Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2005, Blaðsíða 29
DV Tréttir
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÚBER 2005 29
Úr bloggheimum
Snillingar!
„Erkominn tillslands eftir
ársveru erlendis. Er ný-
vaknaður og hefekkert
að segja. Kom með
lceland Express til lands-
ins seint í gær.Ætlaði að
kaupa DV þar sem það er eina
blaðið sem ekki er hægt að nálgastánet-
inu. Blaðið er ekki tilsölu f vétinni, en Morg-
unblaðið er hægt aö kaupa og er þvi ekið
um ganginn í blárri DV kerru. Þannig að
lceland Express selur ekki DVen auglýsir
DV. Næst á dagskrá, kaffi, fá sér göngutúr
niðurí bæ og fara á nokkra fundi.“
Kristjón Kormákur
- kristjon.blogspot.com
Hinn eini sanni Barrie
Steven
„Hittum svo Barrie Steven
sjáfan, vin Kollu, maöur-
inn sem á hárgreiðslu-
stofuna sem Kolla vinnur
á, sem heitir eimitt Barrie
Steven..hann er ógeðslega
rikur og er mjög llklega að fara að
vinna bresku hárgreiðsluverðlaunin þetta
árið. Við Kolla og Barrie skeltum okkur I
gufu og pottinn eftir góða æfmgu.. og end-
uðum á að borða dýrindis mat á veitinga-
staðnum í gymminu.. Gátum svo ekki ann-
að en fengið okkur hvítvinsglas með.. Beint
i æð! úff. Hann vildi ólmur fá að taka
myndir afmér til að senda á einhverja
módelstofu i london sem velur andlit fyrir
hárgreiðslustofurnar hans..já veit ekki al-
veg meððetta en whynot?!“
Þóra Margrét Jónsdóttir -
blog.central.is/thoram
Frfmúraðir
„Ekki þarfað leita langt aftur til þess að sjá
hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hélt (meö
dyggum stuðningi Framsóknar) hlífðar-
skildi yfir Olíufélögunum með þau hjón
Kristinn og Sólveigu fremst i flokki. Hafí
maður aðeins meira rými i minninu þá er
ekki frá þvi að heitiö Kolkrabbinn komi upp
i hugann. Ég man nú ekki
ur en þar hafi „innmúrað-
ir"eða jafnveljrímúrað-
ir" Sjálfstæðismenn set-
ið við alla katla. Og allt
méð dyggum stuðningi
hins vel múraða Morg-
unblaðs. Að ónefndum
hulduriddara flokksins, Kjart-
ani nokkrum Gunnarssyni, sem fast heldur
um taumana á leynifundum og smyslar
yfir allar sprungur sem í fýlkingunni birt-
ast.“
Þorleifur Örn Arnarsson
- lifandileikhus.blogspot.com
Guildford-fjórmenningarnir sýknaðir
Guildford-fjórmenningarnir, sem
voru ákærðir íyrir sprengingar írska
lýðveldishersins í húsum í bæjunum
Guildford og Woolwich í Englandi,
voru sýknaðir af öllum ákærum á
þessum degi árið 1989 eftir að hafa
setíð fjórtán ár í fangelsi.
Það var 5. október árið 1974 sem
sprengja ffá írska lýðveldishernum
varð fjórum mönnum að afdurtila á
krá í Guildford sem var mikið stund-
uð af mönnum úr breska hemum.
Önnur sprengja drap þrjá í
Woolwich. Breskir rannsóknarmenn
ruku til og fundu fljótlega tvo gmn-
samlega menn, Gerry Conlon og
Paul Hill, Norður-íra sem vom á
svæðinu þegar sprengingarnar áttu
sér stað.
Breska lögreglan gat á þessum
tíma haldið grunsamlegum hryðju-
verkamönnum í fimm daga við yfir-
heyrslur án þess að hafa neinar
sannanir. Á meðan Conlon og Hill
vom í haldi spann lögreglan upp
lygavef um tengsl fjölskyldu þeirra
og vinnu við írska lýðveldisherinn.
