Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2005, Page 29
Nafn. Jón Fanndal Þórðarsson. Aldur: 72 ára. Starf: Veitingamaður. DV Fréttir FIMMTDAGUR 2. JÚNÍ2005 29 Elísabet II er krýnd Á þessum degi árið 1953 var El- ísabet II formlega krýnd Englands- drottning. Um eitt þúsund fyrir- menna sóttu krýninguna sem var í Westminster Abbey og hundruðir milljóna manna fylgdust með beinni sjónvarpsútsendingu frá atburðin- um. Mikil rigning var í London þennan dag en það aftraði ekki milljónum áhorfenda að hylla ný- krýnda drottningu sína þegar hún ferðaðist fáeina kílómetra í gullnum vagni og heilsaði áhorfendum. Elísa- bet var aðeins 27 ára og ásamt henni þennan dag var eiginmaður hennar, hinn þrítugi hertogi af Edinborg, með í för. Næsm þremur mánuðum eyddi Elísabet að mestu í einangrun og syrgði nýlátínn föður sinn, Georg 6. Georg hafði verið krýndur konungur eftir að bróðir hans, Játvarður 8., lét krúnuna af hendi til þess að geta gengið að eiga hina ffáskildu, bandarísku, Wallis Simpson. Eh'sabet giftíst fjarskyldum frænda sínum, Philip Mountbatten, árið 1947. Phihp þessi var áður prins af Danmörku og Grikklandi en afsal- aði sér öllum títíum til að geta gifst I dag Fyrsta stóra Hollywood- kvikmyndaver ið, Universal, er stofnað. Ehsabetu. Hann var svo útneftidur hertogi af Edinborg kvöldið fýrir brúðkaup þeirra. Hjónin eignuðust Karl krónprins ári síðar. Elísabet var ásamt eiginmanni sínum í opinberri heimsókn í Kenía í febrúar 1952 þeg- ar fréttír bárust af láti konungsins. Ur bloggheimum Áfram Haukar „Það bættist ný mannleysa á Listann minn I kvöld: Ólafur Ragnarsson sem kallar sig dómara. Meöal af- glapa hans I þessum leik voru að gefa Norsaraaumingjanum tvær aukaspyrnur úti við hornfána fyrir að reka tærnar Igrasið og hlúnkast á rass- gatið afeigin rammleik. Nógu margar aukaspyrnur til að gefa FH mark auðvit- að. Svo er merkilegt að það virðist vera búið að setja I smáa letrið I fótboltaregl- unum þetta hér.nr I: Heimir Guðjónsson má toga í peysur og gefa olnbogaskot eins og honum sýnist.ÝNr2: Bjarnólfur Lárusson á að fá gult spjald í hverjum leik, rautt efþvf verður við komið, vinsamleg- astbúið til viðunandi ástæðu efBjarnólf- ur hagar sér vel. Nr 3: Bannað að dæma KR víti! Frostaskjólinu..." Jóhannes Þór Skúlason. www.blog.central.is/obsidian Ljóð dagsins „Það mun þvl kosta meira en að lýsa upp- lifun sinni afevrópskum borgum til þess aö bæta borgina, það mun kosta hugar- farsbreytingu, endurskoðun á lífsstfl Reyk- víkinga. Þaö er því borin von ! að ræða um betri borg fyrr en við erum tilbúin til þess að endurskoða lífsstfl okkar..." Arngrímur Vídalin. k http://arngrimurv.blog- ‘■spot.com/ Össibjörg Ég er ekki f Samfýlkingunni, en hefsamt myndað mér sterka skoðun. Á myndinni hér til hliðar er einstaklingurinn sem ég myndi hiklaust kjósa. Þetta ersumsé blanda afhini frábæru Ingibjörgu og hinum enn magnaðri Össuri. Ég byrjaði á að greina hversu vel eða illa mér llkar við þau, og tók svo % andlitsparta f sama hlutfalli. Hermann Fannar Valgarðsson. http://hemmi.disill.is/ KVK „Loksins hefur mér tekist að gangast við kynferði minu. Nú hefég klæðst pils- um/kjólum, ýmist hversdags eða spari, undanfarna 8 daga og fundistjafnvel þægilegra