Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 Fréttir UV Ásgeir þykir keppnismaður mikill, úrvalspersóna og traustur vinur. Hann tekur lífið ofalvar- lega, lætur skapið hlaupa með sig í gönur og fór of snemma frá meistaraflokki Hauka i handbolta. „Hann er gríðartega ákveðinn I öllu sem hann gerir og keppnis- skapið óendaniegt. Hann er eins og naut þegar hann keppir, sér rautt. Ásgeir er mjög metnaðargjarn Iþví sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann er traustur og góður vinur. Hann á það til að taka llfið ofalvarlega, stund- um ofeinbeittur og gleymir að lifa lífinu fyrir vikið." Andrí Stefán Guðrúnarson, hand- boltamaður í meistaraflokki Hauka. „Hann er harðduglegur strákur. Hann er mjög efnilegur handbolta- maður og okkar fram- tíðarmaður I landslið- inu. Hann er sterkur á öllum sviðum, drlfandi og hraður og erfitt fyrir hina að fylgja hon- um eftir. Ásgeir hefur mikið keppnisskap. Stundum er hann svolítið bráður og á það til að láta skapið koma sér í koll." Halldór Ingólfsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks Hauka. H „Hann veit hvað hann vill og hefur óbilandi vilja. Hann er mjög agaður og veit hvert hann ætlar sér og gerir allt til að komast þangað. Hann er úrvalspersóna, heill strákur og góður félagi. Einu gallarnir sem ég finn hjá honum er að hann fór alltof fljótt frá Haukum, við hefðum mjög gjarnan viljað hafa hann áfram." Páll Ólafsson, þjálfari melstaraflokks Hauka í handbolta. Ásgeir örn Hallgrímsson handbolta- maður er fæddur 17. febrúar 1984. Hann er einn efnilegasti handboltamaður ís- lands í dag. Hann hefur unnið marga ís- landsmeistaratitla með Haukum og spilar núna með stórliði Lemgo íþýsku úrvals- deildinni. Hann leik þrjá landsliðsleiki með íslenska handboltaliðinu í fyrra og er núna með liðinu I Sviss og kom ístað Vil- hjálms Halldórssonar landsliðsleikmanns sem var sendur heim frá Sviss. Segir sig úr nefndum VarabæjarfuUtrúinn Ás- dís Ólafsdóttir í Kópavogi hefur sagt sig fr á ölium störfum í nefhdum bæjar- ins, húsnæðisnefnd og vina- bæjanefnd. Ástæðuna segir Ásdís vera þá að hún sé ekki lengur flokksbundin í Sjálf- stæðisflokknum. Eins og kom fram í DV18. janúar hefurÁsdís verið að kanna grundvöll fýrir sérframboði í bæjarstjómarkosningunum í vor. Sagðist Ásdís þá meðal annars ætla að bíða eftir lyktum prófkjöra annarra flokka áðurenend- anleg ákvörð- un verður tek- in um fram- boðið. Skopmyndirnar af Múhamed spámanni sem Jótlandspósturinn birti á dögunum hafa ekki farið vel í múslima víðsvegar um heiminn. Danski fáninn var brenndur í Palestínu og danskar vörur hafa verið sniðgengnar. NFS hefur ákveðið að birta ekki myndirnar í sínum fréttatímum til að storka ekki múslimum en fréttamönn- um stöðvarinnar er ekki bannað að lýsa teikningunum í orðum. NFS vlll ekkl storka múslimnm og fórnar tjáningarfrelsinu Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri NFS, hefur sent frétta- mönnum stöðvarinnar póst þess efnis að NFS birti ekki skop- myndir Jótlandspóstsins af Múhameð spámanni. Hann segir að ekki sé ástæða til þess að storka múslimum með þeim hætti. Yfirmenn annarra fréttastofa á landinu, hvort heldur sem það er ljósvaka- eða prentmiðla, hafa hins vegar ekki enn séð ástæðu til þess að JjaUa sérstaklega um birtingu þessara mynda. DV hefur, eitt fjölmiðla á fslandi, birt myndirnar. Danska dagblaðið Jótlandspóstur- inn birti skopmyndarinar af Múhameð spámanni síðastliðið haust við lítinn fögnuð múslima. Birt- ing þessara mynda virðist ætla að draga töluverðan dilk á eftir sér því ■ danskar vörur eru litnar homauga í löndum múslima. Stjómmálasam- skiptí Dana og landa þar múslimar búa hanga á bláþræði og danski fánn- inn hefur verið brenndur af reiðum Palestínumönnum í Gazaborg sem telja þessar myndir vera svívirðilega móðgun við múslima. Harma móðgun Engu máli hefur skipt þótt rit- stjórar Jótlandspóstsins hafi birt opinberlega yfirlýsingu þess efitís að blaðið harmi að hafa með myndbirt- ingunni móðgað arabaheiminn. Það eitt og sér er ekki tekið gott og gilt á meðal múslima sem sniðganga nú allt sem danskt getur talist. I gær vom ritstjómarskrifstofur Jótlandspóstsins í Kaupmannahöfn og Árósum rýmdar vegna sprengjuhótanna. Engin sprengja fannst þó eftír ákafa leit á báðum stöðum. Vilja ekki storka DV hefur eitt íslenska fjölmiðla birt þessar skopmyndir enda em þær flestum aðgengilegar á Netinu. