Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 4
4 MANUDAGUR 10. APRlL 2006 Fréttir DV Fyrstu kiðlingarnir Um hádegisbilið á laug- ardag komu fyrstu kiðling- arnir í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum í ár. Huðnan Sólbjört, fædd 2002, bar tveimur hraustum kiðl- ingum og faðirinn Kjarkur fylgdist vel með. Sólbjört er mjög reynd móðir og mun því án efa ala þessa tvo hvítu hafra vel upp. Ekki var vitað jafn nákvæmlega upp á dag hvenær geitur garðsins ættu von á sér líkt og með ærnar, en þess- ir kiðlingar eru sannarlega ljúfir vorboðar á köldum vetrardegi. Slagsmál á Snúllabar Starfsfólk á Snúllabar óskaði eftir aðstoð lögregl- unnar aðfaranótt sunnu- dagsins eftir að slagsmál brutust út meðal gesta á staðnum. Lögreglan gat ekki strax brugðist við þar sem allir á vakt voru upp- teknir í öðrum verkefnum. Er lögreglan kom á staðinn voru hins vegar allir horfn- ir á braut og talið er að um erlenda menn hafi verið að ræða. Kynþokki fyrir vestan Fréttavefurinn Bæjar- ins besta á fsafirði stend- ur nú fyrir kosningu á milli fimm karlmanna sem hlutu flestar tilnefningar sem kynþokkafyllsti Vestfirð- ingurinn í netkosningu sem vefurinn hratt af stað í byrjun mánaðarins. Þeir eru Haraldur Jón Jóhann- esson, Guðfinnur Ólafur Einarsson, Haraldur Krist- insson, Böðvar Þórisson og Kristján Sverrisson. Einnig voru valdir fimm kynþokka- fyllstu konurnar en þær eru Braga Ósk Bragadóttir, Aðalheiður Óladóttir, Guð- rún Ása Magnúsdóttir, Petr- ína Freyja Sigurðardóttir og Guðrún Birgisdóttir. Brynja Gunnarsdóttir tekur öll áhættuatriði fyrir Elvu Ósk Ólafsdóttur leikkonu í myndinni Köld slóð. Um er að ræða senur þar sem persóna Elvu ekur um á vélsleða og tekur sprett á hestbaki. Elva hefur að mestu lokið vinnu sinni við myndina og tekur aftur til við að leika í Erninum eftir páska í tveimur þáttum sem gerast á íslandi. Brynja í áhættnatrijjum á vélsleða fyrir Elvu Osk Brynju Gunnarsdóttur er margt til lista lagt og hún er mikil áhugamanneskja um skíðaiðkun og akstur á vélsleðum. Því var hún fengin til að taka öll áhættuatriðin fyrir Elvu Ósk Ólafsdóttur leikkonu í myndinni Köld slóð sem Björn Brynj- úlfur Björnsson leikstýrir. Um er að ræða þrjár senur í mynd- inni þar sem persóna Elvu ekur um á vélsleða í öræfum lands- ins og eina senu þar sem persónan tekur mikinn sprett á hestbaki. „Málið er einfaldlega það að Brynja er svipuð á hæð og ég, ljóshærð og mikil íþróttamanneskja og því þótti tilvalið að fá hana í þessi atriði," segir Elva Ósk. „Þetta hefur allt gengið einstaklega vel þótt stund- um hafi kannski munað mjóu að illa færi. En þetta er spennumynd og því eru sum áhættuatriðin mjög dramatísk." Fyllsta öryggis gætt Elva Ósk tekur það fram að þótt henni hafi ekki litist á blik- ina á stundum hafi fyllsta örygg- is að sjálfsögðu verið gætt í hví- vetna þegar áhættuatriðin voru tekin upp. „Það hef- ur verið mjög gam- an að taka þátt í þessari mynd en vinnu minni er að mestu lok- ið nú," seg- ir Elva Ósk. „Það sem liggur næst fyrir hjá ,« mér ..A' /&' ' næstu þættir af Erninum. Danska tökuliðið kemur hingað til lands rétt eftir páska til að taka upp