Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2006, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2006, Blaðsíða 21
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 19.JANÚAR2006 21 Lesendur Úr bloggheimum (3 Álitsgjafar kastljósanna „Það var líka fróðlegt og sérstæð upplif- un að fylgjast með umræðu fjölmiðla um fjölmiðla í hvirfilbyln- um sem hefur verið kall- aður DV- málið. Sú um- ræða hljómaði undar- lega í heimabæ Gisla heitins Hjartarsonar sem var ágætur kunningi minn og frændi og það var dálitill munur á því sem maður heyrði i álitsgjöfum kastljósanna og hinu sem heyrðist þeg- armaðurlagði eyrað aðgötunni." Páll Ásgeir Ásgeirsson - mal- bein.net/pallasgeir Afgungum og heiglum „Það sem fólki íhugaræsingi finnstgott að heyra er aldrei það sem það hefur gott afþvl að heyra. Æst fólk vill heyra æsing sinn réttlættan og bakkaðan upp, ekki vera beðið um að igrunda af- stöðu sína vel og vandlega og skoða málið frá öllum hliðum. Því finnst gott að heyra afdráttarlaust tekið undir með einstrengingslegri afstöðu sinni og finnst vænt um þá sem það gera, en vont að heyra einhvern vé- fengja að málið sé svona einfalt og er illa við þá sem neita að gerast meðvirkir. Það þarfhugrekki til að segja æstum múgi eitt- hvað sem hann vill ekki heyra og vera reiðubúinn til að taka afleið- ingum þess. Versta gunga treystir sér aftur ámóti til að segja honum að hann hafi rétt fyrir sér, því hún veit fyrir- fram að þannig uppsker hún aðeins vinsældir. Það lýsir því engu öðru en heigulshætti að stökkva á vanþóknun- arbylgju eins og þá sem skók þjóðfé- lagið Isíðustu viku og ætla að„sörfa“ hana tilpersónulegra vinsælda." Davíð Þór Jónsson - deetheejay.blogspot.com Áfram Arsenal „Theo Walcott keyptur tilArsenal á 15 milljónir punda samkvæmt BBC! Hahahahhaha... Vieira seldurá 11 millj- ónir og sextán ára strákur frá k Southampton keyptur á 15! Fer hann í flokk með Francis Jeffers (10 m) og Richard Wright (7 m)? Áfram Arsenal!". Elvar Gelr Magnússon - blog.central.is/elvargeir Slátrarinn frá Þennan dag árið 1983 var nas- istaforinginn Klaus Barbie hand- tekinn í Bólivíu. Hann hafði þó ver- ið fundinn töluvert fyrr af mönnum sem leituðu nasista uppi. Það var ekki fyrr en stjórnvöldum þeim sem héldu yfir honum hlífiskyldi var steypt af stóli að hann var fram- seldur til Frakklands. Þar var réttað yfir honum vegna glæpa gegn mannkyninu. í starfi sínu fyrir nasista í frönsku borginni Lyon fékk hann viðurnefnið „Slátrarinn frá Lyon" sem lýsti vel hvaða mann hann Lyon handtekinn hafði að geyma. Hann sendi þús- undir manna í dauðann, bæði gyð- inga og fólk úr andspyrnuhreyfingu Frakklands á þeim tíma sem her- setu þýska ríkisins stóð yfir. Eftir sigur bandamanna var Barbie tek- inn undir verndarvænd banda- rískra yfirvalda gegn því að hann njósnaði um starfsemi Sovét- manna. Árið 1949 var honum smyglað á vegum Bandaríkja- stjórnar til Bólivíu. Þar vann hann ötullega fyrir einn hrikalegasta ein- ræðisherra suður Ameríku, Hugo „E1 Petiso" Banzer sem komst til Klaus Barbie ásamt konu sinni Nasistinn vann við pyntingar ! Bóllvlu. I dacj Þennan dag arið 1992 komu Sykurmolarnir lagi sínu Hit í 17. sæti breska vinsældalistans. Mezzoforte hafði einnig náð því sæti níu árum áður. valda 1971. Eftir að frjálslynd ríkis- stjórn komst til valda árið 1980 var samþykkt að framselja Barbie gegn rausnarlegri neyðaraðstoð frá Frökkum. Hann var dæmd- ur í lífstíðarfangelsi fyrir 177 glæpi gegn mannkyni. Hann lést úr hvítblæði þann 25. september 1991 í fangelsi í Lyon. Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Heillaóskir til Steingríms Guðrún hríngdi: Ég fann mig knúna til að hringja eftir að ég las viðtalið við móðir Steingríms J. í DV. Þegar ég heyrði fyrst af slysinu fékk ég svo gjörsam- lega fýrir hjartað. Það fékk líka á að lesa um Sigríði móður hans sem talaði um slys sonar síns af mikilli stillingu líkt og vitrum eldri konum er tamt. Þrátt fyrir að ég sé ekki flokks- maður Steingríms og sé oft á önd- verðri skoðun við hans þá er Stein- grímur líklega sá alþingismaður sem ég ber hvað mesta virðingu fyrir. Heiðarlegri og duglegri mann er vart hægt að finna. Þá er unun af því að hlýða á hann þruma yfir Al- þingi þegar eitthvað mikið liggur á. Eg bið fyrir því að Steingrímur