Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2005, Page 31
DV Lífið
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER2005 31
Frá því að Idol-Stjörnuleit hófst hafa þónokkrir keppendur dottið út við mismikla
kátínu. DV hefur fengið nokkra þessara krakka til að segja söguna af sinni upplif-
un og að þessu sinni er það Stella Christensen sem fékk fremur óblíðar viðtökur
frá Bubba Morthens þrátt fyrir að eiga svipaðan uppruna og kóngurinn.
„Mér var alveg sama um Bubba.
Ég hlustaði voða lítið á það sem
hann var að segja þannig að ég var
ekkert að taka þetta neitt nærri
mér," segir Stella Christensen sem
tók þátt í Idol-Stjörnuleit 3. Hún
komst ekki áfram.
Hundleiðinleg bið
Stella segir að biðin eftir að kom-
ast inn í dómnefndarherbergið hafl
verið „hundleiðinleg og stressandi".
„Ég var ógeðslega stressuð, ég var
búin að bíða í tólf tíma,“ segir Stella
og útilokar ekki að það hafi haft ein-
hver áhrif á flutning hennar. Þegar
Stella flutti lagið brást Bubbi hinn
versti við og skammaði hana fyrir
óöryggi og talaði yfir hausamótun-
um á henni. „Fyrirgefðu," sagði
Stella í þættinum.
Stella er hálfur Dani, rétt eins og
Bubbi. „Hann hefði átt að vera betri
við mig fyrir vikið," segir Stella og
hiær. „Hver veit nema hann sé
frændi minn?" Bubbi taiaði um í
þættinum að sjálfur léti hann aldrei
nokkurn mann sjá það á sviðsfram-
komu sinni að hann væri veikur eða
slíkt. „Hann er búinn að vera að
syngja í þrjátíu ár og getur ekki ætl-
ast til þess að fólk sem hefur aldrei
sungið mæti inn með hálsbólgu og
standi sig vel," segir Stella.
Ekki búin að sjá þetta
Stella kom með vini sínum á Hót-
el Loftleiðir en hann var sá þriðji inn
til dómaranna. Eftir það mátti Stella
bíða með eymsli í hálsi. „Ég var með
hálsbólgu og búin að vera að drekka
einhverja fjallagrasamixtúru yfir
daginn," segir Stella en það dugði
ekki til. Röddin var nánast farin.
„Þegar ég labbaði út frá dómurun-
um gat ég ekki talað."
Það getur verið undarlegt að sjá
sjálfan sig á sjónvarpsskjá en hvern-
ig ætli sú upplifun hafi verið fyrir
Stellu? „Ég er ekki búin að sjá þetta,
ég er bara búin að fá svona 30 sms,"
segir Stella. Hún hefur sungið
nokkuð í gegnum tíðina, þá aðallega
i kórum. Einu sinni átti hún að
syngja einsöng. „Þá missti ég rödd-
ina," segir Stella og hlær.
Hárgreiðsludama
og gengilbeina
Stella segist ekki ætla aftur í Idol-
Stjörnuleit en mun líklegast halda
eitthvað áfram að syngja enda spilar
hún á gítar og hefur samið lög á
hann. Hún segist ekki sjá eftir að
hafa farið í Idol. „Mér finnst þetta
bara fyndið. Ég fór ekki að grenja og
„Ég varmeð háls-
bólgu og búin að vera
að drekka einhverja
fjallagrasamixtúru
yfir daginn."
ég féll ekki í yfirlið. Ég neitaði meira
að segja samlokuknúsi," segir Stella
en hún mun vera eina stúlkan í sögu
Idol-Stjörnuleitar sem hefur gert
það. Milli þess sem hún spilar á gít-
arinn stundar hún nám í hárgreiðslu
og vinnur á Hressó.
Búin að troða upp á Hressó?
„Ég hef ekki verið beðin um það,
ætli ég myndi ekki bara missa rödd-
ina."
soli@dv.is
Pepsi Rokk heldur áfram á Bar 11 í
kvöld. Pepsi Rokk-tónleikaröðin hefur
notið mikilla vinsælda og eins og áður
mun eitt þekkt band spila ásamt tveimur
öðrum í yngri og óþekktari kantinum.
Það er hljómsyeitin Jan Mayen sem sér
um að kynda upp í fólkinu, en það ætti
að vera góð upphitun fyrir bandið sem er
að fara að spila á Gauknum á laugardag-
inn en það mun vera hluti af hinni mikil-
fenglegu Airwaves-hátíð. Ásamt Jan
Mayen eru það hljómsveitirnar Berterel
og The Dyers sem spila. Báðar hljóm-
sveitirnar hafa reynt fyrir sér í músíktil-
raunum og vöktu þær mikla athygli, þó
að þær hafi ekki náð að komast í sæti.
