Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2005, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER2005
í DV á miðvikudögum
Gönguskór
Gakktu skóna til i
stuttum göngu-
ferðum í vetur.
útiyist & ferðalög PV
Gakktu skóna t\\
Góðir gönguskór eru nauðsynlegir í lengri og
styttri gönguferðir. Yfirleitt er mælt með því að
þeir séu hálfstífir og uppháir en slfkir skór henta í
flestar göngur. Ef meiningin er að taka næsta sum-
ar með trompi í útivistinni er tilvalið að festa kaup
á góðum skóm núna og ganga þá til í styttri göngu-
ferðum í vetur. Það vill nefnilega enginn fá
blæðandi hælsæri í nokkurra daga
gönguferð eða komast að því að ef til
vill-hefði verið betra að taka einu núm-
eri stærra eða minna skópar.
Útivistum
helgina
Ferðir
framundan
Hjólaræktin 22. október
Mæting er kl. 10 við gamla Rafstöðv-
arhúsið (stóra brúna húsið) í Eiiiðaár-
dalnum. Ekið verður á eigin bilum að
Dyradölum þarsem bílarnir verða
skildir eftir. Aætiað er að hjóla sunnan
megin við Þingvaiiavatn um 35 km leið
i G rímsnes þar sem Sveinn Daviðsson
er með sumarbústað. Þar er heitur
pottur sem hægt er að fara i áður en
Svenni keyrir fólk til baka. Munið eftir
nesti, viðgerðarsettinu, sundfötum og
handklæði.
Göngugleði 23. október
Göngugleði FÍ: Mæting við Mörkina 6
kl. 10.15. Lagt afstað 10.30. Gengið í
nágrenni Reykjavíkur 3-5 tima. Sam-
einast í bíla á áfangastað. Takið með
ykkur nesti og góðan búnað. Ókeypis
þátttaka - allir velkomnir.
Þórisjökull 29. október
Isklifur í Þórisjökli efisinn verður
kominn. Nauðsynlegt að mæta með
allan ísklifurbúnað og kunna meðferð
hans. (ATH. Ekki tekst að halda isklifur-
námskeið á undan þessari ferð en byrj-
endur eindregið hvattir til að taka
námskeiðið i nóvember og fara í
jólaklifur í desember, ferskir og flottir)
Mæting í Klifurhúsið kl. 07. Þátttaka
ókeypis.
Jeppaferð 28.-30. o|(tóber
Kjalvegur ekinn norðurí Kerlingar-
fjöll.Á iaugardeginum verður farið
hringinn i kringum Kerlingarfjöll, suð-
ur Leppistungur vestan fjalla. Efvel
viðrar verður gengið að Kerlingargjá
og Kerlingarfossi.
Siðan verður farið
áfram austur og
norður með fjöllun-
um, Klakksleið, niður ~
i Kisubotna og vest-
ur með Kerlingar-
fjöllum norðanverðum. Heim á leið
verður haldið suður Leppistungur að
nýju ennú áfram i suður með Digru-
öldu, Lönguöldu og niður á linuveg.
Ferð fyrir breytta jeppa, búast má við
skörum iám og jafnvel snjó. Þátttaka
háð samþykki fararstjóra.
Þegar DV ræddi við starfsmenn ferðaskrifstofa voru flestir sammála um að ferðir
til Dublinar og Edinborgar væru þær vinsælustu. Margir sjá hag sinn í að sameina
jólainnkaupin og smá afslöppun. Verðlag erlendis auk hagstæðs gengis er líka hluti
af hagræðinu.
Fjöldi landsmanna fer utan að
minnsta kosti einu sinni á ári. Sumir
skella sér í tveggja til fjögurra daga
pakkaferðir til heimsborga og oft er
hægt að finna góðan pakka fyrir lágt
verð. Margir kjósa þó heldur að ferð-
ast á eigin vegum og nota netið í
þeim tilgangi. Margir viðmælendur
DV telja það vera nauðsyn að skella
sér svona rétt aðeins yfir veturinn.
Það hefur færst í vöxt undanfarin
ár að íslendingar skelli sér til útlanda
til að versla fyrir jólin og slappa að-
eins af í leiðinni. Margir leita eftir
hagstæðu verðlagi erlendis enda
hægt að gera góð kaup víða.
Islendingar hafi sótt mikið til
Dublinar og Edinborgar undanfarið
og borgir eins og Glasgow og London
eru afltaf vinsælar.
Icelandair hafa boðið pakkaferðir
tO þessara borga í áraraðir. Uppselt er
í allar slikar ferðir til áramóta hjá
þeim.
