Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 16
ÞEIR ÞORSTEINN lAR, DÓRIDNA, BENT OG LÚLLIHAFA SLEGIÐ í GEGN í ÞÆTTINUM TÍVOLÍ A SIRKUS EN NÆSTA ÞRIÐJUDAG VERÐUR LOKAÞATTURINN
af Atta sýndur A stöðinni. þættirnir hafa fengid mikla athygli frA breiðum hóp-meiraað segja lögreglunni sem A DÖGUNUM
TÖK SJÖTTA þAtt seríunnar til skoðunar. í þeim þætti sýndu strAkarnir hvernig best er að framkvæma bankarAn. vildi lögreglan
sjA hvort nokkuð ólöglegt væri að finna í þættinum. sirkus tók hvern strAk fyrir sig og yfirheyrði í drasl
LðlLI
Nafn:
Lúðvík Páll Lúðvíksson aka Lúlli Palli aka
LallyPop aka PINPIN.
Uppáhaldstívolítæki:
Mjög langt síðan ég fór í almennilegt tívolí.
Held ég hafi síðast farið með Bent og Eika fyr-
ir 6 árum síðan í Danmörku. Ætli ég segi ekki
klessubílarnir því ég er ekki með bflpróf.
Hvaöa banka langar þig helst til þess aö ræna,
ogafhveiju?
KB á Vesturgötu hann er skuggalega nálægt
mér, ég gæti skokkað heim með ránsfenginn,
svo er hraðbankinn þar fyrir utan alltaf bilað-
ur svo það ýtir bara undir að ræna bankann.
Hvaða mann langar þig mest til að berja og af
hverju?
Held ég haldi því bara fyrir mig.
Ferðu oft í sleik á skemmtístööiun?
Það dettur alveg inn þegar maður er halaður
niður í bæ.
Hefúrðu notíð ásta inni á almenningssalemi?
.Semi.
Myndirðu gera takt fyrir Kalla Bjama?
Nei, það held ég ekki. En maður myndi
kannski gera einhverja takta fyrir einhverja
svona sultuhunda því maður þarf nú að
borga reikninga.
Hvað ertu með mörg frag í counter strike?
Veit ekki, þetta er líka fáranleg spuming. Hver
semur þetta?
Á Dóri DNA að fara í megrun?
Dóri er mjög smooth gaur eins og hann er
Hvaðan ertu?
Ég er ættaður að Westann úr Aðalvík en ég
ólst upp í Árbæ. í dag bý ég í 101.
Hvemig ertu með víni?
Áfengi er smooth, maður má vera fucked á
áfengi en þegar maður dettur í frítt áfengi þá
getur maður orðið dáldið valtur. En annars er
maður alltaf að vera smooth á því.
Hvað næst?
Ég er að klára þessa Tívolí-seríu svo tekur
eitthvað tónlistartengt við. Ég hef verið að
semja tónlist í smá verkefni sem ég ætla að
reyna að koma í gang í sumar en svo í haust
ætla ég bara að halda áfram í Kvikmyndaskól-
anum.
DÓRIDHA
Nafm
Dóri DNA, Halldór Halldórsson, DNA-maður-
inn, Stóri lurinn, Breiði herramaðurinn, Mar-
melaðikóngurinn, Gúmmelaðibóndinn, Bóbó,
Kútur, Loverboy, Erfiðleikarinn eða Hrottinn.
Uppáhaldstívolítæki:
Ég er svo hræddur við öll stóm tækin að ég fer
aldrei í þau. Mér finnst bara hæfilega þægilegir
rússíbanar skemmtiiegir. En þegar sígauna-
tívolíið kemur til íslands á sumrin þá finnst
mér skemmtilegast að fara í boliana og sjá allt
goth-liðið sem er blindfuilt þar.
Hvaða banka langar þig heist til þess að ræna,
ogafhverju?
Ég myndi ræna Landsbankann á Langholts-
vegi. Pínulítið útibú þar sem enginn býst við
mér. Ég myndi hlaupa inn með sveðju og skipa
gjaldkeranum að láta mig fá alla fimm þúsimd-
kallana. Svo myndi ég hjóla upp í Mosfellsdal.