Síðan vom þeir neyddir til að skrifa
undir játningu eftir að hafa verið
pyntaðir andlega og líkamlega. Þeir
Laus eftir 14 ár Gerry Conlon, einn af
Guildford-fjórmenningunum, sést hér
ræða við blaðamenn eftiraö hann var
lausúrhaldi.
vom dæmdir í lífstíðarfangelsi
ásamt Paddy Armstrong, og Carole
Richardson.
í dag
Á þessum degi árið
1918 barst spænska
veikin til íslands með
tveimur skipum. í
þessari skæðu inflú-
ensu létust á fimmta
hundrað manns.
Fjórtán árum síðar var fjórmenn-
ingunum sleppt úr haldi eftir mikla
pressu frá almenningi. Þekktur
meðlimur írska lýðveldishersins
sem sat í fangelsi hafði viðurkennt
að hafa staðið á bak við sprengingar
og því var erfitt fyrir bresk yfirvöld
að halda fjórmenningunum.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Burt með tómatana
Tómas skrifar:
Það er eitt sem fer alveg skelfi-
lega í taugarnar á mér þegar ég
kaupi mér skyndibita eins og ham-
borgara, langlokur og samlokur
svo eitthvað sé nefnt. I flestum til-
fella eru tómatar hluti af áleggs-
blöndunni. Og þar þarf einmitt að
staldra við og hugsa.
Það má kalla mig matvandan
þótt ég telji mig sjálfur ekki svo ýkt-
an í því sambandi en að jafnaði
helmingur fólks sem ég þekki til,
fjarlægir eimmitt tómatana úr
matnum sínum. Því næst súru
gúrkurnar o.s.frv. Þessu tek ég mik-
ið eftir þegar ég horfi í kringum
mig á skyndibitastöðum auk þess
sem heldur margir sem ég þekíd til
gera það sama. Tómatarnir hafa
oftar en ekki verið pikkaðir úr og
liggja til hliðar. Ég þekki meira að
segja fólk sem í raun borðar
tómata en pikkar þá samt úr sam-
lokunum sínum. Ég vil líka nota
tækifærið og hvetja Sómasamlok-
ur, (sem brátt munu ráða yfir 95%
af samlokumarkaði fs-
lendinga) að
auka úrvalið
á sam-
lok-
unum sem er að mínu matí allt of
lítíð.
Hjá mér eru það bara tómat-
arnir sem undantekningalaust
víkja. Þeir eru skv. mínum bragð-
laukum eins og að hella lýsi yfir
hamborgarann. Það er ekki einu
sinni nóg að bara fjarlægja tómat-
inn úr samlokunni því safinn sem
verður eftir jafngildir bragðinu af
lýsi. Það eru eflaust fjölmargir
ósammála mér um þetta enda
snýst þetta að sjálfsögðu um mis-
munandi smekk manna. En þar
sem tómatabragðið er svo
skelfilegt fyrir þá sem
ekki borða þá, sem eru
fjölmargir, vil ég endilega koma
þessu á framfæri. Þeir veit-
ingaaðilar sem þetta gera
ættu að leyfa fólki
frekar að biðja sér-
staklega um að
settur verði
tómatur í
hamborgar-
ann. Maður
man ekki
alltaf eftir því að biðja um matinn
mínus tómat.
Þess vegna er mjög hentugt að
fara á Subway þar sem maður
stendur yfir afgreiðslufólkinu á
meðan það raðar sérvöldu græn-
metinu í bátinn. Húrra Grillhús
Guðmundar, húrra American Style,
Húrra Aktu taktu og fleiri. Þetta eru
staðir sem eru ekki að menga
skyndibitann sinn með tómötum
nema maður biðji sérstaklega um
það. Viljið þið samloku með dass af
lýsi? Burt með
tómatana!
Tómatar Skað-
með
skyndibita að
mati bréfritara.
Lesendur
Jón Einarsson
skrifar um auðmýkt
Sjálfstæöisflokksins.
Fréttablaðið
lýgur upp á Sjálf-
stæðisflokkinn
„Geir Haarde gengur til verks af
auðmýkt" stóð á forsíðu Frétta-
blaðsins í gær. En hafa sjálfstæðis-
menn í raun skipt hrokanum út
fýrir auðmýkt? Eða er Fréttablaðið
kannski bara að ljúga upp á þá?
