Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2005, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 19. OKJÓBER2005
Sport DV
Fyrirmyndin
David Stern sést
hér i öllu sinu veldi
klæddur eins og nu
er orðin skylda í
NBA-deildinni.
I Rodman sé hættur enda
ekki víst að brúðkaups-
! kjólinn frægi hefði farið
vel í Stern. Það eru samt
82 leikir á tímabilinu og
leikmenn sem eru flestall-
ir langt yfir meðallagi í
stærð þurfa að kaupa sér
hátt í 82 jakkaföt fyrir komandi
tímabil sem kostar þá margs konar
vesen. „Leikmennirnir eiga eftir að
verða brjálaðir," sagði Kevin Willis
sem hannar nú gallabuxur en hann
lék í 21 ár í NBA-deildinni. „Þetta á
eftir að vekja hörð viðbrögð og
þessir leikmenn munu ekki sætta
sig við þetta.“ Að fylgja ekki þess-
Yfnmaður NBA, David Stern,
hefur sett fram róttæka reglugerð
sem setur mjög strangar reglur um
klæðaburð leikmanna í NBA-
deildinni í körfubolta. Stern hefur
sent frá sér bréf til allra leikmanna
deildarinnar þar sem hann kemur
inn á þessi mál. Nýju reglur deild-
arinnar skylda leikmenn til þess að
koma ávallt í sparifötum til leiks.
Þetta á við úm alla atburði sem
tengjast störfum þeirra fyrir sín fé-
lög, hvort sem það er að koma á
leiki, fara af leikjum eða mæta á
æfingar og aðra viðburði á vegum
félagsins. Allt aukaglingur, eins og
stór hálsmenn, ýmiss konar höf-
uðföt sem henta ekki sem og sól-
gleraugu innandyra, eru einnig
meðal þeirra hluta sem eru komn-
ir á bannlista frá og með 1. nóvem-
ber. Stern talaði einnig um að
NBA-deildin þurfi að laga ímynd
sína út á við og í sama bréfi kom
hann af þeim sökum inn á að
hegðun og framkoma leikmanna
skipti alveg jafnmiklu máli og
hvernig þeir koma til leiks.
Það er búist við hörðum við-
brögðum frá leikmönnum NBA-
deildarinnar sem eru margir hverj-
ir þekktir fyrir skrautlegan klæða-
burð og einhverjir húmoristar
þakka guði fyrir það að Dennis
um nýju reglum kallar þó á hörð
viðbrögð deildarinnar, fyrst sektir
og svo hugsanleg leikbönn láti
menn ekki segjast. Menn eins og
Allen Iverson hafa tekið mjög illa í
þetta og hafa margir tekið þá
stefnu að berjast gegn þessu. Þetta
hefur líka áhrif á menn eins og Tim
Duncan sem mætir alltaf til leiks í
gallabuxum og alltof stórum bol.
„Ég á ekki einu sinni jakkaföt,"
voru fyrstu viðbrögðin sem menn
höfðu eftir besta leikmanni úrslita-
keppninnar í fyrra og það eru
margir leikmenn NBA-meistara
San Anontio Spurs sem eru þekktir
fyrir frjálslegan klæðaburð.
Það hefur verið líf og Qör í fyrstu sex
umferðum DHL-deildar karla í hand-
bolta. Framarar eru eina liðið með
fullt hús stiga en annars hafa liðin
verið að vinna hvert annað á víxl.
Bergsveinn Bergsveinsson, annar
þjálfara íslenska landsliðsins í hand-
bolta, er mjög ánægður með hvernig
breytt fyrirkomulag hefur komið út.
Ánægður með þróun mála Bergsveinn Bergsveinsson, annarþjálfara íslenska
landsliösins í handbolta, er ánægöur meö byrjunina á DHL-deild karla í handbolta.