Sömu sögu er að segja hjá ferða-
skrifstofum - uppselt er í flestar
ferðir. Laust er þó í einstaka ferðir og
birtum við verð á nokkrum hér. í öll-
um dæmum er miðað við gistingu í
tveggja manna herbergi, með morg-
unverði, ferðum til og frá flugvelli,
auk flugvallarskatta.
Boð ferðaskrifstofanna
Hjá Úrvali-Útsýn fengust þær
upplýsingar að í flestar ferðimar væri
uppselt en þó væm nokkrar ferðir
lausar. Þar á bæ finna menn fyrir
miklum áhuga ferðalanga á Dublin,
enda ein skemmtilegasta borg
Vestur-Evrópu. Hjá Plúsferðum er
Við bendum á
þessar heimasíður:
www.plusferdlr.is
www.uu.is
www.heimsferdir.is
www.icelandair.is
www.icelandexpress.is
svipaða sögu að segja.
„Við höfum verið með ferðir til
Madridar og Rómar sem fýlltist í og
bjóðum núna upp á ferðir til Lublij-
ana í Slóveníu," segir Geirlaug Ingi-
bergsdóttir, sölumaður hjá Plúsferð-
um. Að sögn Geirlaugar er Dublin
vinsæl vegna stutts flugtíma. Þangað
er um tveggja stunda flug. Einnig er
boðið upp á ferð tif Istanbúl í Tyrk-
landi í vor. Þangað sér Geirlaug oft
sama fólkið fara ár eftir ár.
Heimsferðir bjóða upp á tíðar
leiguflugsferðir til Prag og Búdapest
auk íjölda annarra borga í Evrópu.
Guðbjörg Sandholt hjá Heimsferðum
bendir á netið sem góðan vettvang
fyrir fólk í ferðahug.
Flugfélögin bjóða
Icelandair flýgur til helstu borga
Evrópu eins og endranær. I vetrarbæk-
lingi þeirra er boðið upp á nokkrar
pakkaferðir með gistingu og farar-
stjóm, en þær em allar uppseldar sam-
kvæmt upplýsingum frá söludeild
HEIMSFERÐIR:
PRAG: 3 NÆTUR
ILF 40.990
Pyramida 51.790
Ibis City 47.790
Adria 60.190
Búdapest: 3 nætur
Tulip Inn 42.990
Erzsebet 54.790
Mercure Korona 66.590
ÚRVAL-ÚTSÝN
DUBLIN: 2 nætur
Westbury 51.640
Camden Court 42.440
PLÚSFERÐIR:
Camden Court 2 nætur 42.940 3 nætur 47.500
Temple Bar 44.940 49.500
þeirra. Bent er á að oft reynist hag-
kvæmt að leita ódýrra fargjalda á net-
inu og bæta hóteli við í kjölfarið.
Iceland Express býður ekki upp á nein-
ar pakkaferðir sem slíkar, en benda á
netið sem kost fýrir þá sem leita sér að
fargjöldum til áfangastaða þeirra.
Fyrst og fremst skemmtiferðir
„Fólk er fyrst og fremst að fara til
að gera sér glaðan dag,“ segir Helgi
Aðalsteinsson hjá Úrvali-Útsýn og
bendir á að margir hópar sæki til
borga eins og Ljubljana og Búdapest:
„Við sjáum mikið af hópum, eins
og saumaklúbbum eða starfs-
mannafélögum sem fara í skemmti-
ferðir en svo kemur auðvitað versl-
unin með. Það er minna um að fólk
fari beint til að versla, enda hefur
verðlag á íslandi breyst mikið und-
anfarin ár."
haraldur@dv.is
Bláa lónið er skammt undan en þó framandi og seiðandi
Stutt og
Ferðalög þurfa ekki að taka lang-
an tíma eða kosta mikla fyrirhöfn.
Fólk af höfuðborgarsvæðinu er ekki
lengi að að bruna í þessa indælu
paradís sem staðsett er rétt fyrir
utan bæinn. Hvernig væri að taka
ástvini sína með í notalega ferð,
leyfa sér að liggja í ylnum og láta
þreytu og hversdags drunga líða úr
sér? Eftir indælt kísilbaðið er svo til-
valið að kíkja á veitingastaðinn og
fá sér dýrindis máltíð. Hægt er að fá
sér bíltúr til Grindavíkur, skoða
nærandi
fjöruna og eða gæða sér á einhverju
sem veitingahúsin þar í bæ hafa
upp á að bjóða. Nýlega var Bláa
lónið valið besta náttúrulega
heilsulind í heiminum af hinu virta
breska ferðatímariti Condé Nast
Traveller. Meðal annarra heilsu-
linda sem voru á listanum voru
Clinique La Prairie í Sviss og Royal
Park Evian í Frakklandi. Það er því
greinilegt að stundum þarf maður
ekki að ferðast langt til að koma til
spennandi staða.