Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
LAUGARDAGUR 7 7. SEPTEMBER 2005 3
Spurning dagsiiu
Ætti að leyfa endurvarp
á klámrásum á íslandi?
„Ég hefekki persónulega
áhuga, svo sem."
„Já,já. Það er áreiðanlega einhver sem hefur
gaman að því. 365 ætti að skella sér í það."
Hulda Bjarkar, verslunarkona.
„Já, af
hverju ekki? Þetta
er list. Menn ættu
að geta valið um
þetta eins og
margt annað."
Reynir Már
Ólafsson,
smiður.
„Það
mætti vera í
áskriftarsjón-
varpi. En geta
menn annars
'kki náð í þetta
á netinu?"
Ólafur Mar-
geirsson,
stærðfræð-
ingur.
Ég veit
það ekki...jú
ætli það ekki?"
Lára Guð-
mundsdóttir,
nemi íVersló.
Erótík = klám = list? Ekki endilega,en fólk hefur almennt víðsýni í huga og
hjarta gagnvart misjöfnum þörfum samborgara sinna.
Ákveðin vatnaskil
„Vaninn er sterkur
og bragðlaukarnir
taka ekki hverju sem
er. Þótt ég borði
miklu minna nammi
en hér áður fyrr, finnst mér
stundum gott að stelast í svolítið
gotterí og held þá
fast við fornar
hefðir.
Fjólublár
Lakerol
kemur þar
sterkur inn.
Og ekki síð-
ur blár Opal
sem bragðast
ekki eins og annað
nammi, skilur eftir sig seiðandi
eftirbragð og nánast kallar á
aðra pillu þegar sú fyrri hefur
bráðnað uppi í manni.
Og nú er búið að taka þessa
nautn frá manni. Ekkert má
lengur! Þeir eru hættir að fram-
Deilt í fleirtölu
leiða bláa Opalinn
- það eru ákveðin
vatnaskil, eins og
sést á þessari
myndskreytingu
sem ég fékk senda í tölvupósti.
Auðvitað er alltaf hægt að
dramatísera alla hluti, en því
verður samt ekki
á móti mælt að
í þessum efn-
um verður
ekkert eins og
áður.“
Björn Ingi Hrafnsson skrifar a heimasiöu sma bjornmgi.is
„í dagbókarfærslu á vef sínum
fjallar Bjöm Bjarnason
meðal annars um
nýliðnar kosn-
ingar í Noregi
og örlög Evr-
ópuumræðunn-
ar, en það fór lítið
fyrir henni í að-
draganda kosninganna.
Þetta virðist gefa honum tilefni
til að senda mér sneið en ein-
hverra hluta vegna
vill hann frekar
hafa mig í fleir-
tölu og segir:
„Hvað hafa
margir Eirikir
Bergmann spáð
þvi, að nú myndi ís-
land lenda í vanda, af því að
Noregur ætlaði í Evrópusam-
bandið?,, Þetta þykja mér
merkileg ummæli
hjá Birni þvi ég hef
einmitt, öfugt við
það sem Björn
heldur fram,varað
eindregið við þvi
að við íslendingar
séum að draga Noreg of
mikið inn í umræður okkar um
Evrópumálin, -
fyrir utan auð-
vitað að ræða
sameiginleg
örlög í EES en
hvorugt land-
ið getur lifað
þar án hins.“
Eiríkur Bergmann Einarsson skrifar á eirikurbergmann.hexia.net
Hallgrímur Helgason skrifar í DV á laugardögum.
Hann fór tíl Flórída í frí - í kortér.
Kortér í Flórída
Ég var að ráfa um netheima í leit að umsögnum um ís-
lensku myndimar á Toronto-hátíðinni þegar skjárinn fyllt-
ist af upphrópunum:
„Til hamingju! Þú hefur unnið $2000 ferðavinning! Það
eina sem þú þarft að gera er að hringja í þetta símanúmer!"
Ég hallaði mér aftur í stólnum. Og leit á frúna þar sem
hún lá í sófanum með yngra bamið á brjósti. Hún hefði nú
gott af smá fríi.
„Special T Travel, may I help you?“ sagði dísæt og sam-
anpressuð rödd sem minnti helst á talandi Snickers-
súkkulaði.
