Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2006, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2006, Page 54
66 FÖSTUDAGUR 19.MAI2006 Helgin DV DaftPunkmeð myndáCannes Franska danstón- listarsveitin Daft Punkkemurframt kvikmyndinni Daft, Punk's Electroma, sem er sýnd á kvikmyndahátfð- inni í Cannes. Myndin segirfrá tilraunum Daft Punk-vélmennanna til þess að verða mennsk. Sveitin er annars nýfarin af stað á tónleikaferð sem teygir sig til nokkurra evrópskra og japanskra tónlistarhátfða til að fylgja eftir útkomu safnplötunnar Musiques, Vol. 1. Létu aðdáendur gera tónleikamynd New York-rappsveitin Beastie Boys er þekkt íyrir að fara sínar eigin leiðir. Nú hafa þeir gert tónleikamynd, sem er ólík öðrum slfkurn myndum, þar sem hún er að mestu tekin upp af aðdáend- um. Strákamir í Beastie Boys fengu sent myndskeið sem aðdáandi hafði tek- ið upp utan úr sal á tónleikum og urðu svo hrifnir að þeir ákváðu að gera heila mynd með þessari aðferð. Þeir auglýstu á heimasíðunni sinni eftir sjálfboðalið- um og fengu50 manns til að taka upp tónleika þeirra í Madison Square Gard- en. Útkoman þykir mjög sannfærandi. Maður uppliflr tónfeikana eins og mað- ur sé á staðnum og fylgir áltorfendun- um út um allt, meira að segja einum inn á klósett. Jarvis með sólóplötu Aðdáendur Jarvis Cocker, fyrrver- andi Pulp-söngvara, geta tekið gleði sína á nýjan leik. Hann er ekki hætt- ur í poppinu! Jarvis leysti upp Pulp fyrir fjórum árum og flutti með konunni til Par- ísar til að slaka á og lifa hinu Ijúfa lífi. Hann hefur lítið búið til af tón- list síðan, en nú er hann byrjaður að taka upp sína fyrstu sólóplötu. Hún er væntanleg með haustinu og verð- ur gefin út af plötufyrirtæki Emilí- önu Torrini og Jakobínarínu, Rough Trade. Meistaraverk Pulp, Different Class, er svo væntanlegt í viðhafnar- útgáfu seinna á árinu. Jarvis Cocker Tekur lífinu rólega I Parls. Breska hljómsveitin Hot Chip sló rækilega í gegn á Iceland Airwaves fyrir tveimur árum. Hún var þá frekar lítið þekkt og hafði bara sent frá sér eina plötu. Eftir helgina er önnur plata hennar, The Warning, væntanleg í verslanir. Full Circle markar endurkomu einnar afdáöustu rokksveitum íslands, Jet BlackJoe. Sem fyrr eru það þeir Gunnar Bjarni Ragnarsson og Páll Rósinkranz sem fara fyrirsveitinni. Platan inniheldur ellefu lög. Áttaþeirra eru eftirGunnar Bjarna, en þrjú slðustu lögin eru eftir Pál. Full Circle ernokkuð sannfærandi. Hún hefur aö geyma nokkur frábær lög (7, FarAway, Full Circle...). Hljómurinn er flottur ogþaö sama má segja um söng og hljóöfæraleik. Aðdáendurnir verða ekki fyrirvonbrigðum, en heildarsvipur- inn heföi samt verið sterkari efslöustu þrjú lögin hefðu verið útsettfyrir hljómsveitina, en ekki bara sungin afPáli yfirkassagltarleik. JetBlackJoe FullCircle ★ ★★ Hot Chip Island var fyrsta landið þar sem stráarnir náðu vinsældum og þeir taka það gjarnan fram I viðtölum. New York-sveitin Yeah Yeah Yeahs vakti verðskuldaða athygli fyrirslna fyrstu plötu I fullri lengd, Fever To Tell, sem kom út fyrirþremur árum. Nú er plata númer tvö, Show YourBones (* þrjárstjörnur) komin út. Fyrsta smásklfulagið afhenni, GoldLion, hefur notið mikilla vinsælda, enda sérstaklega grlpandi rokkslagari. Show YourBones er I þessum hráa stll sem einkenndi fyrri plötuna, en aðeins poppaðri. Ekki slæm plata,enskilursamtfrekarlítiðeftirsig. Yeah