en hinar hefðbundnu buxur. Til k að fullkomna þetta fékk ég mér [ svo göt f eyrun, f fyrsta sinn, f dag [ við mikla undrun afgreiðslu- I stúlknanna í skartgripaverslun- j inn i." Una Sighvatsdóttir. www.stuna.blogspot.com Lesendur DV eru hvattir ti! að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sfnar á málefnum líðandi stundar. Ósvífnasta mannréttindabrot íslandssögunnar 'á. ?J&ZhB\faOW - y pnHij - \ y \\\ V \ \ jbh\ GaiöaiH. Bjöigvinsson, fram- kvæmdastjórí Fiamtíöai íslands skrífai: Ósvífnasta mannréttinda- brot íslandssögunnar, 1995 - 1997 Það er þegar hin opinbera stofn- un Þróunarsjóður sjávarútvegsins réðist að öðrum elsta atvinnuvegi þjóðarinnar, smáútgerðarmönn- um sem auk þess eiga hvorki varn- araðila né ráðgjafa, og neyddi þá til að selja frá sér atvinnuréttindi sín. Til hvers? Til að fækka sjálfstæðum einyrkjum í þágu stórútgerðar- manna sem stunda opinbera rányrkju á landgrunni íslands? Hvernig var að þessu staðið? Þetta var einfaldlega stjórn- sýsluaðgerð. „Sérþjónkuð beiðni til Rfkisstjórnar íslands frá gripdeild- arliðinu," svo ég vitni í orðalag Sverris Hermannssonar. Þetta var í sjávarútvegsráherra- tíð Þorsteins Pálssonar í júní 1995. í þinglok sama ár var það gert að lögum að róðrardagar smábáta skyldu vera 84. Svo kom bréf frá Þorsteini, dagsett 26. júní 1995 svohljóðandi að róðrardögum smábáta skyldi fækkað úr 84 í 26. Nú er Þorsteinn kominn heim og treystir á hið þjóðkunna minnis- Lesendur leysi landans. Væri ekki tilvalið að bjóða honum 26 daga vinnu á ári og vita hvort það dugar honum? Viku eftir bréf Þorsteins Formleg tilkynning barst frá Þróunarsjóði svohljóðandi: „Þar sem augljóst er að erfitt muni reyn- ast að ná lífsafkomumöguleikum með aðeins 26 daga vinnu, þá býð- ur Þróunarsjóður þeim mönnum sem vilja hætta útgerð 80% af matsverði báta sinna." Hvað gátu menn gert? Þeir sem skulduðu mikið stóðu ráðþrota. Þeir einfaldlega lögðu árar í bát og gáfust upp. Undirritaður sá strax að ekki var hægt að ná einhverjum tekjum út úr 26 róðrardögum og fór því í viðtal við lögffæðing Þróunar- sjóðs, Jóhönnu Halldórsdóttur. „Athugaðu að ég er hérna að bjóða þér skattfrjálsan styrk til að þú get- ir dregið þig í hlé og hætt útgerð,“ sagði Jóhanna. Þetta sagði hún fleirum og að orðum hennar eru mörg vitni. Þetta var erfið stund en málið var klárað. Síðar kom í ljós að skattfrelsið var hrein ósannindi. Því fór undirritaður á fund Jó- hönnu með ávísanaheftið til að skrifa út féð á staðnum og rifta um leið þessum görótta samningi. Og vití menn; endurgreiðslum var hafhað á sérpöntuðum fundi stjórnar Þróunarsjóðs, með undir- skrift Hinriks Greipssonar for- stjóra. En þar með stakk Hinrik höfðinu í gin ljónsins. Þarna voru framin þau reginmistök að annars- vegar bjóða skattfrjálsan styrk og hinsvegar að hefna endurgreiðslu úreldingarstyrksins. Guðfræðineminn segir Útrás-innrás Wð íslendingar erum stórkostleg þjóð! Við getum allt! Við erum ekki einungis best í því sem við gerum, heldur gerum við mest af því líka. Idö finnuin ný mið þegar fiskur- inn minnkar í sjónum. Það er nefhi- lega tíl nægur fiskur hjá öðrum þjóðum og svo dæmalaust hagstætt vinnuafl. Nú vitum við að ekki er endilega nauðsynlegt að flytja inn ódýrt