Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Page 32
1^/3 Í! Í! Jj Við tökum víð\ fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^jriafnleyndar er gætt. j-* S* fj _TJ fj rj Q SKAFTAHLÍÐ24,105 REYKJAVÍK [STOFNAÐ 79íö] SÍMI5S0S000 5 ''690710 111117 • íslenskir auðmenn flytja r nú hver á fætur öðrum til útlanda. London er vinsæll staður hjá efnafólki þar sem hægt er að hverfa í mann- mergðina. Þar er líka auðvelt að slá um sig - baða sig í ríkidæminu - ánþess að mikið beri á. Skapar það ekki öfundartal eins og ís- lendinga er því miður oft siður. Olafur Ólafsson, sem ræður meðal annars yfir SÍF og Samskipum, er fluttur til London ásamt fjölskyldu sinni. Gengur sonurinn í * alþjóðlegan skóla á meðan foreldrarnir sinna sínum verkum. En eins og annað efnafólk eiga þau líka heim- iii á Islandi... Ég vil líka blöðrur! Geiri og Sverrir í Pattaya í sambandi við taí-kínverska konu og nokkrar að auki „Ég kann voðalega vel við Pattaya. Og ég get lflca sagt þér af hverju það er. Ég er alveg eins í laginu og Búdda. Nema hann er betur rakaður um hausinn en ég sem er hér dýrkaður og dáður. Eins og Búdda," segir Ásgeir Davíðsson, eða Geiri á Goldfmger, kátur venju ífemur og talar frá Taí- iandi. Þar er Geiri í góðum félagsskap. Með engum öðrum en Sverri Storm- sker tónlistarmanni: „Hann er nýbú- inn að giftast kínverskri konu og var að væla í mér um að hún fengi starf hjá mér. Við að dansa. Sagði að það væri gott upp á að hlaupa í ellinni," segir Geiri og hlær hrossahlátri svo miklum að liggur við andnauð hjá hinum íjallhressa viðmælanda og heimsmanni. Þegar þetta er borið undir Sverri segir hann þetta gott grín hjá Geira. „Nei, nei, en ég er búinn að vera í föstum kontakti við taí-kínverska kerl- ingu alveg frá því ég kom. En hér er önnur menning en þekkist heima. Þær eru þannig þenkjandi að vera ekkert að setja sig upp á móti því að maður taki rispu með öðrum blöðrum. Hér þykir enginn maður með mönnum nema hann hitti þrjár til fjórar á viku fýrir utan þessa föstu. Ef hann gerir það ekki er hann getulaus. Og rekinn að heiman," segir Sverrir. Sverrir hefur greinilega engu gleymt. Nema síður sé. Og er í ess- inu sínu á Taílandi. Fjölmargt af því sem strigakjafturinn sá lætur flakka í samtali við blaðamann er ekki birt- ingarhæft í virðulegu blaði sem DV er. Sverri líkar vel menningin þar ytra og segir þar verðug verkefni fýrir femín- ista sem eru víðsfjarri. En verkefnin, þau eru óvenjuieg: „Þetta er bráðsniðugt fyrirkomu- lag hér en ef þú værir þenkjandi eins og dæmigerð íslensk rauðsokka gæt- ir þú kært aðra hverja konu fýrir kyn- ferðislega áreitni." Sverrir lýsir því fjálglega að hvar sem hann fer grípi þarlenskar konur óhikað um það aílra heiiagasta, hvort heldur Sverrir fer í apótek, á bar, í flóttabúðir eða fiskibúð. „Lítið þarf hér að hafa fyrir hlutun- um." jakob@dv.is Góðir í Pattaya Sverrirog Geiri eru glaðir á góðri stundu í Taílandi og skemmta sérhið besta fjarri öllum femínistum. Höfum flutt að Fiskislóð 14 og breytt nafni fyrirtækisins STURLAUGUR & CO / verkin Þú stendur betur að vígi meö New Holland hjólagröfum. Fiskislóð 14 • 101 Reykjavik • Sími: 551 4680 • sturlaugur@sturlaugur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.