Yeah Yeahs Show Your Bones ★ ★★ V- Meikuðu það fyrst í Reykjavík BloodSugarSexMagikhefuralltafverið mln uppáhalds Red Hot Chili Peppers plata. Tvöföldplata tekin upp með Rick Rubin. Á Stadium Arcadium vinna þeir Chili Peppers menná nýjan leik með Rubin og útkoman eraftur tvöföldplata - heil 28 lög. Þaö hljómar kannski ótrúlega, en staðreyndin ersamtsú að þaö ervarla veikan blettað finna á þessum 28 lögum. Hér eru bæði fönk-stykki og ballöður og fullt afþessum milli-hröðu melódisku rokklögum sem sveitin erþekkt fyrir. Og það eru flott tilþrifbæði I gítar og bassaleik. Ekki mikil nýjungagirni kannski, en samt helvíti þétturpakki. Red HotChili 1 Peppers STHDIUM Stadium Arcadium fiRCflQIUM , ★ ★★★ TraustiJúlíusson Það er óhætt að segja að það hafl borið töluvert á bresku hJjómsveitinni Hot Chip í Reykjavík haustið 2004. Hún spilaði þá tvisvar á Airwaves. Fyrst á kiikkuðum stemningstónleik- um í 12 tónum, síðan við mikil fagn- aðarlæti á Nasa. Og svo kom hún nokkrum vikum seinna til að spila aftur á Nasa. Fyrsta plata sveitarinn- ar, Coming On Strong, vakti mikla at- hygli hér á landi og í raun má segja að ísland hafi verið fyrsta landið þar sem Hot Chip náði vinsældum. Enda hafa meðlimir sveitarinnar ítrekað haft orð á því í viðtölum að þeir hafi meikað það í Reykjavík. Nú er ný Hot Chip-plata að koma út eftir helgina. Hún heitir The Warning og er fyrsta platan sem sveitin gefur út hjá EMI- útgáfurisanum. Tónleikaferðir með Stereolab og Goldfrapp Hot Chip er fimm manna sveit skipuð þeim Joe Goddard, Alexis Taylor, A1 Doyle, Owen Clarke og Felix Martin. Joe og Alexis voru saman í skóla í Putney-hverfinu í London og byrjuðu að búa til tóniist saman þeg- ar þeir voru unglingar. Fyrsta útgáfa sveitarinnar var stuttskífan Mexico sem kom út árið 2000, en árið 2003 byrjaði fimm manna sveitin að spila á tónieikum. Ári seinna kom fyrsta stóra platan þeirra, Coming On Strong, r The Warning önnuri Chip er væntanleg efti út hjá Moshi Moshi-fyrir- tækinu. f fyrra spilaði Hot Chip mik- ið á tónleik- um, fór m.a. á tónleika- ferðir með LCD Sound-______ system, Ster- |fyp eolab og Vl_J Mylo. Árið 2006 hefur líka verið sveitinni gjöfultþað sem af er: Hún sendi frá sér smáskífuna Over & Over snemma á árinu, fór á tónleika- ferð með Goldfrapp og var ein af upp- götvunum South by Soutwest tónlist- ■ arhátíðarinnar. Tekin upp heima í stofu Tónlist Hot Chip er dansvænt raf- popp. Áhrif má heyra frá jafn ólíkum listamönnum og Prince, Scritti Pol- itti, New Order og Aphex Twin. Eins og Coming On Strong var The Warning tekin upp heima í stofu hjá Joe Goddard. Útkoman er ennþá flottari plata en sú fyrri. Grúvið í Over & Over er svo smitandi að maður get- ur ekki setið kyrr, Look After Me er glimrandi poppballaða og lög eins og Húmorinn aldrei langt undan „Hot Chip mun brjóta áykkur lappirnar..."syngja þeir glaðlega ílaginu The Warning. Careful, No Fit State, Colours, Tchap- arian og smáskífa númer tvö af plöt- unni, Boy From School, eru frábær hka. Eitt af einkennum Hot Chip er ákveðinn húmor og léttleiki sem fór ekki framhjá neinum á tónleikun- um á Airwaves. Þessi húmor kemur vel í gegn í enn einu snilldarlaginu á plötunni, títillaginu The Warning. Þar syngja þeir glaðlega: „Hot Chip will break ydur legs, snap of your head..."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.