verði fljótur að ná heilsu sinni því þingið er veikara án hans. Fjöl- skyldu hans og aðstandendum sendi ég líka kveðjur mína á þessum erfiðu tímum. Steingrímur á sjúkra- beðinu Fær heillaóskir frá lesenda. Góð þjónusta í Elko Frá Elko við Smára- torg. Hjálmar er ánægður með þjónust- una þar. Hjálmar hringdi: Ég brá mér bæjarleið í Kópavog- inn í stórverslunina Elko um daginn og verð að koma því á framfæri hversu góða þjónustu sölumaður- inn sem mig minnir að heiti Hörður veitti mér. Þjónustan skiptir miklu Lesendur máli þegar aldnir menn eins og ég koma á svonaistaði með litla kunn- áttu á nýjustir tækni. Það var bæði ljúft og gott að koma þangað og jafn- vel fá sér sæti þegar lappimar þreyttust. f Frjálshyggjumaðurinn segir Geir Ágústsson ræðir um vægi málfrelsis. Um málfrelsið góða Oft er sagt að á íslandi rflci mál- frelsi. Við hreykjum okkur af þessu. Við bendum á frjálslynt ákvæði í stjórnarskránni þar sem tjáningar- frelsi í orðum og á prenti er varið. Á íslandi ríkir hins vegar ekki mál- frelsi. Á eftir stjórnarskrárákvæðinu sem kveður á um frelsi til tjáningar kemur ákvæði sem kveður á um skerðingu þess frelsis, m.a. í nafni furðufyrirbæris sem nefnist „alls- heijarregla", og minnir helst á eitt- hvað sem forsvarsmenn Þriðja rflc- isins hefðu geta látið sér detta í hug. Hvað gerist til dæmis ef mér dytti í hug að kaupa 30 sek- úndur af sjónvarpsút- sendingu og segja frá nýja og frábæra vodkanum í Vínverslun Al- þingis?Hvað efég segði að ilmandi tóbaksreykur væri ekki bara fíkn og heilsuspÚlir, held- ur einnig ánægjuvaldur og félags- styrkjandi meðal? Hvað ef mér dytti nú í hug að ferðast til svörtustu Afr- flcu, mynda mér einsleita en jafn- framt einlæga skoðun á hegðun og atferli innfæddra, og segja svo frá henni á ákveðinn og ef til vill harð- orðan hátt í íslenskum prent- eða útsendingarmiðli? Á meðan Alþingismenn kalla hvern annan ókvæðisorðum á hinni virðulegu löggjafarsamkundu íslendinga er saklausum borgurum hótað eignatöku og frelsissviptingu ef þeir tjá sig út fyrir ramma þess sem kallast „allshetjarregla". Er þetta málfrelsi? Með ólæknandi fuglaáhuga „Ég var alinn upp að hluta til í sveit og þar kviknaði fuglaáhuginn hjá mér," segir Jóhann Óli Hilmars- son, fuglafræðingur um hvernig það atvikaðist að hann varð bitinn af bakterfunni, eins og hann kýs að kalla áhugann. „Þetta er ólæknandi sjúkdómur að vera haldinn svona feikna áhuga á einhverju. Það að ná að sameina áhuga og atvinnu er það sem fólk keppist að í lífinu og það hefur mér tekist skrambi vel," segir Jóhann sem vart trúir að hann fái greitt fyr- ir að sinna áhugamálinu. Það helsta sem stendur upp úr á ferli Jóhanns er að fylgjast með fuglafánunni við Tjörnina í miðbæ Reykjavíkur, enda stundaði ég nám við Mennta- skólann við Tjörnina sem síðar varð við Sund. „Þótt ég hafi ferðast víða um heiminn er þrjátíu ára rannsóknar- starf okkar við Tjörnina það sem hefur skilað mér hvað mestu. Það eru margir borgarbúar sem átta sig ekki á að í næsta nágrenni eru mjög líflegar fuglabyggðir, eins og til dæmis á Seltjarnarnesi og eyjunum úti á Kollafirði. Á Lundey og Akurey eru til dæmis miklar lundabyggðir sem margir átta sig ekki á að þeir hafa í bakgarðinum," segir Jóhann sem er þessa dagana að leggja loka- hönd á bók um lundann. Hann hef- ur áður gefið út bókina íslenskur fuglavísir, sem út kom 1999. „Þegar vinnan og áhugamálið liggja saman er erfitt að draga mörkin á hvað sé vinna og hvað ekki. Maður lærir það samt með aldrinum, fjölskyldumálin og „Þegar vinrtan og áhugamálið liggja saman er erfítt að draga mörkin á hvað sé vinna." áhugamálin. Það er lflca alltaf spurning hvernig makarnir taka svona áhugamáli. Sem betur fer styður kærastan mín mig með ráð- um og dáð og finnst gaman að. Ferðalög heilla hana og því lætur vel að við ferðumst saman og njót- um þess vel." , er fæddur og uppalinn I Reykjavík en ættaður úr Flóanum, sonur þeirra s Giestssonar og Hönnu Ágústsdóttur. Hann er menntaðurnattufræa- n Ijósmyndun er hans aðaláhugamál fyrir utan fuglana. Johann er for ctenHur fvrir skoðunarferðum viða um heim. Hann Jóhann Óli Fugla- fræðingur segir fuglaáhugann ólæknandi sjúkdóm 03 4S s? 2 o CQ 3 3 l/> 5 3 E Ol o & $ Maður dagsms

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.