Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Blaðsíða 29
TtV Lífið MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 29 Síðasti hluti undankeppni Eurovision fer fram næsta laugardag. Birgitta Hauk- dal og Silvía Nótt munu báðar stíga á svið og bíða margir óþreyjufullir. Fólk er byrjað að velta því fyrir sér hvort um einvígi milb þeirra tveggja verði að ræða. Birgitta Haukdal vill þó ekkert tjá sig um málið. Hún vill að lagið tali sínu máli. H 1.. I | 1 § HS % I 8 ? 1 „Ég vil helst ekki tala um Eurovision-keppnina á laugardaginn. Mér finnst að allir eigi að sitja við sama borð. Ég vil að fólk dæmi bara lögm,“ segir Birgitta Haukdal söngkona. Hún vill ekki ræða mikið við DV um undankeppnina. Hún segir þó að þetta verði skemmtilegt. „Þetta leggst alveg rosalega vel í mig." Margir hafa velt því fyrir sér hvort að þriðji hluti undankeppni Eurovision næsta laugardag verði einvígi Birgittu og Silvíu Nætur. Birgitta vill þó lítíð tala um málið. „Eina sem ég vil segja er að ég hlakka rosalega til. Allt þetta kemur bara í ljós á laugardaginn." Meira vildi Birgitta ekki segja inn málið. Þögult úr herbúðum Birgittu Menn úr herbúðum Birgittu vilja lítíð tjá sig um keppnina. Sveinn Rún- ar Sigurðsson, höfundur lagsins Mynd af þér sem Birgitta syngur, vill ekíd tala við blaðamenn inn lagið. Kristján Hreinsson, textahöfundur lagsins, undrast ekki þá athygli sem Birgitta fær. „Mér finnst það bara meira en skiljanlegt að hún fái athygli. Birgitta er alveg æðisleg." Kristján segir textann vera venjulegan. „Þetta er bara einn afþessum textum. Það er ekkert nema gott um það að segja." Kristján segist ekki hafe verið lengur að skrife þennan texta fen aðra sem í hefúr samið. „Ég er alltaf nokkra a að búa til hvem texta." Gísli Marteinn veltir fvrir sér kostum Birgittu og Silvíu DV haföi sambancf við helsta speking íslendinga í Eurövision, Gfsla Martein Baldursson. Að vanda hafði Gfsli Marteinn margt að segja um keppnina, sjaldan sem komið er að tómum kofanum hjá honum í þess- um efnum. Hann hafði sitt að segja um væntanlegt einvígi Birgittu og Silvíu. „Ég held að þær myndu báðar, eins og fjöldi þeirra serh tekur þátt, sóma sér vel í úrslitakeppninni í Grikklandi." Þærhljóta þó aö hafa sína kosti og galla hvor? „Það hefur stundum virkað að vera svona húmorískt atriði eins og Silvíu. Til dæmis áttu Austuníkis- menn slíkt atriði 2003 og við gáfum þeim 2 stig. Hins vegar man ég ekki eftír því að slfkt atriði háfi unniö. Því er hægt að segja að húmorinn komi manni áfram upp að vissu marid en að það sé kannski erfiðara að sigra keppnina með þess háttar atriði. Svo getum við líka sagt að gengi þeirra sem taka þátt í keppninni oftar en einu sinni sé afer misjafrit. Til dæmis gekk þaö illa hjá Selmu á sfri- um tíma. Þó hefur sumum gengið vel. jfc.- En þó er engin fylgni þar á milli. Þó má segja að þeir sem taka þátt oftar en einu sinni njóti þess að „Eurovision-spekingar" muni eftír þeim." Hann segist þó viss um að þær muni báðar standa sig vel. „Þær gera þetta á gerólfkan hátt, en gera þetta frábærlega eins og þær kunna best" Ekkiþæreinu Gísli segir það vera langt frá því að Silvía og Birgitta séu þær einu sem eigi möguleika á sigri. „Næsta laugar- dag eru náttúrulega sex önnur mjög frambærileg atriði, því má ekki gleyma." Hann segir þó ekkert hægt að spá til um hver fari til Grikk- lands fyrir hönd íslendinga. „Þessi imdankeppni er rétt eins og úrslitakeppnin sjálf. Það er engin formúla af sigurlagi. Þetta er algjöriega ófyrirsjá- anleg keppnL Þjóðin ræður þessu og það er bara mjög gott" Hann segir þó að menn verði lflca að velta því fyrir sér hveiju þeir vilja ná fram. „Spuming er alltaf hvort við viljum endilega ná árangri í keppninni sjálfrL Lag eins og Nína, með þeim Stefáni Hilmars- syni og Eyjólfi