Þær ungu hljómsveitir sem spilað hafa á
Pepsi Rokk hafa sýnt það og sannað að
þær eiga fullt erindi á meðal reynslubolt-
anna. Tónleikarnir hefjast klukkan 18 og
standa til 20, en Airwaves hefst einmitt
sama kvöld. Það er alveg kjörið að byrja
Airwaves-hátíðina á því að kíkja á unga
fólkið spila á Bar 11, eins og áður og alltaf
er frítt inn.
dori@dv.is
Guðrún Ögmundsdóttir
kvenskörungur ér 55
ára í dag. „Hún virðist
skilja kjarnann frá
hisminu með því að
ýta þeim málum sem
vekja hjá henni ónot
burt og losar sig endan-
lega við þau með innri
styrk sínum og vits-
munum," segir í
stjörnuspá hennar.
Vatnsberinnj2o.M-;«.few
Nýverið virðist þú hafa verið
með hugann viö fortíðina. Með því að
líta um öxl og sjá hvað vel fór og ekki
sfður hvað betur mátti fara. Þú gerðir
það sem réttast var hverju sinni en nú er
komið að því að horfa einungis fram á
við og láta fortíðlna lönd og leið.
Guðrún ögmundsdóttir
FlSkmlr (19. febr.-20.mars)
Nýr kafli blður þín en hefst
þó eigi fyrr en gamlir siðir og úrelt
viðhorf gleymast. Allt sem þú rann-
sakar verður mikilvægt í lífinu og leið-
ir þig áfram ef marka má stjörnu þína.
Hrúturinn (2l.mars-19.aprH)
Nýjar hugmyndir koma upp
á yfirborðið og tækifærin láta ekki á
sér standa þegar stjarna hrútsins er
tekin fyrir.
NaUtÍð (20. apríl-20. mal)
Uppfinningasamt og ástríðu-
fullt er nautið gagnvart þeim sem það
elskar.Tilfinningar, ást, næmni, andleg
líðan þín sem og listrænir hæfileikar
koma hér fram.
JÆmm (2lml-21.júní)
Þú ættir að gefa og þiggja til
þess eins að halda auði og allsnægt-
um, eða hverjum þeim gæðum sem
þér finnast erftirsóknarverð í tilver-
unni. Leiðin að markinu hefur verið
fyrirfram ákveðin.
KMm(22.júnl-22.júli)______________
Ef þú tilheyrir stjörnu krabbans
býrð þú yfir miklum vitsmunum og ert
fljót/ur að átta þig á stöðu mála. Þú átt-
ar þig fljótt og örugglega á aðstæðum
þegar kemur að ákvarðanatöku og svo
er innsæfþitt líka öflugt.
l)ÓWfi(23.)úll-2lógúst)
Aðstæður kalla á varkárni þar
sem þér er ráðlagt að kanna aðstæður
vandlega áður en endanleg ákvörðun
er tekin. Innblástur, sköpunargáfa,
spenna, metnaður og vilji til að fram-
kvæma hugmyndir þinar sem þú hefur
eflt innra með þér lengí vel birtist hér.
Meyjan (20 ágúst-22. sept.)
Þú ert fær um að koma hug-
myndum þínum frá þér og metnaður
þinn flýtir fyrir ferlinu yfir í nýjan kafla
sem færir þér fjárhagslegt öryggi.
Vogin sepf.-2J. okfj
Hér kemur fram að þú ert hlý
og heil manneskja sem gefur hjarta
þitt af alhug þegar ástin er annars
vegar. Þú nýtur lifsins og stundarinnar
á réttan hátt.
Sporðdrekinn (2ioh.-21.a6r.)
—
Þér leiðist jafnvel um þessar
mundir en þú ættir ekki að gefast upp
eða missa móðinn því hér er um eins-
konar próf að ræða þartil næsti kafli
hefst. Hér er einhvers konar þjálfun á
ferðinni sem er án efa undirbúningur
fyrir næsta skref sem þú ert að taka.
Bogmaðurinn (22.n6v.-21.desj
Heppnin leikur við þig og ósk-
ir þínar rætast en talan sjö staðfestir
velferð þína. Alsæla og ómæld gleöi
birtist þér.
Steingeitinf22.te.-r9.jon.j
Heppnin eltir þig uppi og sér
til þess að hamingjuhjólið snúist þér i
hag ef marka má steingeitina í dag.
Endir verður á erfiðleikum og ónotum.
Almenn vellíðan birtist.
SPÁMAÐUR.IS