Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2005, Side 2
2 MIÐVIKUDACUR 19. OKTÓBER 2005
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Ritstjórar:
Jónas Kristjánsson
og MikaelTorfason
Fréttastjóri:
Óskar Hrafn Þorvaldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550
5090 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is
Auglýsingan auglysingar@dv.is.
Setning og umbrot:
365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent
efni blaðsins í stafrænu formi og úr
gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Dr. Gunni heima og að heiman
fife álhygíisvert áö fylgjast
„Kenningin um, að takmarka eigi upplýsingar við það eitt, sem rit-
stjóri eða einhverannar telur vera notendum nauðsynlegt, á ekki
nokkurt erindi tilfjölmiðla í lýðrœðisþjóðfélagi. “
Hvað þurfa menn að vita?
Hæstiréttur Þýzkalands hefur úrskurð-
að, að tilgangur fjölmiðla sé sá einn
að vera til. Það sé jafngott, að fjöl-
miðlar skemmti fólki og segi persónulegar
fréttir og að þeir hafi einhver sérstök mark-
mið með útgáfunni. Hæstiréttur Þýzkalands
hvílir á grundvelh frjálslyndrar lífsskoðunar.
Hæstarétti Þýzkalands mundi finnast ein-
kennilegt, að talið væri gott, að fjölmiðlar
hefðu sérstök hlutverk á borð við, að láta satt
kyrrt liggja, af því að birting gæti sært ein-
hvem. Honum mundi finnast einkennilegt
að spyrja fjölmiðla, hvort nauðsyn hafi borið
til myndbirtingar.
Frjálslynd viðhorf sköpuðu hugmyndir
um lýðræði á nítjándu öld. Þau gera ráð fýr-
ir, að gegnsæi sé meiri homsteinn lýðræðis
heldur en frjálsar kosningar. Það er nefni-
lega ekki lýðræði í Egyptalandi, þótt þar séu
frjálsar kosningar, því að þar er ekki gegn-
sæi, sem er sjálfur lykillinn að lýðræði.
Hér á landi ramba menn hins vegar milli
sósíalfasisma og félagslegs rétttrúnaðar.
Siðanefnd blaðamanna er hluti af þessari
lffsstefnu og telur engu máli skipta, hvort
satt og rétt sé sagt frá í fjölmiðlum. Hún mið-
ar eingöngu við, hvort einhver segist vera
særður og úrskurðar í samræmi við það.
Fjölmiðlar em ekki hluti af ríkiskerfinu, til
dæmis ekki hluti af dómstólum. Nafn- og
myndbirting er ekki hluti af dómi. Fjölmiðlar
eiga ekki að ákveða að þegja fréttir eða þegja
hluta af fréttum vegna meintra sárinda úti í
bæ, því að í slíku hlýtur alltaf að felast spillt
umburðarlyndi.
FjölmiðiÚ spyr ekld sjálfan sig: Var
nauðsynlegt að birta þessa mynd?
Fjölmiðill spyr ekki sjálfan sig:
Mátti ekki satt kyrrt Úggja? Fjöl-
miðill telur sig ekki vera slíkan
hliðvörð. Það er hlutverk lesand-
ans, hlustandans eða áhorfandans
að meta, hvort málið eigi erindi við
sig.
Blaðamaður hlýtur að vinna
eftir skólabókinni: Hver
gerði hvað, hvar, hvenær,
hvemig, hvers vegna og
hvað svo? Ef hann strikar
yfir fyrsta liðinn af tillits-
semi við einhvern, þá rambar hann strax yfir
í spillt umburðarlyndi og hræsni, sem ein-
kennt hafa félagslegan rétttrúnað hér á
landi.
Kenningin um, að takmarka eigi upplýs-
ingar við það eitt, sem ritstjóri eða einhver
annar telur vera notendum nauðsynlegt, á
ekki nokkurt erindi til fjölmiðla í lýðræðis-
þjóðfélagi.
SP
Arna Schram Formað-
ur Blaðamarmafélags-
ins vill hefja endurskoð-
un siðareglna félagsins i
Ijósi nýrra sjónarmiða.
Herdís Þorgeirsdóttir Skrifaði dokt-
orsritgerð I lögfræði um blaða-
mennsku, þar sem meðal annars er
fjallað um vandamál, sem stafa af
spilltu umburðarlyndi I bióðfélaainn
EF ÞESSIR 5 ÆTTU ALLA FJOLMIÐLA.A
Ástþór Magnússon
Maður friðarins.
Kristinn Björnsson
Strangheiðarlegur olíusam
ráðsmaður.
Björn Ingi Hrafnsson
Sýknaður í héraðsdómi fyrir
fréttaflutning.
Árni Bergmann
Sósíalrealískur veruleika
hugsuður.