tvo þætti sem gerast að miklu leyti á ís- Íandi." Sláandi líkar Björn Brynjúlfur Björnsson leikstjóri myndarinnar seg ir að það hafi ver- ið hljóðmaður hans, Gunnar Árnason, sem stung- ið hafi Björn Brynjúlfur Tökum aö Ijúka á næstu tveimur dögum. upp á því að fá Brynju til að leika áhættuatriðin en hann þekk- ir Brynju enda bæði frá Selfossi. „Það kemur svo upp úr kafinu að þær eru hreint slá- andi líkar," segir Björn. „Þegar Brynja var komin í gall- ann tók eru Vélsleðaatriðin Brynja tekur öll áhættuatriðin fyrir Elvu Ósk á vélsleðum. Brynja Gunnarsdóttir Hefur mikinn áhuga á sklða- og vélsleðaiðkun. Elva Ósk Hefur lokið að mestu vinnu við Kalda slóð og tekur til við örninn eftir páska. tökuliðið iðulega feil á henni og Elvu Ósk og menn ávörpuðu Brynju oft með því að segja: Góðan daginn Elva." Undir rennihurð Hvað áhættuatriðin varðar segir Björn að þau hafi gengið mjög vel, eiginlega lyginni líkast. „Þetta eru spennuatriði eins og í eitt sinn þar sem Brynja þarf að renna vélsleðan- um undir rennihurð sem er á leið- inni að lokast," segir Björn. „En hún hefur staðið sig með stakri prýði í þessu." Annars er það að frétta af Kaldri slóð að tökum fer bráð- um að ljúka. Raunar reikn- ar Björn með að þeim ljúki nú á næstu tveimur dögum fýrir páska. Kjarnorkulaust ísland Svarthöfði er mikill friðarsinni og hefur stutt samtök og flokka sem hafa barist fýrir friði í heiminum. Vinstri menn eru auðvitað hinu einu sönnu friðarsinnar. Svarthöfða er sérstaklega minnistæð barátta sinna manna fyrir því að sveitarfélög á Is- landi lýstu því sérstaklega yfir að þau væru kjarnorkulaust svæði. Hvað er svona erfitt við það? Kjarnorkuvopn í Mosfellsbæ! Aldrei. Ekki vandamál- ið. Hins vegar brá Svarthöfða held- ur betur í brún þegar hann las við- tal við gamla vígbúnaðarljónið í rík- isstjórn Reagans Bandarflcjaforseta, George P. Shultz, í Morgunblaðinu í gær. Reagan, sem hafði ógnað allri heimsbvHEðinni með stríðsrekstri Hvernig hefur þú það? Svarthöfði sínum var sagður hafa verið andsnú- inn kjarnorkuvopnum. „Reagan hafði mælt með eyðingu allra kjarnorkuvopna nánast allan sinn feril í stjórnmálum. Hann hafði fjallað um þessa hugmynd í ræð- um sem hann flutti, meðal annars á þingi Japana," sagði Shultz og ráð- gjafar forsetans hefðu verið honum gjörsamlega ósammála. „En hann trúði á hugmyndina og þegar hann var sannfærður um eitthvað gafst hann ekki upp." '„Ég erlgóöu andlegu jafnvægi þessa stundina og eiginlega þrælhress,“segirÁrni Sigfússon bæjarstjóri I Reykjanesbæ. „Ég er á leiöinni I skóflustungu aö nýjum leikskóla, raunarþeim nlunda hér I bænum." Heimsmynd Svarthöfða hrundi í gær eftir þennan lestur. Reagan, þessi gamli fjandi, var þá einnig friðars- inni þrátt fýrir allt! Og reyndi hvað hann gat til að fá gömlu kommana í Sovét til að fækka kjarnorkuvopnum. Svakalegt. Ragnar skjálfti, gáf- uðu tvíburarnir og Stefán Páls- son hafa þá væntanlega getað hallað sér að Reagan eins og Gor- ba kallinum. Hann vann nú einu sinni Kalda stríðið, að eigin sögn. An þess að hleypa af einu skoti, eins og járnfrú- in Thatcher orðaði það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.