Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2005, Síða 50
50 LAUCARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Það þarf að spila mótið
„Ég er búin að vera svo lengi í
þessu að ég tek þessu mjög létt,“ segir
Harpa Melsteð fyrirliði handknatt-
leiksliðs Hauka. Haukastúlkum er
spáð íslandsmeistaratitlinum þetta
árið, en þær unnu einmitt titilinn
eftirsótta á síðasta tímabili. „Sumir
taka þessu alvarlega en ég geri það
ekki," segir Harpa um spána. „Auð-
vitað er ánægjulegt að fólk hafi trú á
liðinu, en það hefur ekki þau áhrif að
fólk ofmetnist, við tökum þessu með
fyrirvara. Það þarf auðvitað að spila
mótið."
Harpa hefur trú á að liðið geti gert
góða hluti í vetur, en spáir því þó að
mótið verði jafnara en síðustu ár.
„Liðunum sem er spáð fimm efstu
sætunum eiga eftir að vera að reita
„Ég var byrjuð að spila í
september. Ég komst
mun fyrr ístand en ég
bjóst við og raunar fyrr
en ég ætlaði."
stig hvert af öðru." Harpa eignaðist
barn sumarið 2004 og bjuggust hand-
boltaspekingar við að í kjölfarið
myndi hún taka sér góða pásu frá
handboltanum, jafnvel
hætta.
inn. „Ég var byrjuð að spila í septem-
ber. Ég komst mun fyrr í stand en ég
bjóst við og raunar fyrr en ég ætlaði."
Þrátt fyrir fjöldamörg ár í boltanum
og urmul titla og viðurkenninga er
Harpa þó hvergi nærri södd. Henni
finnst handbolti alltaf jafn skemmti-
legur. „Ég væri ekki að fórna öllum
þessum tíma í þetta ef mér þætti þetta
ekki gaman. En aðrir þættir í lífi mínu,
eins og dóttir mín, eru orðnir mikil-
vægari. Handbolti er auðvitað líkams-
ræktin manns og félagsskapur."
Harpa
var þó ekki
lengi að koma
sér aftur á völl-
Harpa Melsteð hefur verið fyrirliöi kvennaliðs Hauka í handknatt-
leiksfðustu ár. Hún er ein sigursælasta handknattle'kskQnalands-
ins Liði hennar er spáð Islandsmeistaratitlmum á komandl timabili.
Úr bloggheimum
Slangan
• „Ég horfði á Contender I
gærog það varskemmti-
legurþáttur sem
endranær.Slangan ógur-
lega vann, ég hélt eiginlega
með báðum, ég hélt með
Jesse afþví hann ersvo skemmtilegur
ep með Slöngunni því hann hefur
aldrei átt neinn pening og þvl
mamma hans hefur þurft að vinna
^vo mikið, það er miklu skemmtilegra
að horfa á box þegar maður þekkir
söguna á bak viðmennina."
Sigríður Lilja Skúladóttir -
folk.is/siggalilja
Erfittað vera fréttamaður
„Það er varla að maður leggi í að
skrifa blogg eftir málið með manninn
á svæðisútvarpi Suðurlands. Spurning
hvort fréttamenn geti yfirhöfuð hald-
ið úti svona siðum. Þorbjörn Brodda-
son, sem er oft mjög skyn-
samur, segir nei. En ég er
svolítið ósáttur við að rétt-
indi séu tekin afmanni
fyrir það eitt að vinna á
fjölmiðli. Það er töiuvert
sem við ekki getum, við get-
um ekki haft flokkspólitískar skoðanir
(það er nú reyndar ekkert mál), eða
*pólitiskar skoðanir yfirleitt, við getum
að sjálfsögðu ekki verið að vasast f
pólitík á neinn hátt. Við getum ekki
gerthvað sem er utan vinnutíma og
við getum ekki skrifað hvað sem er á
btoggsíður."
G. Pétur Matthiasson - gpet-
ur.blogspot.com
Coing to the chapel...
„ Við fórum i ráðhúsið hér í Odense og
giftum okkurþar, tók rétt um 10
mln....efþað varsvo langur
tími. Eftir þetta settumst við
á næsta pöbb og sátum úti
í bliðunni og fengum okk-
jjr einn kaldan ásamt ná-
grönnum okkar,sem komu
með okkur í ráðhúsið."