Jónína Benediktsdóttir
Kann að skrifa tölvupóst.
Flutningsmenn frumvarpsins „góða" Halldór Blöndal mælti fyrir frum varpim
en líklegt hlýtur að teljast að þau Sigurjón Þórðarson, GuðmundurÁrni, Jónina
Bjartmarz og Þuriður Backman hafi verið með óbragð imunni. Eða hvað?
með fólki sem hefur bitið eitthvað
(sig. Það er eitthvað svo
mannlegt. Svo sorg-
legtGaman vartil
dæmis að sjá Davtð
Oddsson fá fylu-
kastiö enn einu
sinni yfir Baugi og
Samfylkingunni. Gam-
an líka að sjá meðvirkn-
ina á fundinum. Svipaða biturð
mátti sjá á dögunum þegar kerl-
ingartuskan hún Yoko Ono drull-
aöi enn og aftur yfir góðmennið
hann Paul McCartney. Það er
alltaf þaö sama sem gýs upp, ein-
hver ægilegur köggull sem fólk
hefur bftið (sig. „Lennon var lista-
maður, McCartney er trúður,"
sagði hún. „Ég er ástæða alls hins
góða sem gerst hefur, Baugur er
veldi hins illa, ef við pössum okkur
ekki verðum við öll þrælar illsk-
unnar." - Já, já, Davlð minn og
Yoko, segjum það bara.
ig bít sjaldan eitthvað I mig, enda
ekki stórmenni eins og Davíð.
Skipti um skoðun eins og nær-
buxur, versla hvar
sem er og á eflaust
eftir að kjósa alla
flokkaáðuren
yfir llkur. Einu
sinni náöi ég þó
aö bíta það I mig
að ég gæti lamið
einhvemgaurfyrir
framan blokk I Kópavoginum. Ég
var meö einhverja ægilega minni-
máttarkennd á þessum tíma af
þvf ég hafði aldrei farið f slag og
fannst þaö skyggja á karlmennsku
mfna. f þá daga hafði maöur
áhyggjur af furðulegustu hlutum.
Þaö var við ofurefli aö etja og
gaurínn snérí mig ftrekað niður
og hvæsti: „Ertu hættur?" Alltaf
stóð ég upp aftur og réðst á hann.
Svona gekk þetta f nokkra stund
eða þangað til það fór aö renna af
mér.
.BU&num
sem hægt heföi verið að spara ef
amerfski herinn hefði aldrei verið
á Miönesheiði. En jæja, hann er
þama ennþá. Bfður og
vonar að eitthvað
gerist. Eitthvað
meira en að Suð-
umesjamenn
haldi vinnunni
sinni.Tilgangs-
leysiðeralgjört,
enda heraflinn ekki
svipur hjá sjón. Á laugardaginn
var opið hús, svokallað haust-
kamival; leiktæki, sælgæti til sölu
og veitingar. Hámark plebbism-
ans og auðvitað var ég mættur
meö fjölskylduna. Voða gaman
og gamla .gemmér-tyggjó'-
stemningin frá stríðsárunum alls-
ráðandi. Krakkar og fullorðnir rog-
uðust út með gosdrykkjakassa,
nammi og sætt morgunkom.
Biðraðir f báðar áttir eins langt og
augað eygði. Gott að kaninn hef-
ur einhverju hlutverki að gegna
héma.
Með óbragð í
EFTIRLAUNAFRUMVARPIÐ ILLRÆMDA
SEM DAVÍÐ 0DDSS0N HAFÐI FRUMKVÆÐI
AÐ, en hann fær 712 þúsund krónur á
mánuði í eftirlaun í stað 381 þúsunda
eftirlaun miðað við gamla kerfið, var
keyrt með látum í gegnum þingið
áður en þingmenn fóru í jólafh'ið sitt
árið 2003. Frumvarpið er enn komið í
brennidepil. Enda virðast engin tak-
mörk fyrir svínaríinu því tengt. Helgi
Hjörvar þingmaður lagði nýverið
fram fyrirspum í fjárlaganefnd um
kostnað vegna eftirlaunalaganna.
Mat Fjársýslu ríkisins er að sam-
kvæmt nýju lögunum hafi lífeyris-
skuldbindingar verið 650 milljónum
hærri en þær hefðu orðið samkvæmt
gömlu lögunum. Helmingi hærri en
versta mögulega útkoma sem kynnt
var Alþingi.
