Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2005, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005
Barnabækur DV
A himni blikar stjarna
Villi íkorni safnar liði
gegn fulltrúum hins
illa: fram fram fylking
Uppi í skýjum er nútímalegt æv-
intýri um flótta að heiman og móð-
urmissi, nýjan stað og nýja vini,
hættulega stigu og leit að nýjum
heimkynnum. Sagan er ný af nálinni
og byggir á samstarfi þriggja virtra,
breskra listmanna. Hún er auðveld
aflestrar með stóru og skýru letri,
hefur yfir sér nútímalegan skemmti-
blæ teiknimyndanna með skýrum
persónum með einfalda drætti og
klárt erindi í plotti sögunnar. Gott ef
sagan endar ekki á hvíta tjaldinu.
Það em vandfundin þau verkefni
sem McCartney (já, Bítiliinn) leggur
nafn sitt við sem skapa honum ekki
tekjur.
Þetta er mórölsk saga fyrir nýja
öld: boðskapurinn er að maðurinn
hafi tortímt náttúm sinni sem em
orð að sönnu og dýrið geti fundið sér
sælustað í fjarlægum stað, eyju út í
eilífðarútsæ. Þar er raunar fyrir sam-
félag dýra sem minnir mest á hinn
þjóðþekkta Hálsaskóg Egners. Meg-
inþættir sögunnar minna á gamla sí-
gilda sögu, Watership Down. En sagt
er að við endurtökum í sífellu þessar
fáu gmnnhugmyndir sem mann-
kynið hefur gaman af og not fyrir.
Því þá ekki einu sinni enn.
Þetta er fallega unnin bók. Hún
nær allt til ungra áheyrenda ef sögu-
maður leggur sig í leik og
kærkomin lesning yngstu
lesendum. Hún er á lif- i
Uppi í skýjun-
um
Paul McCartney, Geoff
Dunbcr og Philip
Ardagh
Þýðing: Kristín Thor-
lacius
Uppheimar
Verð 2.680 kr.
Barnabækur
andi máli og nöfn prýðilega snúin á
íslensku. Aðeins eitt hnaut ég um:
sögnina að leiðsegja...
Myndskreytingar Dunbars em
upphaflega teikningar en litun og
bakgmnnar eru gerðir í tölvu. Þar er
að finna klassískar vísanir eins og í
ristur Piranesi. Litirnir em djúpir og
í myndunum má finna
fullt af smáatriðum sem
duga jafnvel allra yngstu
börnunum. Saga þeirra
þrímenninga brúar
þannig bil nokkurra kyn-
slóða. Það er smákeimur
af einstrengingslegum
dýraverndaráróðri þeirra
sem búa við góð efni í
stórborgum - en gerir það
til? Veitir af því að gera
ungum borgurum grein
fyrir þeirri vá sem maðurinn með
tækjum sínum og tólum hefur dreg-
ið yfir jarðkringluna og allt sem á
henni lifir.
pbb@dv.is
Skrímslabókin
Risaeðluáhugi krakka hefur vaxið
hin seinni ár. Valda þar mestu tölvu-
gerðar myndir af
þessum fyrir-
brigðum fyrri jarð-
skeiða sem áttu
upphaf sitt í tölvu-
teiknuðum mynd-
skeiðum í Jurassic
Park-framhalds-
myndaröð Stevens
Spielberg. í fram-
haldi þeirra var flutt
hingað til lands far-
andsýning í vélkynj-
uðum eðlum af ýms-
um tegundum sem öllum
til undrunar var fásótt. Hvers kyns
gúmmivörur hafa lengi verið fáan-
legar á leikfangamarkaði af forneðl-
um og ekki að undra að reynt sé að
beisla áhuga barna á efni sem vakið
getur frekari forvitni um forsögu
jarðarinnar.
Þannig er þessi
bók tilkomin. Hún
er ætluð krökkum
sem eru orðnir vel
læsir og þar rekja
þær Maribel og
Ingibjörg kunnug-
ar upplýsingar um
nokkrar tegundir af
forneðlum, á
hvaða tíma þær
lifðu og hvernig fór
fyrir þeim.
Textinn er ein-
faldur og skýr og
stærðarhlutföll dýranna og kunnug-
legri hluta sýnd í myndum. Maribel
vinnur myndir sínar með tússi og
Risaeðlutíminn
Ingibjörg Briem og Maribel
Gonzalez Sigurjóns:
Mál og menning
Verð 2.990 kr.
★ ★★☆☆
Barnabækur
vatnslitum, með sterkum fígurum á
veikum bakgrunnum.
Vatnslitaðar myndskreytingar
eru algengar í íslenskum barnabók-
um þessa dagana. Þó gleðjast megi
yfir þeim fjölda nýrra íslenskra
barnabóka á markaði fyrir ólíka ald-
urshópa, er því ekki að neita að
meiri fjölbreytni mætti vera á mynd-
skreytingum.
Risaeðlutíminn er skemmtileg
bók fýrir unga og fróðleiksfúsa les-
endur. pbb@dv.is
44«ÍÉ». pws***1"*1*
Þuluformið í sínum fjölbreyti-
leika höfum við líklega yfirgefið full-
snemma. Það sést á romsum Aðal-
steins Ásbergs sem eru sprottnar af
fornri bragíþrótt að slíkir bragir
geta verið býsna glúmir ef andinn
er ffjáls og rímið huganum fært.
Það læðist gmnur að lesanda að nú
séu síðbúnir lærisveinar Þórarins
Eldjáms komnir á stjá enda er
margt í gamansemi Aðalsteins sem
er þeirrar ættar.
Romsubókin er fýrir vel læsa
krakka í stóm broti og með hörðum
spjöldum. Hún er ekki myndlýst af
Höllu með þeim hætti að myndir
styðji lesturinn, ekkert myndefni
stendur sjálfstætt og kallar á athygli
augans utan textaheimsins. Þær em
einfaldlega grunnar sem er miður,
því undantekningar eins og í Mýr-
arkattaromsu sýna að vel hefði mátt
gera sér meiri mat úr kveðskapnum
með beinni vísunum í romsumar.
Hvað er romsa, spyrðu? Langir
Romsubókin
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
og Halla Sólveig Þorgeirsdóttir
Dimma
Verð 2.450 kr.
★★☆☆☆*
Barnabækur
bálkar en þeir em alls átján eins
og böm karlsins í álfheimum.
Þar er allt í belg og biðu: sumar
hreinlega uptalningar eins og
Mannanafnaromsa og Fjallanafn-
aromsa, en aðrar rekja ástand. Ein
prýðileg öfugmælaromsa er í
skræðunni en best þótti mér Ræf-
ifstuskuromsan þar sem raunir
borðmskunnar em raktar.
Aðalsteinn hefur áður lagt sig
eftir kveðskap fyrir krakka. Þótt hér
sé gripið til ýmissa bragða (stórt let-
ur, stundum í mismunandi lit) og
spássía sé á reiki, óttast ég að roms-
urnar séu í einni samfellu á síðu án
þess að þær séu brotnar í vísuparta
eða kafla, ungum lesanda ofviða.
Það reynir fullmikið á ung augu að
lesa svo langa bálka.
Oft tekst Aðalsteini bráðvel upp.
Hann er hugkvæmur á köflum og
kveður ekki ódýrt nema á pörtum
enda em þetta langavitleysur sem
eiga sér víða ætingja og ekki bara í
einu landi.
Bókin er skemmtilegt tiltæki og
vonandi láta romsuritarinn og
teiknari hans ekki staðar numið
heldur leggja út í nýjar langlokur.
pbb@dv.is
I
v.Q'