Davið Örn Ólafsson - doolafs.blog-
spot.com
Fölsk minning
„...ég á tvær minningar um eitthvað
sem ég ætti ekki að muna eftir. Þegar
ég var rétt eins árs dattégá glerborð
og er ennþá meðörá kinninni eftir
það. Eg hefheyrt tvær útgáfur á því
hvernig þetta gerðist og ég sé þær
báðar jafn Ijóslifandi fyrir mér. Ég seg-
istalltafmuna vel eftirþessu...þegar
mamma hélt handklæðinu blóðugu
upp viö kinnina á mér og pabbi kom
hlaupandi heim úr vinnunni. Skrýt-
\ð..."
Sigrún Cuðmundsdóttir - ungfru-
sigrun.blogspot.com
Stjórnarskrá Bandaríkjanna undirrituð
I dag
Á þessum degi
árið 1787 var stjórn-
arskrá Bandaríkjanna
undirrituð í Fíladelfíu
í Bandaríkjunum.
Ekki voru þó allir á
eitt sáttir með nýju
stjórnarskrána og
þrír fulltrúar af þeim
41 sem voru við-
staddir neituðu að
skrifa undir. Banda-
ríki Norður-Ameríku
höfðu fengið fullt
sjálfstæði fjórum
árum fyrr þegar undirritaður var
friðarsamningur við Breta.
Þrátt fyrir að stjórnarskráin hafi
verið undirrituð á þessum degi
greindi sjöunda grein hennar á um
að hún yrði ekki bindandi fyrir rík-
in þrettán fyrr en þau hefðu öll
samþykkt hana. Sjö ríki undirrit-
uðu stjórnarskrána fyrir árslok en
erfiðlega gekk að fá samþykki
hinna sex. Það var ekki fyrr en í júlí
1788 sem síðasta fylkið undirritaði
stjórnarskrána, New York-fylki.
Eftir sem áður nutu fylkin töluverð-
rar sjálfsstjórnar. Með eigið lög-
áriö 1844 var í fyrsta skipt-
iö kostið til Alþingis í
Reykjavík. Sveinbjörn
Egilsson. rektor Læröa
skóians, íekk ílest atkvæði,
15 talsins. Hann neitaði þó
þingsetu.
gjafárþing, ríkisstjóra og dómstóla.
Stjórnarskráin var með fyrstu
stjórnarskrám á því formi sem við
þekkjum í dag og sú elsta sem enn
er í gildi. Hún tók gildi um svipað
leyti og fyrsti forseti Bandaríkj-
anna, George Washington, var
svarinn í embætti.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum andi stundar.
Raunverulegt tolk
Einarlngvi Magnússon skrífar.
Hve það er hræðilegt að vera
normal í dag. Ég gæti heldur aidrei af-
borið það. Viðmið samfélagsins eru
orðin svo óvistvæn náttúru manns-
ins. Fólk er hlekkjað í félagslegt hegð-
unarmynstur, sem hefur gert það að
andlega lokuðum heilabúum. Búið er
Lesendur
að forrita fólk fyrir neyslusamfélags-
lega hegðun sem felst í því að lifa til
að virma lengur en frá níu til fimm, til
að kaupa meira og neyta meira í dag
en í gær.
Það er ekkert spennandi lengur að
vera normal. Þvert á móti opnar það
nýja veröld hins sanna lífs og tilveru
að leyfa sér að vera raunverulegur,
laus við forritun og gildi samfélagsins,
stjómmálastefnanna, heimsspekinn-
ar og trúarbragðanna. Það er frelsi
sem er fólgið í því sem þjóðfélagið
uppnefnir heimsku og aumingjaskap.
Að þora að vera raunverulegur maður
er ekki á allra færi, enda fjöldinn
skemmdur og þar af leiðandi ófær að
lifa eðlilegu h'fi.