vinnuafl, heldur getum við flutt út okkar frábæru þekkingu til ódýra vinnuaflsins og auðgað þannig líf fólks í fjarlægmn löndum. Okkur stendur til boða að koma með fjármagn inn í féh'tíð samfélag og ganga þaðan út með fúlgur fjár. Aðeins þarf dug og þor tíl að láta fólk vinna langan vinnudag undir ströngum aga og fá smánarleg laun. Eiginleikinn til að loka augunum fyrir því að verið sé að svipta fólk vinnuþreki og stoltinu er allt sem þarf. Hvílíkt tækifæri! Með þvf að gera útrás frá okkar litla en volduga landi, erum við einnig að gera innrás í líf annarrar þjóðar. Það er gott og vel ef við gæt- um þess að koma fram við fólk af þeirri reisn sem sæmir sjálfstæðri og þroskaðri þjóð eins og okkur. Nú kann einhver að segja að það megi ekki raska því jafnvægi sem ríkir í landi þar sem lág laun eru al- menn. Ég segi: Það má styrkja mennta- og heilbrigðiskerfi slíks samfélags í stað þess að taka auð- inn út úr samfélaginu. Ása Björk Ólafsdóttir Fjallar um stöðu landsmanna í alþjóð legu samhengi og mannauðinn sem hér leynist. Maður dagsins Frítt kaffi að lokinn starfsævi „Allir eldri borgarar munu fá frítt kaffi til frambúðar. Þetta er vel þegið hjá þeim. Ég geri þetta einungis til heiðurs eldri borgurum í lok ævistarfs þeirra. Þetta eru verðlaun fyrir vel unnin störf að lokinni starfsævi. Hug- myndin spratt úr kolhnum á mér og ég fæ oft svona hugmyndir. Ætíi ég verði ekki að segja að ég látí verkin tala og ég held að ég sé maður orða minna. Þessi hugmynd fór í framkvæmd fyrir hálfum mánuði og ég gef yfir 20 lítra á dag af molakaffi. Til annarra en eldri borgara sel ég ódýrasta kaffi á landinu og það er fólkið sem má vinna sem fær það. Ég fékk líka þá hugdettu að borga fólki fyrir að drekka vatn. Hjá mér fær fólk 40 krónur á lítrann fyrir að drekka vatn. Það væri ágætis tímakaup fyrir viðskiptavini ef þeir gætu drukkið mikið vatn. Fullorðið fólk vill samt ekki taka við tíkallinum. Það er svolít- ið um það. Ég læt þá peninginn sem fólk vÖl ekki fyrir vatnsdrykkjuna „Nú er ég kominn í samkeppni við Vífilfell og Egils og ég vonast til að ná markaðshlut- deild á ísafirði. renna til Rauða krossins. Ég er að borga 2-300 hundruð krónur á dag fyr- ir vatnsdrykkju gestanna á flugvellin- um. Þetta er einkaframtak mitt og ég geri þetta allt fyrir mína peninga. Eg er bara að reyna að fá börnin tíl þess að drekka vatn í staðinn fyrir sæta gos- drykki. Þeim finnst afskaplega gaman að fá tíkallinn sinn. Það eru ekki bara fluggestír sem fá vatn eða kaffi hjá mér heldur má hver sem er koma, setjast niður og drekka vatn eða kaffi. Ég hef engar áhyggjur af kostnað- inum við þetta og ég vona að það drekki sem flestir vatn og að Rauði krossinn fái sem mest. Nú er ég kom- inn í samkeppni við Vífilfell og Egils og ég vonast til að ná markaðshlutdeild á ísafirði. Sumir segja samt að ég sé í samkeppni við sjálfan mig því ég sel llka kók. Ég hef aldrei viljað fara troðn- ar slóðir, þess vegna dettur mér í hug að fara í samkeppni við sjálfan mig. Fólki finnst þetta rosalega sniðugt. Ég var búinn að vera garðyrkju- maður í fjörutíu ár þangað til ég tók rekstrinum á flugbarnum“ 1 . /'II. ..III „1,1,; kmnia furir v^tnið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.