Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2006
Fréttir DV
Heiðar þykir góðhjartaður,
vinnuþjarkur, duglegur,
skemmtilegur, hæfileikarlkur
og með fagurt göngulag.
Hann á erfitt með að hemja
skap sitt, vill geðjast öllum,
fólk misnotar góðmennsku
hans og hann ermeð of
mikla fótboltadellu.
„Hann erofboðslega heiðarlegur
og traustur vinum
sínum. Hann ermjög
vinnusamurog
duglegur og stendur
við orð sín. Heiðar er
skemmtilegur,
hnyttinn og á gott
með að láta fólki líða
vet. Hann á það til að vera of
aumingjagóður og fólk misnotar
stundum góðmennsku hans. Svo
á hann gríðarlega erfitt með að
vera einn og hann hugsar of
mikið um að þóknastöllum I
kringum sig."
Asgeir Kolbeinsson, dagskrárgerðar-
maður á Sirkus.
„Heiðarer
afskaplega
skemmtiiegur
drengurog sjaldan
lognmolla í
kringum hann.
Hann erhæfileika-
ríkur útvarpsmaður sem á
örugglega eftir að taka stærri
skrefi fjölmiðlum iframtíðinni.
Það erstuttur í honum
þráðurinn og hann þarfað geta
hamið skapið sitt. Svo erhann
með fótboltadellu á háu stigi."
KarlLúðvíksson, framleiðandi og
leikstjóri.
„Hans kostir í lífinu
eru að hann vill öllum
velogervinurvina
sinna. Hann tekur
regiutega upp
vasaklútinn tilað
þerra tárþeirra. Svo
er hann með einstaklega fagurt
göngulag. Hann ergríðarleg
dramadrottning og hann
gengur regiuiega í bleikum
fötum sem ég kann ekki við."
Þröstur Gestsson, skemmtanastjóri á
Café Victor.
Heiðar Austmann erfæddur 17. mars 1977.
Hann hefurstarfað á útvarpsstöðinni FM í
sjö ár og stjórnar nú þætti á FM 95,7 alla
virka daga frá tvö til sex á daginn. Heiðar
starfaði sem þáttargerðarmaður á Popptlví
og stjórnaöi fyrstu Idol Extra-seríunni.
Heiðar vinnur sem plötusnúður um helgar á
skemmtistaðnum Sólon.
Brasilísku stúlkurnar sem búa í húsnæði Sverris Þórs Gunnarssonar við Ármúla eru
að sögn heimildarmanna DV kynlífsþrælar. Þær eru keyrðar víðs vegar um borgina til
karla sem reiðbúnir eru að greiða fyrir aðgang að líkama þeirra. Lögreglan verst allra
frétta af málinu en hún rannsakar nú samkvæmt heimildum DV hvort tengsl séu á milli
hóruhússins hans Svedda tannar og Arnars Theódórssonar sem tekinn var með kókaín
í tölvu sinni í Leifsstöð fyrir skömmu.
Rannsaka tengsl kókaín-
smyglara við hnruhns
Ármúli 23 Húsleit var
gerð i húsnæðinu fyrir
rúmri viku.
Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú hvort tengsl kunni að vera á
milli fikniefhamáls sem upp komst í Leifsstöð fyrir skömmu og
vændishússins í Ármúla sem DV hefur sagt fréttir af undanfama
daga. Yfirmenn Lögreglunnar í Reykjavík verjast allra frétta af mál-
inu en það er samkvæmt heimildum DV gríðarlega umfangsmikið.
Fíknefnadeild lögreglunnar telur
þann möguleika fyrir hendi að mál
Arnars Theódórssonar, sem tekinn
var í Leifsstöð fyrir skömmu með
tæpt kíló af kókaíni falið í tölvu sinni,
tengist á einhvern hátt vændishús-
inu sem lögreglan uppgvötaði í Ár-
múlanum.
Vísbendingar eru um, samkvæmt
heimildum DV, að Arnar hafl stund-
að viðksipti við og með Sverri Þór
Gunnarssyni, sem er eigandi hús-
næðisins. Lögregla gerði þar húsleit
fyrir um tveimur vikum og fann mik-
ið magn fíkniefna, auk þess sem þar
voru brasilískar stúlkur sem grun-
ur leikur á að séu vændiskonur. Auk
þess var þar að flnna nákvæmt bók-
hald yfir starfsemi vændishússins.
f fjárhagskröggum
Ekki hefur fengist staðfest hvert
sé eðli samstarfs Arnars, sem tek-
inn var með kókið í fartölvunni, og
Sverris Þórs, sem jafnan er kallaður
Sveddi tönn í undirheimum Reykja-
víkur.
Arnar starfaði áður sem bílasaii
og flutti meðal annars inn notaða
bíla en mun hafa lent í miklum fjár-
hagskröggum. Heimildarmenn DV
fullyrða að fíkniefnasmyglið hafi ver-
ið tilraun til að losa sig undan skuld-
um í undirheimum sem voru farnar
að valda honum ótta.