Hvaða mann langar þig mest til að berja, og af
hverju? Mig langar til þess að lemja helling af
liði til dæmis dávaldinn Sailesh af því hann er
ógeð, Iandsliðið í karate því ég held ég gæti
það, Gillzenegger til að sýna honum hvað er í
gangi. Svo langar mig að lemja Sveppa, ekki af
því að ég hafi eitthvað á móti honum. Ég held
að það væri bara svo gaman.
Á Bent að taka magaæfingar? Nei því þá myndu
kallamir.org reyna að ná honum á sitt band. Ég
kann vel við hann eins og hann er. Með bijóst-
vöðva, byssur og bjórvömb.
Af hveiju hösslarðu svona fáránlega mikið?
Ætli það sé ekki sambland af ómótstæðilegu
brosi, lygum, óhefðbundleika, hótunum og
stórkallalátum. Svo dansa ég alveg frábæran lá-
réttan mambó.
Hvenær misstirðu sveindóminn? Þegar ég var
13 ára, eins og fagmaður.
Hefúrðu fengið dömu út á að vera bamabam
Halldórs Laxness? Það held ég ekki, enda væri
það lflca ömgglega alveg ömurleg skonsa. Held
að stelpur vilji sjaldnast sofa hjá manni ef afi
manns er töff.
N
Af hveiju ferðu ekki í megrun? Ég var búinn að
einsetja mér það að h'ta út eins og leikarinn The
Rock í maí árið 2006. En svo kom Gillzenegger
fram á sjónarsviðið og mér finnst eins og að
hann og hans yfirborðslegu gildi séu búin að
sigra ef ég ákveð að fara í megrun. Hins vegar
hefur hann fullvissað mig um að hann geti lát-
ið mig líta út eins og The Rock og finnst mér til-
boðið mjög freistandi.
Afhverju ertu betri rappari en aðrir?
Mig hefur alltaf dreymt um að fá þessa spum-
ingu og svara henni á eins hrokafullan máta og
hægt er. Nú þori ég varla að svara henni. En
æth ég verði ekki bara að vera samkvæmur
sjálfum mér og segja, „bíddu veistu ekki hver
afi minn er?“ Annars er ég betri því að textam-
ir mínir feta góða h'nu milli fiumleika, góðs
ríms og skáldlegrar fegurðar.
Hversu mikill Fat Joe ertu? Ég á fót sem ég kalla
Fat Joe-fötin. Þegar ég er kominn í þau erum
við ekkert svo ósvipaðar týpur. Annars er hann
Puertó Ríkani og ég bara úr Mosfellsdal. Hann
er víst einhver glæpon en ég er bara grínisti.
Hann á spikfeitar gullkeðjur en um daginn
þegar ég reyndi að eignast svoleiðis sagði kon-
an í búðinni að einungis væm til „litlar og mjó-
ar karlmannskeðjur." Ég trúi nú varla að Fat Joe
sé boðið upp á svoleiðis frat.
Hver em fúrðulegustu rapptilboö sem þú hefúr
fengið?
Mér hefúr verið boðið að rappa á ömurlegum
stöðum. Einu sinni var til dæmis unglingablað-
ið Smellur að gefa út disk og hljómsveitinni
minni, Bæjarins bestu, var boðið að vera með
lag. Síðan kom í ljós að við þyrftum að borga
fyrir það. Síðan hefur mér verið boðið að rappa
f Evróvisjón, í auglýsingum og með hljómsveit-
inni í svörtum fötum. Einu sinni samdi ég líka
rapptexta fýrir forstjóra Essó. En það er önnur
saga.
Hvaðnæst?
Ég er kominn með stúdentspróf sem er lfldega
eini áfanginn í námskerfinu sem ég ætla mér
að ná í lífinu. Næst er því að fara til Búlgaríu og
á Hróarskeldu. í haust ætla ég svo að gefa út
fyrsta sólódiskinn minn, sem verður vonandi
sá besti í heimi.
________________________________________J