Það er líklega auðmýktin sem
rekur sjálfstæðismenn til þess að
samþykkja ályktanir um einkavæð-
ingu í heilbrigðiskerfinu, þá þjóð-
hættulegu hugmynd. Og það hlýtur
að vera auðmýktin gagnvart vímu-
efnavandanum sem fær þá til að
samþykkja að gefa sölu á áfengi
fijálsa. Og auðmýktín hefur greini-
lega ráðið för er þeir samþykktu að
leggja niður fbúðalánasjóð og gera
fólk ofurselt bankakerfinu, sem
eins og allir vita er algerlega rekið
af mannúðarsjónarmiðum en ekki
með hagnað í huga.
Og það er auðvitað auðmýktin
sem fær sjálfstæðismenn tU þess að
reyna að kenna Jóni Kristjánssyni
heUbrigðisráðherra um niðurskurð
eldsneytisstyrks öryrkja, þó svo að
krafan um niðurskurð í heUbrigðis-
kerfinu hafi komið ffá fjármálaráð-
herra Sjálfstæðisflokksins. Orðin
„Hátt ber að stefna" var þá eftir allt
enginn innihaldslaus frasi. Með
þeim áttu þeir við að í stað þess að
bíta samstarfsflokkinn í hælana
ætluðu þeir að hækka sig upp og
stínga hann í bakið. Stórmennsku-
legt, ekki satt?
En að einu leytí er auðmýktin
keppikefli Sjálfstæðisflokksins. Það
er gagnvart peningaöflunum, þeim
sem borga til flokksins. Þess vegna
getur flokkurinn boðið fram tU for-
seta Alþingis vanhæfan einstakling.
Af hreinrú auðmýkt.
Selur enskum aðli íslenska hönnun
„Þetta er verslun og gallerí
sem selur húsgögn, lampa, list-
muni og skartgripi, allt hannað af
íslendingum," segir Magnús J.
Magnússon, eigandi Design
Centre Knightsbridge í London.
„Konan mín, Dagmar, hefur
unnið með íslenskum húsgagna-
hönnuðum í mörg ár i gegnum
fyrirtækið Sólóhúsgögn," heldur
Magnús áfram. „Við erum í raun
að uppfylla draum íslenskra
hönnuða og framleiðenda um að
geta selt vörurnar sínar á erlend-
um markaði enda miklu stærri en
sá íslenski. Við höfum líka mikla
trú á íslenskri hönnun og hand-
verki og höfum séð hversu mikla
athygli hún fær á sýningum svo
við álcváðum að slá til og opna
verslun sjálf."
Magnús telur íslenska hönnun
ekld síðri en þá dönsku, það sé
bara spurning um markaðssetn-
ingu. Sem dæmi um hluti sem
bbmammmmmmmmam
hafa vakið athygli í versluninni
nefnir Magnús stólinn Gíraffa
eftir hinn fslensk/ameríska
Chuck Mack ásamt rúnaháls-
menum hönnuðum af Sólborgu
Sigurðardóttur.
Hvernig lítur Magnús á fram-
tíðarhorfur verslunarinnar?
„Ég tel þær mjög góðar miðað
við þá athygli sem við höfum
fengið á þessum stutta tíma frá
því að við opnuðum. Staðsetning
er mjög góð og gæti í rauninni
ekld verið betri. Hérna í kring eru
dýrustu fasteignir Bretlands og
það er stöðugur straumur af
ferðamönnum. í nokkra metra
fjarlægð frá okkur eru tvær þekkt-
ustu verslanir Englands, þær
Harrods og Harvey Nichols, auk
„Við höfum mikla trú
á íslenskri hönnun
þess sem Buckingham Palace og
Hyde Park eru í göngufæri. Ég
held líka að öll umræða um við-
skipti ísiendinga hjálpi mikið.
Fólk virðist vera mun áhugasam-
ara um ísland vegna þessarar
miklu athygli sem Baugur, Bakka-
vör og bankarnir hafa fengið. Við
höfum heyrt talað um að íslend-
ingar séu að kaupa England og
maður finnur fyrir mikilli virð-
ingu í garð íslendinga fýrir hvað
þeir eru að standa sig vel í við-
skiptalífinu í London."
V