Ég gaf henni upp vinningsnúmerið sem blikkaði áf
skjánum, hún óskaði mér til hamingju og þuldi svo
upp hvað fælist í vinningnum: 7 nætur í Orlando, 4 á
Daytona Beach og aðrar 4 á krúslæner til Bahama-eyja.
Tveggja vikna draumafrí fyrir fjóra.
Eg trúði þessu ekki alveg. Ungfrú Snickers heyrði það
og sagði:
„Your hotel at Daytona Beach is ocean-
front. Ever stayed oceanfront before, Mr.
Helgason?"
„Eh... no.“
„Now, that's your once in a lifetime ex
perience. If you now go to our website..."
Ég sló inn slóðina og fékk upp á skjáinn: „This
page cannot be displayed."
Snickersröddin sagði að þetta gerðist
stundum „í sumum tölvum". Ég ætti að
prófa að sleppa forskeytinu http://. Ég gerði
það og heimasíðan opnaðist, full af illa
skönnuðum myndum af smekklausum
hótelum. En samt... Veðrið var gott þama.
Esjan hafði gránað í dag, var það ekki?
„Looks pretty tempting, doesn't it, Mr.
Helgason?"
„Well... eh... yeali," svaraði ég og leit aftin
á ffúna. „Hvað ertu eiginlega að gera?!“
spurði hún stómm augum. Ég tók fyr
ir tólið og sagði sem var: Við
vomm rétt í þessu að vinna
hálfsmánaðarferð fyrir
. Hálf-
Vlti g^f ég
/, verið.Eg áfc
inn \ flóratilFlórída!
ein4 3 leið | „Hótelið er
ems og eg vaeri ný- I oce... ocean-
."Ottlinn Úr / front," stundi
SKenuntiIegu / és °s ieit út um
frn. Fiirtmtan / gluggann, sá
DnínÚtna / strákinn okkar
./ hlaupa á sundskýlu
^ í hvítum sandi, en
rankaði við mér þegar
súkkulaðiröddin sagði:
„Now, all you have to do is pay your con-
Ifirmation fee: 898 dollars. Would that be VISA,
JMasters or American Express?"
„Eh... VISA."
Ég fann augnaráðið sem frúin sendi mér úr
rsófanum. Hvert var ég kominn? Til Flórída. Ekki
alveg frítt. En samt... Fjögurra manna frí fyrir 55 þúsund
kall! Var það ekki ótrúlegt? En hvemig gat ég treyst þessu
fyrirtæki? Ég spurði Ms Snickers.
„My colleague will take down your VISA card number
and your conversation will be recorded, sir. That '11 be your
receipt."
„Spurðu hvort við fáum kassettuna senda," sagði frúin
háðsk og fór fram á bað. Ég sat eftir með eyrað fullt af
Snickers-súkkulaði og áttaði mig á því að með því að
sleppa forskeytinu http:// hafði ég komist
i „hinumegin" á netið; þar sem allt var á röngunni.
| Þar sem maður þurfti að greiða sína lottóvinninga
j fullu verði og hafa eigin orð fyrir loforðum annarra.
Hálfviti gat ég verið. Ég afþakkaði vinninginn,
’lagði á og leið eins og ég væri nýkominn úr
skemmtilegu fríi. Fimmtán mínúma fríi.
1
HallgrímurHelgason
ÍNSEO SVEFNSOFI 160 / 209x95cm - SENSEO SVEFNSOFI 140 / 187x95cm - Margir litir
Betra /
BAK
Faxafeni 5 • Sími 588 8477 • www.betrabak.is
Opib virka daga frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 11-15
Komdu í verslun okkar að Faxafeni 5
og sjáðu glæsilegan sýningarsal okkar
fullan af nýjum svefnsófum.
Wimtex
Svefnsófar með heilsudýnu og MicroFiber
áklæði í mörgum litum og slærðum.
Wimtex
VW svefnsófi
184x91 cm - Litir Brúnt
og svart leður.
Svefnsvæði 150x200 cm.
Kim svefnsófi
203x95 cm - Litir
Camel, hvitur, brúnn. i
Svefnsvæði
143x193/215 cm. Sýningarsalur á neðri hæð fullur af nýjum
svefnsófum, glæsileg tilboð í gangi!
Wimtex svefnsófar eru allir með
rúmfatageymslu.