„Þessi breyting hefur verið til batnaðar ef tekið er mið af
áhorfendafjölda og vægi leikja. Það eitt og sér er hið besta
mál,“ segir Bergsveinn Bergsveinsson, annar þjálfara íslenska
karlalandsliðsins í handbolta. Bergsveinn hehir farið á marga
leiki það sem af er vetrar og líst vel á það sem hefur fyrir augu
borið. DHL-deild karla hefur farið vel af stað, mikið er um
jafna og spennandi leiki og þá hafa óvænt úrslit verið að
krydda deildina í upphafi tímabils. „Þessi breyting gerh þetta
miklu meira spennandi, nú skipta allir leikir máli og það dug-
ar ekkert lengur fyrir lið að ætla að vakna eftir fimm til sex
umferðir því þá er bara erfitt fyrir þau að vera með í mótinu."
„Framarar byrja mjög vel. Þeir
eru mjög sterkir, spila góðan vam-
arleik. Ég þekki líka Guðmund Guð-
mundsson vel síðan að hann þjálf-
aði mig hjá Aftureldingu og hann er
mjög skipulagður. Maður sér hans
handbragð á þeirra leik enda eru
þeir mjög taktískir og agaðir. Það er
að skila sér vel hjá þeim,“ segir
Bergsveinn um Framliðið sem hef-
ur unnið alla fimm leiki sína til
þessa. Bergsveinn er eins og aðrir
hrifinn af hinu unga liði ÍR-inga.
„Það er að koma verulega á óvart
hvað lið eins og ÍR er að standa sig
vel miðað við að þeir misstu sex
menn fyrir mót og þeir ætía bara að
vera í toppbaráttunni. ÍR er með
öðruvísi lið en flest önnur lið deild-
arinnar. Þeir eru með lágvaxið lið,
spila mjög hratt og keyra hraðaupp-
hlaupin alveg stanslaust allan leik-
inn. Þeir eru hraðir og skemmtileg-
ir og eru að skora hátt í 40 mörk
sem er hið besta mál, sérstaklega
fýrir okkur áhorfendur sem viljum
sjá líflegan og léttleikandi hand-
bolta," segir Bergsveinn.
Sebastian Afexandersson er að
gera góða hluti á Suðurlandinu og
Selfossliðið hefur komið Bergsveini
á óvart „Þá kemur Selfoss líka sterkt
inn, þeir eru búnir að vinna þrjá
síðustu leiki og eru að koma pínu á
óvart. Sebastian er í stóru hlutverki
sem spilandi þjálfari og það er
gaman að sjá hvað hann nær út úr
þessu liði. Það munar líka mikið
um það hjá þeim að Ramunas
Mikalonis er að spila mjög vel, eitt-
hvað sem hann gerði ekki í fyrra,"
segir Bergsveinn sem spáir
„gömlu" refunum í deildinni einnig
góðu gengi. „Valsmenn eru sterkir
sem og Haukarnir og KA-menn
byrjuðu vel en hafa verið að missa
dampinn, aðallega út af þeim
meiðslum sem eru að hrjá liðið.
Flest liðin í deildinni eru ekki með
breiðan mannskap og þau mega
því ekki mikið við skakkaföllum.
Um leið og lið eins og KA missir
menn eins og Magnús Stefánsson
og Jónatan Magnússon eru högg-
vin stór skörð í liðið. öll liðin hafa
verið að ehdurnýja það mikið hjá
sér þar sem liðin eru að missa
marga menn út á hverju ári. Þar
sem endumýjunin er
þetta hröð ná liðin ekki
að vera með mjög
breiða hópa. En á móti
emm við að fá marga
unga leikmenn upp,
stráka sem þurfa að
taka af skarið og það er
margt jákvætt við það."
„Ég hef alltaf verið
fýlgjandi þessari úr-
slitakeppni enda gerði
hún sitt þegar ég var að
spila með FH og Aftur-
eldingu fyrir fullu húsi.
En eins og þetta hefur
verið síðustu árin hefur
fólk bara verið að bíða
eftir úrslitakeppninni
þannig að þetta virðist
henta betur og fólk
mætir betur á völlinn
núna. Mér finnst lfka
umfjöllun í blöðum og
öðmm fjölmiðlum vera
meiri en hún hefur ver-
ið. Það hefur líka ör-
ugglega komið fjöl-
miðlamönnum sem og fólki á óvart
hvað mótið er í rauninni skemmti-
legt. Það er bara kominn þessi
gamli, góði handboltafílingur í
þetta á ný," sagði Bergsveinn að
lokum.