf stærri því betri.
Appelsínugult naglalakk
Djarft og eldheitt (sumar.