Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Blaðsíða 12
Það er alltaf skemmtilegt að fá að hnýsast smá- vegis, hver veit hvaða gersemar við munum finna og sjá hverju sinni. Að þessu sinni fengum við að kíkja í kistuna hjá Kristínu Evu Ólafsdóttur nema í grafískri hönnun við Listaháskóla íslands. „Ég er að fara á annað ár í grafi'skri hönnun í Listaháskólanum og síðan er ég líka hönnuður hjá margmiðlunarfyrir- tækinu Gagarín," segir Kristín Eva galvösk. „Ég hef ekki mikið á minni könnu akkúrat núna, annað en að vinna og skemmta mér. Ég ætla bara að hvíla mig þar sem ég var að klára að hanna útskriftarbókina fyrir Listaháskólann. Ég sá um að hanna og setja hana upp að þessu sinn en það er Já sem gaf síma- skrána út og var hún prentuð í 230.000 þúsund ein- tökum. Þetta var hönnunarkeppni við Listaháskóla íslands og þema keppninnar var fortíð og nútíð. Ég ætla ekki til útlanda í sumar að ég veit en það er að- allega vegna þess að ég ætla í skiptinám næsta vetur. Ég hafði hugsað mér að fara til Hollands þar sem ég er yfir mig hrifin af einum skóla þar,“segir Kristín Eva sem hefúr í ýmsu að snúast. sigga@vamnsklais.is 'é Q_ I o> QJ s Jjf „Ég elska úrið, ég hafði látið mig dreyma um urið síðan ég sá það fyrst/'segir Kristín Eva hress að bragði. „Ég sá það fyrst fyrir um tveimur árum og dásamaði það í hvert skipti sem ég sá það. Síðan gaf maðurinn minn mér það íjólagjöf en armband- ið fékk ég í afmælisgjöf. Hringinn fékk ég frá æsku- vinkonu minni henni Hönnu Stínu," segir Kristín Eva sem á íausnarlega vini og vandamenn. „Ég valdi kaffivélina af þeirri einföldu ástæðu að hún er ómissandi eftir að ég byrjaði ískólanum/'segir Kristín Eva. Ég fer ekkert i gang fyrr eneftirtvotil þrjá bolla, það er fastur punktur/segir Kristín Eva sem gæti ekki lif- aðafánkaffivélarinnar. „Hún bættist í safnið í Oslóarferðinni og er úr H&M/'segir Kristín Eva. Þetta er soldið skemmtileg saga, því þegar ég dró hana upp úr pokanum hæstánægð með kaupin, hélt vinkona mín að þetta væri borðdúkur. En síðan svona i sárabætur sáum við að þetta efni er úti um allt i dag til dæmis hjá Chloé, Prada og MiuMiu. Eg veit að hana langar að fá hana lánaða en þorir bara ekki að spyrja/'segir Kristín Eva sposk á svip. „Eg valdi stofuborðið þvi að amma Kristín heitin átti þetta," segir Kristín Eva. „Ég lét yfirdekkja stólana með hvítu leðri og það eru ekki allir sammmála mér um að þetta sé flott en mér finnst þetta æðislegt. Þetta hefur líka mjög mikið tilfinningalegt gildi, ég hef átt það í átta ár og lék mér tímunum saman undir því þegar ég var lítil/'segir Kristín Eva og skellir upp úr. „Ég get endalaust bætt á mig jökkum," segir Kristín Eva og flissar. „Eg keypti þennan þegar ég heimsótti Helenu vinkonu mína í Osló um daginn. Hann er úr búð sem heitir Rock and Republic og ég get varla farið úr honum því hann er svo flott- ur/'segir Kristín Eva hæstánægð með kaupin. „Mér fannst ómissandi að hafa þær ekki með því ég panta rosalega mikið af bókum á amazon.com. Eg get alveg gleymt mér í bókabúðum og það er nauðsynlegt fyrir mig að fylgjast vel með hvað er að gerast í bransan- um,"segir Kristín Eva bókaormur. 1 fp r 1 [NÚNA ER MAUÐ AÐ FJÁRFESTAÍ/ ALMENNILEGUM HÆLUM, HELST í EINHVERIUM FLOTTUM UT OG AÐ SJALFSÖGÐU EKKIVERRA EF ÞEIR ERU SVOKALLAÐIR „WED- GES" (MEÐ FYLLTUM BOTNI).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.