Símablaðið - 01.07.1945, Blaðsíða 16
36
SÍMABLAÐlÐ
svo sjálfsögð, að öðruvísi gæti það ekki
verið, því ég fann að það var ávöxtur af
hans eigin persónuleika. Enginn gat haft
samstarf við Þórð, án þess að finna, að
samvizkusemi var einn af hans sterkustu
eðliskostum, og hún var svo samræmd, að
hann gat árekstralaust gætt jafnt hags-
muna þeirrar stofnunar, sem hann vann
fyrir og hinna mörgu einstaklinga, sem
viðskipti höfðu við þana. Auk stöðvar-
stjórastarfsins, sem hann hafði á hendi í
27 ár, ásamt meiri og minni símaafgreiðslu.
vann Þórður einnig að iðn sinni, skósmíð-
inni, er liann ungur nam, þótt síðari árin
legði hann hana að mestu niður, er síma-
starfið var orðið það umsvifamikið, að hann
taldi sig þurfa að helga því starfskrafta
sína óskipta.
Þórður var félagslyndur, enda þótt hann
hefði sig lítt í frammi til forystu, olli því
hlédrægni 'nans. Hann var einn af hvata-
mönnum til sfcfnunar félags meðal stöðva-
stjóra og stofnandi þess. Hann skildi vel
nauðsyn samtakanna og gildi þeirra, enda
var vart hægt að fá samvinnubetri mann,
né einlægari i félagsskap, en hann. Hann
var ætíð heill, hvort heldur hann fór einn,
eða með öðruin.
Þessir góðu eiginleikar, ásamt glöðu
viðmóti og prúðmannlegri framkomu,
gerðu hann vinsælan meðal allra þeirra,
sem honum kynntust.
Það var því eðhlegt, að vini hans og
hina morgu kunningja, setti hljóða, er
þeim barst fregnin um andlát hans, er bar
að með þeim hætti, að hann varð bráð-
kvaddur á heimili sínu.
Þórður var kvæntur Guðrúnu Sveins-
dóttur og lifir hún mann sinn ásamt börn-
uni þeirra hjóna, þrem dætrum og einurn
syni, öllum uppkomnum. — Enda þótt
flestar og ástrikastar séu minningar þeirra,
um góðan eiginmann og föður, geyma þó
samferðamennirnir jafnan hugljúfar minn
ingar um góða menn, sem með þeim lifa,
— og Þórður Sæmundsson var einn slíkra
manna.
Blönduósi, 30. ágúst 1945.
Karl Helgason.
„SJÓVÁTRYGGING“
er alíslenzkt fyrirtæki sem tryggir
skip yðar veiðarfaeri og farm fyrir
sjóskaða, líf yðar og heilsir fyrlr
fátækt og neyð, innbúið fyrir bruna,
bifreiðina fyrir alls konar tjónl, fyrlr-
tækið "fyrir skaða af rekstursstöðvun
vegna bruna og húsið fyrir jarðskjálfta.
Tryggið allt
hjá „Sjóvá"
gSÚ