EKKERT K0STNAÐARMAT FYLGDI
FRUMVARPINU en Helgi rifjar upp á
síðu sinni að Davíð sagði tilneyddur í
fféttum sjónvarps 11. desember
2003: „Ja, mér finnst það ágætt ef að
það er svo að mönnum þykja þessar
breytingar, sem munu kosta ríkissjóð
væntanlega á næsta ári um 6 milljón-
ir króna, ef að þær breytingar em
slíkar að það eigi að hafa áhrif á allar
Fyrst og fremst
kjarakröfur í landinu, þá finnst mér
gott að málið komi fyrir áður en það
er farið í kjarasamninga heldur en
málið komi fyrir eftir að öllum kjara-
samningum er lokið." Sex milljónir á
næsta ári!
ÞETTA SAGÐI MAÐURINN SEM VILL
KENNA SIG VIÐ STÖÐUGLEIKA. Hann má
heita ódýr stöðugleikinn sem byggir
á Iygi. Eldd er líklegt að sannleikurinn
í málinu verði til að stuðla að friði
á vinnumarkaði. Eða þá að ör-
yrkjar, sem ekki mega taka á sig
hina minnstu aukavinnu án þess
að bætur þeirra skerðist til mikilla
muna, taki þessum nýju upplýs-
ingum þegjandi. Hins vegar
mega þeir ráðherrar, líkt og
komið hefur fram, þiggja
eftirlaun frá 55 ára aldri
jafnvel þótt þeir setjist
samhliða í feit embætti á kostnað
skattgreiðenda.
ÞESSI ÓSVINNA ER EKKI BUNDIN VIÐ
STJÓRNARFLOKKANA. Enginn þriggja
formanna stjómarandstöðuflokk-
anna var viðstaddur atkvæðagreiðsl-
una. Guðjón Amar Kristjánsson var í
sólarlandaferð, Steingrímur J. Sigfús-
son í fríi innanlands og Össur Skarp-
héðinsson mætti ekki. Halldór As-
grímsson var einnig íjarverandi.
Enda hafði formönnum flokka verið
mútað með hækkun á launum þeim
til handa. Samtrygging spillingarinn-
ar. Flutningsmenn frumvarpsins
vom svo
Blöndal, Guðmundur Ámi Stefáns-
son, Jónína Bjartmarz, Þuríður Back-
man og Sigurjón Þórðarson.
SV0 ERU ÞEIR INNI A ÞINGI sem
kenna fjölmiölum um að virðing al-
mennings fyrir stjómmálamönnum
er ekki mikil. Og vilja meðal annars
þess vegna setja á fjölmiðlalög svo
„hin rétta mynd" sé dregin upp. Guð
hjálpi þjóðinni þegar þeim tekst að
koma því svo fyrir að geta möndlað
með kjör sín algerlega í skjóli myrk-
urs.
jakob@dv.is
Sinfónía og Skítamórall Reykjavík og hræsnin
Sinfómuhljómsveit íslands kost-
aði hálfa milljón króna á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt frétt
í DV í gær. Hún kostaði minna en
hljómsveitin Skíta-
mórall hefði kostað.
Hún kostaði ekld
nema helming-
inn af því, sem
Stuðmenn hefðu
r kostað. Venjulega
tekur liljómsveit-
in tvær milljónir
eða meira fyrir
uppistandið.
Svona gæti þetta hafa gerzt: Kja
i Gunnarsson hringir í Þröst Ola
Kjartan Gunn-
arsson Fékk
ódýra hljómsveit
á landsfund.
: Kjart-
an Gunnarsson hringir í Þröst Olaís-
son ogræöirviöharm um, hvortSin-
fónían haB fengiö nógí fjáriagafrum-
varpi og hvort eitthvað
sé karmski hægt að laga
þaö í nefnd. Síðan
segir hann:
„Heyröu, hvaö
takið þið fyrir aö
spiia álandsfimd-
inum". Þetta er
það, sem fóik kail■
ar skítamóral.
Þröstur
Ólafsson Fær
kannski ábót
á fjárveitingu.
Reykjavíkurborg og Reykjavíkur-
Ustinn telja sig vera í fremstu röð á
íslandi í leikskólum fyrir alla og em
farin að tala um, að þetta eigi að
verða frítt fyrir alla í nokkrum áföng-
um. Andstæðingar listans segja
þetta bara vera hræsni í stjómmála-
hreyfingu, sem keyri mikið á loforð-
um, sem kalla á vinsældir.
írauninni eralltí steikíReykjavík
í málum barna undir skólaskyldu-
aldri. Langir biðlistar eru til að kom-
ast fieikskóla og á frístundaheimili í
sumum úthverfum borgarinnar.
Ástæðan ersú, að ekki
eru nógu margir
starfsmenn. 60
starfsmenn vantar,
af því að Reykja-
víkurborg tímir
ekki að borga
kaup. Hræsni
ráðamanna
er augljós. ^
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir Borg■
arstjóri sinnir ekki
forskólabörnum.