Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2006, Síða 12
72 MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Ákærðurfyrir milljóna skattsvik Ákæra Ríkislögreglustjór- ans gegn Gísla Hjartarsyni, Reykvíkingi á fimmtugsaldri, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Gísla er gefið að sök að hafa ekki staðið í skilum á rúmlega átta millj- ónum króna sem hann innheimti í formi virðisaukaskatts á meðan hann var í sjálfstæð- um atvinnurekstri á árunum 1999 - 2001. Hann var tek- inn til gjaldþrotaskipta í apríl 2003. Gísli tók sér frest tU að gera athugasemd við ákæruna en réttarhöldum í málinu verður fram haldið í febrúar. Óshlíðin könnuð Boranir könnunarhola í Óshlíðinni vegna fyrirhug- aðrar jarðgangagerðar eru ekki hafiiar. Til stóð að þær hæfust í janúar að því er fram kemur á vef bb.is. „Það er í sigtinu að tækin komi vestur í þessari viku og að bor- anir heíjist í kringum næstu helgi," segir Ágúst Guðmundsson jarð- fræðingur hjá Geotekk, sem vinnur að rannsóknum á Óshlíð. „Það verður alla vega ekki margra daga frávik frá þeirri tímasetningu. Það eru ýmsar ástæður fyrir þessari seinkun, meðal annars var verkið stækkað," segirÁgúst. Hvorki til Pól- lands né Nýja- Sjálands Nemendur Hótel- og matvælaskólans í Kópavogi fá ekki umbeðinn styrk frá bænum til að tala þátt í al- þjóðlegri keppni ungkokka í mars. Keppnin sem heitir World Junior Chefs verður haldin á Nýja-Sjálandi. Bæjarráðið sagðist ekki geta orðið við beiðni um styrk. Það sama gilti um styrkbeiðni frá nemendum sem leggja stund á pólsk fræði í Menntaskólanum í Kópavogi og vildu styrk til að komast í skólaferðalag til Póllands. „Ufiö í Sandgerði er ágætt segir Baldur G. Matthías- son, formaður Sjómanna- og verkalýösfélags Sand- gerðis.„Maður er farinn að sjá húsin fjúka upp í bunu og mér mnhhh Landsíminn mjög vel á það en þau eru sett niður á góðum stað. Það eru fullt afnýjum andlitum í bænum." Kæra Högnu Sigurðardóttur á hendur ASK arkitektum hefur verið afgreidd frá siðanefnd Arkitektafélagsins. Ekki fæst uppgefið hver niðurstaða siðanefndarinnar er. Að sögn Sigurðar Harðarsonar í siðanefndinni verður stjórn Arkitektafélagsins nú að ákveða hvernig tekið verður á málinu. Albína Thordarson, formaður félags- ins, segir stjórnina ræða Högnumálið á fundi í dag. Fréttir DV Mál Högnu var til umfjöllunar i DV um miðjan nóvember. Sundlaugadeila sprnurkitekts Irá siöanefnd til sljárar Kæra Högnu Sigurðardóttur gegn ASK arkitektum sem siða- nefrid Arkitektafélags íslands hefur nú afgreitt verður rædd á fundi stjórnar félagsins í hádeginu í dag. „Við Ieggjum ákveðna hluti til og færum ffarn okkar álit á málinu. Síð- an kveður stjórn upp endanlegan úrskurð um það með hvaða hætti skuli tekið á málinu," sagði Sigurður Harðarson, sem situr í siðanefnd Arkitektafélagsins. „Ég er nú bara nýkomin til lands- ins og veit ekki hver niðurstaða siða- nefndar var. En málið verður rætt á fundi stjórnar arkitektafélagsins í hádeginu á morgun [í dag],“ sagði Albína Thordarson, formaður Arki- tektafélagsins í samtali við DV í gær. Enginn samningur í gildi Eins og rakið hefur verið í DV kærði Högna Sigurðardóttir ASK arktitekta til siðanefndarinnar eftir að ASK tók að sér hönnun viðbygg- ingar við Sundlaug Kópavogs. Högna, sem er ein af víðfrægustu arkitekta landsins, hafði þá frá upp- hafi verið hönnuður sundlaugar- innar. Hún taldi framhjá sér gengið við úthlutun verkefnisins: „Ég tel