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki birt þær en ein fréttastofa sker sig þó úr því hún hefur tekið þá aðstöðu að birta ekki skop- myndirnar af Múhamed spámanni á þeim forsendum að ekki sé rétt að storka múslimum með þeim hætti. Sigmundur Emir Rúnarsson, ifétta- stjóri NFS, sagði reyndar í samtali við DV í gær að mönnum væri óhætt að lýsa myndunum í texta. „Það vom snörp orðaskipti um þetta á fréttastofunni en það var síðan ákveðið að birta þær ekki. Þetta er auðvitað á gráu svæði hvað varðar tjáningarffelsið en ákvörðun okkar byggist á tvennu. Annars vegar teljum við myndbirtinguna ekki þjóna nein- um tfigangi fýrir fréttaflutninginn í dag og hins vegar finnst okkur ekki rétt að storka múslimum á þennan hátt," sagði Sigmundur Emir. Bönnum ekki birtingu Karl Garðarsson, sem ritstýrði Blaðinu í síðasta sinn í gær, sagði í samtali við DV að hann hefði ekki séð þessar ákveðnu myndir. „Það hefur ekki verið tekin nein afstaða tíl þessa máls. ^ Yið birtum hins veg- . ar skopteikningar í j þessu blaði og þær em aldrei ritskoð- aðar. Ég sé því ekki mfidar líkur á ! því að við mynd- um banna þessar myndir ef sú staða kæmi upp.“ birta þær. „Það hefur ekkert verið rætt um þetta en hins vegar alveg ljóst að við styðjum prentfrelsi Jótlandspósts- ins." Myndirnar skipta máli Karl Blöndal, aðstoðarrit- stjóri Morgunblaðsins, sagði í samtali við DVað það væm myndimar sjálfar sem myndu skipta máli þegar tekin væri ákvörðun hvort þær yrðu birt- ar eða ekki- „Ég hef ekki séð þessar myndir sjálfur en ef þær em sann- gjamar þá sæi ég ekkert að því að birta þær.“ Má ekki skerða tjáningarfrels- ið „Við ræddum reyndar þá stöðu sem upp er komin í Danmörku á rit- stjómarfundi hér í morgun. Að sjálf- sögðu verður að fara með gát þeg- ar trúarbrögð fólks er annars vegar en það má heldur ekki skerða tján- ingarifelsið sem okkur er svo annt um héráVestur- löndum. \ Þetta var góð urnræða en hér em engin áform um að banna birt- ingar á þess- um skopteikn- ingum úr dönsku og norsku blöð- unum," sagði Elín Hirst fféttastjóri Sjónvarpsins. Styðjum rit- frelsið Sigurjón Magnús Egils- son, fféttarit- stjóri Frétta- blaðsins, sagði í ( samtali við DV í j gær að Frétta- blaðið ætti ekki þessar myndir og færi því varla að „ Annars vegar teljum við myndbirtinguna ekki þjóna nein- um tilgangi fyrir fréttaflutninginn í dag og hins vegar finnst okkur ekki rétt að storka múslimum á þenn- an hátt." Gaddakylfa gerð upptæk og smiðurinn dæmdur til sektar Braut vopnalög í smíðatíma Héraðsdómur Norðurlands •eystra á Akureyri dæmdi í gær 19 ára nemanda Verkmenntaskólans á Akureyri, Sindra Smárason, til sekt- ar fyrir brot á vopnalögum. Lög- regla fann á heimili hans í ágúst kylfu sem á höfðu verið festar tvær kúlur, alsettar skrúfum sem skrúf- aðar höfðu verið í kúlurnar til hálfs. Lögreglan gerði leit á heimili Sindra vegna fíkniefna sem fund- ust höfðu í bifreið hans skömmu áður. Við skýrslutöku hjá lögreglu bar Sindri að kylfan væri skúlptúr sem hann hefði útbúið í smíðatíma í Verkmenntaskólanum. Síðar var þetta staðfest af kennara við skól- ann, sem sagði fyrir héraðsdómi að kylfan hefði verið smíðuð í tíma hjá sér. Hún hefði verið smíðuð með vitund hans og samþykki og að smíðin rúmist innan þeirra krafna sem gerðar væru til nemenda í áfanganum. Sindri sjálfur sagði fyrir héraðs- dómi að kylfan væri ekki ætluð til ofbeldisverka. Væri eftirlíking af fornu vopni. Þá sagðist Sindri vera með stand fyrir kylfuna í smíðum. Sú smíði mun nú vera til einskis því Kristinn Halldórsson dómari féllst ekki á útskýringar Sindra og úr- skurðaði að kylfan brjóti gegn vopnalögum. Hún mun því vera gerð upptæk af lögreglu. Jón Hjalti Sveinsson, skóla- meistari Verkmenntaskólans á Ak- ureyri, viðurkenndi að kannski væri það á gráu svæði að leyfa nemendum að smíða kylfur álíka Sindra í skólanum. Hann treysti þó kennurum og nemendum til að halda sér framvegis réttu megin við línuna. „Þetta er leiðindamál. En ég geri samt ekki ráð fyrir því að það sé vísvit- andi verið að framleiða vopn í skól- anum," segir Jón Hjalti. andri@dv.is Jórt Hjalti Sveinsson skólastjóri Segir ólíklegt að nemendur Verkmenntaskól- ans séu vísvitandi að fram- leiða vopn I skólanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.