Krist- jánssyni, náði ekkert sérstökum árangri í keppninni en er ís- lendingum ákaflega mikilvægt lag sem margir kunna að syngja utan að. Svo var lagið hans Páls óskars Hjálmtýssonar sem vaktí gríðariega athygli en náði alls ekki góðum árangri. Ég er þó á því að það lag hafi náð tilgangi sínum; vaktí fólk tíl umhugsunar." kvöld. Þá höfum við tólf lög sem fara beintáframíúrslit- in. Síðan fera þau þijúlögsemlentuí fimmta sætí hvert kvöld í pott Tvö lög fara svo áfram úr þeim pottí, það em þau lög sem fengu hlutfells- lega flest atkvæði kvöldið sem þau vom leikin. Því verða 14 lög í úrslit- unum. Tilkynnt verður um hvaða lög fera úr þessum pottí á feugar- daginn." kjartar@dvJs mu 'iU: Ræðir ekki málið Birgitta vill ekkert tala urrt Eurovison. Hún vill bara fá að syngja sitt lag °g sjá hvernig gengur. Vill (treka reglum- ar . Gísli vill ítreka .......... keppnisfyriripmufegið sem eitthvaö hefur vafist fyrir fóIkL „Fjögur lög , fara áfram hvert , forit . Himneskur Sveinn Rúnar Sigurðs- *on samdi lagið fyrir Birgittu. ^ann vill ekki tjá sig um keppnina. Hann er reyndur í Eurovision, samdi til að mynda Heaven sem keppti fyrir íslands hönd. Seglr Blrgiíta *ðl 'ega Kristján Hremsson, texiahi- mdur lagsins sem Birgitia syngur, segir Birgittu æðislega og ekki skrýtið að hún fái athygli almenninn. Keppinautur Silvia Nott er af mörgum talin vera helsti keppi- nautur Birgittu. Spennandi verður að sjá hvorþeirra komisttil Grikklands, eða emfaldlega hvort önnurþeirra komist Kostir og gallar Gisli Marteinn Baldursson, helsti spekingur ís- lendinga i Eurovison, segir Birgittu Haukdal og Silviu Nótt hafa sina kosti og galla. Hann spenntur fyrir keppninni. Namosh á NASA Þýski electró-rokkarinn Namosh heimsfrumflytur efni af væntanlegri breiðskífu sinni Moccatounge á sér- stökum útgáfutónleikum fyrir plöt- una sem Hr. Örlygur stendur fyrir i Reykjavik um næstu helgi, nánartil- tekið 4. febrúar. Sviðsframkoma Namosh er hreint einstök - eins og gestir Gay Pride-hátíðarinnar fengu að upplifa i ágúst í fyrra á dansleik á NASA og minni tónleikum sem kappinn hélt á Sirkus, þar sem færri komust að en vildu. Namosh er stundum lýst sem karlkyns Peaches - enda eru þau bæði afsprengi hinn- ar iöandi electró-senu Berlinarborg- ar. Auk Namosh koma fram Hair- doctor, Jack Schidt + Blake, Margeir og DJ Casanova. Húsið opnar kl. 23. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. Helgi Valur á Yello Trúbadorinn Helgi Valur sem gaf út plötuna Demise of Faith í fyrrasumar, legg- ur leið sína á skemmtistað- innYello í Keflavíká fimmtudagskvöld. Yello er að stíga sín fyrstu skref í skemmtanaiðnaðnum í Keflavík, en aðeins nokkrar vikur eru síðan að staður- inn var opnaður. Það er þó enginn nýgræðingur sem sér um staðinn, heldur enginn annar en Atli skemmtanalögga, djamm- kempan sjálf. Brjálað fjör og trúbbastemmari. Nóg að ger- 4St á Calé Olíver í kvöld spilar plötusnúðurinn Dj Paulito funk og djass á skemmti- staðnum Café Óliver. Ólíver var tví- mælalaust heitasti skemmtistaður- inn i sumar og hafa þeir haldið hit- anum í botni í allan vetur, til þess að missa ekki niður hitastigið. Annað kvöld syngur einhver ágætissöng- kona með Tanqueray-bandinu, sem er húshljómsveit staðarins. Það er alltaf fjör á Óliver, líka á miðviku- dögum og fimmtudögum. Gervilliim á Gauknum Rauðhærði drekinn Hermigervill mun spila á Gauki á stöng á laugar- daginn, en það er ekki oft sem maður getur séð þann snilling. Með í för það kvöldið verður Mr. Silla, sem nýlega gekk lið liðs við hljóm- sveitin Fræ sem samastendur af meðlimum Maus og meðlimum ak- ureysku hljómsveitarinnar Skytt- urnar. Ekki liggja öll smáatriði fyrir ennþá varðandi tónleikana, en von- andi fer allt að koma í Ijós. JtSi'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.