málið mjög alvarlegt og að gengið sé á siðferðilegan rétt minn,“ sagði í kæru Högnu. Eigendur ASK arkitekta töldu sig ekki hafa brotið gegn Högnu: „Við könnuðum í upphafi hvort einhverjir samningar lægju fyrir milli þfn og Kópavogsbæjar vegna þessa máls og reyndist svo ekki vera,“ sagði Páll Gunnlaugsson hjá ASK í bréfi til Högnu. Of fullorðin fyrir Kópavog Fyrir sitt leyti sagðist Kópavogs- bær hafa afskrifað Högnu vegna þess hversu fullorðin hún væri og vegna þess að hún væri ekki með gilda ábyrgðartryggingu. Högna er 76 ára: „Kópavogsbær leitaði til ASK verktaka [arkitekta] þar sem álitið var að þér hefðuð látið af störfum vegna aldurs og jafnframt þar sem þér höfðuð ekki í gildi ábyrgðar- tryggingu hönnuðar,“ svaraði Kópa- vogsbær Högnu og taldi málinu þar með lokið. í bréfi sem Högna skrifaði síðan til Kópavogsbæjar kemur fram að hún hafni bæði þeim rökum bæjar- ins að hún sé of ,Ég tel máfið mjög alvarlegt og að gengið sé á sið- ferðilegan rétt minn. fullorðin til að starfa sem arkitekt og því að rétt sé að hafna vegna þess að hún væri ekki með ábyrgðartryggingu. Hefði henni verið falið að teikna viðbygginguna þá hefði hún einfaldlega keypt sér viðeigandi tryggingu. gar@dv.is páll Gunnlaugsson Högnavarekkimeð samninga við Kópa- vogsbæ, segir Páll hjá ASK arkitektum. Albína Thordar- son Ræðum kæru Högnu i dag, segir formaður Arki- tektafélags fslands. Högna Sigurðar- dóttir Ósáttvið bæði Kópavogsbæ og ASK arkitekta. Alkóhóllausn og höfuðklútur eru góðar lausnir við lúsafaraldri Börnum þykir buffið töff „Við höldum að það sé ekki meira um lús núna en vanalega. Það koma kvartanir inn á borð til okkar annað slagið um að lúsin sé að stinga sér niður," segir Ása Atladóttir hjá Land- ■ i " \ embættinu. ; Nokkrir grunn- og t. leikskól- Landlœknir/i heimasíðu Land- læknis má finna góð arlausnirviðlús. ar á höfuðborgarsvæðinu berjast við lúsina þessa dagana og sést það einna helst á því að nemendur bera „buff' á höfði. Buffið er höfuðklútur sem á að sporna við því að lúsin ber- ist á milli manna. Engar rannsóknir liggja fyrir um notagildi buffsins vegna þess hve það er nýtilkomið en það þykir góð lausn því mörgum börnum finnst flott að bera buffið. Ása segir afar nauðsynlegt að for- eldrar fylgi eftir leiðbeiningum land- læknisembættisins. Best er að kaupa alkóhóllausn og setja í hárið og skilja eftir í átta klukkutíma. Hárið er kembt á meðan. Mjög mikilvægt er að endurtaka sama leik að viku lið- inni. Með þessu móti á lúsin að drepast. „Við mælum eindreg- ið með þessari alkóhól- lausn en ekki lúsasjampóinu sem apó- tekin hafa verið að mæla með. Sjampóið gerir ekki sama gagn og alkóhóllausnin," segirÁsa. Fréttir hafa borist frá Danmörku um að þar gangi lús sem ekkert bíti á. „Við höfum ekki gert rannsóknir á íslensku lúsinni til að sjá hvort hún sé ónæm en það er þekkt að lúsin myndar ónæmi gagnvart efnum," segirÁsaAtladóttir. svavar@dv.iS Brjálað hjá Aðalverktökum Það er einfaldlega brjálað að gera hjá íslenskum aðalverktök- um, eða ÍAV eins og fyrirtækið heitir í dag. Þessu hefur Kópa- vogsbær nú fengið að kynn- ast með áþreifan- legum hætti. Bærinn óskaði eftir því við nokkur verk- takafyrirtæld að þau tæku þátt í alútboði vegna byggingar knatt- húss í Þingahverfi. Nú hefur tæknideild bæjarins borist bréf frá ÍAV þess efnis að fyrirtækið sjái sér ekki fært að taka þátt í útboðinu vegna anna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.