Símablaðið - 01.11.1932, Blaðsíða 38
52
SÍMABLAÐIÐ
Raforka frá sólunni.
Vélamenning nútímans krefst orku.
Vísindin hafa beislað orkulindir nátt-
úrunnar, hverja eftir aðra, í þarfir
tækninnar og menningarinnar. Enn
þá híða samt ónotuð orkuver, ótæm-
andi að gnægð og afli, sem manns-
andinn hefir enn ekki ráðið við.
Orka sú, sem mestmegnis er i
þjónustu mannanna núna, er fram-
leidd úr kolum og olíu, vatnsaflið
leggur einnig fram drjúgan skerf og
vindmagnið nokkurn. En allir þessir
orkugjafar liafa orðið til fvrir áhrif
sólarinnar. Það er hún, er nærði risa-
gróður kolatimabilsins, sem nú er
numinn úr djúpum jarðlaganna sem
kol og olía. Það er einnig hitamagn
sólarinnar sem veldur uppgufun úr sjó
og vötnum svo að ský myndast, regn
fellur og ár renna. Fyrir mismunandi
áhrif sólarinnar verða hitabreytingar
í loftinu er vekja vindana.
Ekki er því ofsögum sagt, að öll
náttúruöfl vor eigi upphaf sitt í sól-
unni. Það er því ekkert undarlegt, þótt
mönnum hafi dottið í hug að spara
sér þessar krókaleiðir, en nota kyngi
sólarinnar milliliðalaust. Hefir lika
verið unnið að þvi um margra ára
skeið, að finna hagkvæma lausn á
þessu verkefni. Meðal annars liefir
verið reynt að nota sólargeislana til
að hita vatnið i gufukötlunum, í stað
kola, en tilraunin gafst ekki vel. Að-
eins í mjög sterkum sólarhita kom
hún að notum, en annars ekki.
Nú hafa mönnum hugkvæmst aðrar
leiðir, er gefa hestu vonir um góðan
árangur. Það hefir sem sé tekist að
breyta sólarljósinu i rafmagn án til-
verknaðar nokkurra aflvéla. Til þess
er notuð ljóssella (Fotocella), sem er
frábrugðin eldri ljóssellum í því, að
hún notar ekki raflilöðuorku, lieldur
myndar sjálf rafstraum þegar sólar-
ljósið skín á hana.
Að vísu hefir ekki enn þá unnist
mikil raforka á þennan hátt, því að
hvorttveggja er, að tilraunin er ný, svo
að segja i fæðingunni, og eins hitt, að
Ijóssellur þær sem notaðar hafa ver-
ið, eru mjög litlar.
Lengi hafa það verið draumar
kunnáttumanna, að liagnýta á marg-
víslegan Iiátt ótæmandi kraft sólar-
innar. Nú er leiðin fundin til þess að
framleiða rafmagn frá sólunni, og sá
tími er vissulega ekki langt undan, að
vér seiðum frá sólunni alla þá raforku
er vér þurfum að nota.
Og þá hafa draumarnir ræst.
(Lausl. þýtt).
Jólaguðsþjónustunni í Kristskirkjunni
í Bethlehem útvarpað.
National Broadcasting Co. hefir fengið
leyfi til að útvarpa guðsþjónustu frá Krists-
kirkjunni í Bethlehem, sem stendur á fæðing-
arstað Krists, — og verður henni síðan end-
urvarpað frá öllum stöðvum félagsins. í
Þýskalandi hefir einnig verið rætt um að ná
guðsþjánustu þessari eftir talsímalinunni
milli Palestínu og Þýskalands, — og útvarpa
síðan frá þýskum stöðvum. Verður það í
fyrsta sinn að útvarpað er guðsþjónustu frá
þessari kirkju. Er það einkum jólasöngur
munkanna, sem menn myndi hafa gleði af
að hlusta á.
Takist Þjóðverjum endurvarp þetta, ætti
ísl. hlustendur að geta notið þess, og verið
við jólaguðsþjónustu i Bethlehem.