Kynlífsþrælar
Eins og DV hef-
ur greint frá
virðist starf-
semi vændis-
hússins sem
Lögreglan
í Reykjavík
uppgötvaði
fyrir um
tveimur vik-
I Ármúla Heimildarmenn
DV fullyröa að brasillsku
stúlkurnar I Ármúla séu
kynlífsþrælar.
um enn vera
í fullum gangi.
Fjöldieinstakl-
inga hefur
■ staðfestí i
aði
samtölum við blaðið að stúlkumar
séu keyrðar um bæinn, heim til karl-
manna sem reiðubúnir eru að greiða
fyrir aðgang að líkama þeirra.
Einn viðmælenda blaðsins, sem
ekki vildi koma fram undir nafni,
sagði að stúlkurnar væru ekkert ann-
að en kynlífsþrælar. Þær fengju ekki
að fara út og stór hluti þess fjár sem
þær öfluðu með vændi rynni beint
í vasa yfirboðara þeirra, fyrir mat,
uppihald og húsnæði.
Verjast frétta
DV hefur undanfarna daga
ítrekað reynt að setja sig í sam-
band við þá aðila sem tengjast
málinu, báðum megin borðs-
ins. Lögregluna í Reykjavík og
Sverri Þór Gunnarsson. Þær til-
raunir hafa ekki borið árangur.
Arnar Theódórsson er ný-
lega sloppinn úr gæsluvarðhald-
inu sem hann var úrskurðaður
í vegna kókaínsins sem á honum
fannst þegar hann kom til landsins
frá Bandaríkjunum. Það var tæpt
kfló og sæmilegt að styrkleika.
Aðspurður um smyglið svar-
5i Arnar: „Ég hef ekkert
við ykkur að tala." Hann
sleit svo samtalinu.
andri@dv.is
Sverrir Þór Gunnarsson
Er eigandi húsnæðisins að
Ármúla 23.
Skíðaskálinn í Hveradölum
Þekktir ofbeldismenn og fíkniefnasalar
Mikil ölvun í
borginni
Mikil ölvun var í mið-
borg Reykjavíkur um helg-
ina og töluverður erill
hjá lögreglunni af þeim
sökum. Að sögn aðalvarð-
stjóra þurftu alls sjö manns
á gistingu í fangageymslum
að halda vegna ölvunar
aðfaranótt sunnudagsins.
Hins vegar voru engar
meiriháttar uppákomur
vegna ölvunarinnar þessa
nótt.
Allsherjarslagsmál og
alvarlegir áverkar
Allsherjarslagsmál brutust út
snemma á laugardagskvöldið í Skíða-
skálanum í Hveradölum. Að sögn
lögreglunnar á Selfossi voru þrír
fluttir á sfysadeild og þrír gistu fanga-
geymslur lögreglunnar, tveir á Sel-
fossi og einn í Reykjavík. Einn þeirra
sem voru fluttir á slysadeild reyndist
með alvarlega höfuðáverka en hinir
tveir minna slasaðir.
Nokkrir salir eru til útleigu í Skíða-
skálanum og voru þeir allir þéttsetn-
ir umrætt kvöld af mismunandi fyrir-
tækjum. Forráðamenn Skíðaskálans
vilja sem minnst gera úr málinu og
vildu ekki gefa upp hjá starfsmönn-
um hvaða fyrirtækis slagsmálin bru-
tust út.
Að sögn lögreglunnar logaði allt í
slagsmálum í einum af sölum skálans
er hún kom á vettvang og tók nokkrun
Skíðaskálinn Forráðamenn Skíðaskálans
vilja sem minnst gera úr máiinu.
tíma að koma skikki á mannskapinn.
Þeir sem voru fluttir í fangageymslur
voru yfirheyrðir í gær og síðan sleppt
að yfirheyrslum loknum. Rannsókn
málsins er þó ekki lokið og á lögregl-
an eftir að yfirheyra vitni.
Réðust vopnaðirinná
skrifstofu í Keflavík
Tveir menn réðust vopnaðir
öxum og eggvopnum inn á skrifstofu
hjá þriðja manni, ógnuðu honum og
höfðu í hótunum við hann. Að sögn
Lögreglunnar í Reykjanesbæ eru tví-
menningamir þekktir ofbeldismenn
og ffkniefnasalar í bænum og gekk
greiðlega að hafa hendur í hári þeirra
og koma þeim bak við lás og slá.
Ekki liggur ljóst fyrir hver ástæða
innrásarinnar var en tvímenning-
arnir sem eru á milli tvítugs og þrí-
tugs voru undir töluverðum áhrifum
og var ekki hægt að byrja að yfirheyra
þá fyrr en eftir hádegi í gær. Fórnar-
lamb þeirra mun vera á fertugsaldri.
Við leit í íbúð mannanna eftir að
þeir voru handteknir fannst nokkurt
magn fíkniefna og töluvert magn af
þýfi. Að sögn lögreglunnar var meiri-
Reykjanesbær Tveirmenn ógnuðu þeim
þriðja með eggvopnum og höfðu I hótunum
við hann.
hluti þýfisins úr innbrotum sem átt
hafa sér stað í bænum að undan-
förnu.