Ég tek ofan fyrir geðveiku fólki, því
sem samfélagið hefur sett til hliðar,
stimplað í þriðja flokk og krossfest
fram í dauðann. Nútíma siðmenning
er löngu komin í andlegt þrot. Hún er
ómenning, sem fer iila með mann-
eskjuna, nauðgar henni á altari fé-
fíkninnar og græðginnar. Hún bannar
fólki að gráta undan hinni illu með- ,
ferð. Hún bannar fólki að þreytast og
lýjast undan svipuhöggum þræla-
haldaranna. Hún bannar fólki að
dreyma um raunverulegt líf og raun-
verulegt fólk. Þeir sem þrá raunveru-
leikann verða að vera svolítið meir en
geggjaðir. Það er þess vegna sem ég
hef verið geðveikur í mörg ár og uni
mér best á meðal hinna útskúfuðu
samfélagsins vesalinga.
Ég get alla vega lifað laus við
blekkingu þrælahaldaranna úti f
óbyggðum langt frá ósiðmenningu
nútímans og ræktað andann sem
Guð blés mér í bijóst er hann gaf mér
lífið.
Gillzenegger skrifar vikulega
pistla f Fókus í DV í föstudögum.
Þeir lýsa skoðunum hans en á
Haldiö til haqa
engan hátt skoðunum blaðsins. í
pistli sínum f gær talaði hann
fjálglega um knattspyrnudómar-
ann Garðar Örn Hinriksson og
biður DV Garðar og alla honum
nákomna afsökunar.
Stórir fimmtudagar
/ KmlÉi Öm Létaessti ^ Fræiil.Dayíös Oddssonar
Guðmundur Magnússon skrifai:
Ég er mikill aðdáandi DV og hef
verið áskrifandi lengi. Oftast er efni
blaðsins mjög skemmtilegt og það
hefur farið batnandi með tímanum.
DV er jú bara lítið barn sem byijaði
að ganga snemma og eldist með
hveijum deginum. Það sem mér
finnst gott við blaðið er að það tekur
breytingum dag frá degi. Nýir fastir
liðir byrja og ferskir pennar eru
Lesendur
fengnir í kjallaraskrif og annað.
Nýjasta viðbótin við blaðið eru hinir
svokölluðu „Stóru fimmtudagar",
eins og það er kallað á mínu heimili.
Við konan og börnin sláumst nefni-
lega um Hér&nú sem fylgir blaðinu
á fimmtudögum. Það er fátt betra
en að byrja daginn á þeim pakka og
eiginlega nauðsynlegt ef maður
ætlar að vera viðræðuhæfur í vinn-
unni. Ég fagna öllum breytingum og
held að Hér&nú sé á réttri leið. Vildi
bara koma þessu á framfæri. Það
eru nefnilega alltof fáir sem hrósa
því sem vel er gert en alltaf eru ein-
hverjir sem eru til-
búnir að rakka allt
niður. Haldið áfram
á réttri braut!
epnBHlsaBig „
ofskytijaitanveppa I hónd
t.
Ánægður lesandi
Guömundur segist vera
mikill aðdáandi DV.
Sylvía Dögg
Halldórsdóttir
vegur og metur
timann.
Myndlistarneminn segir
Brosborgun
Flestir hafa val um gjörðir sín-
ar. Ég geri alltaf það sem ég vil
gera. Og helst aðeins þannig að ég
hafi unun af. Þegar um skapandi
vinnu er að ræða getur verið erfitt
að vega og meta hvort önnur borg-
un séþörf en ánægjan einsömul.
Ménn þrífast á því að gera hluti
sem þeir una en ekki allir hafa kost
á því. Eitt verk er alltaf skref að því
næsta og því oftast réttlætanlegt. í
enda dags er tíminn peningar. Það
er alltaf hægt að eyða tímanum
sínum í verðugri hluti eða verk-
efni. En þegar ánægjan í útrásinni
er að vinna að ákveðnu verki er
erfitt að setja það í samhengi pen-
inga og segja skilið við það. Vegna
þess að borgunin er jú „aðeins"
ánægjan ein...
Ég get ekki ákveðið hvort ég
eigi að segja skilið við ákveðið
verkefni sem ég unni að gera á for-
sendunni að ég ætti að fá borgað
fyrir það. Að fá borgað í ánægju og
viðbrögðum eru góð
laun í minni bók. En
því miður vegur
ekki rétt á móti
tímanum sem
ég dreg frá
öðrum verk-
um.
Leiðin-
leg út-
koma?