Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Page 2
fAtt er betra en að setjast [ DIMMAN BÍÓSAL OG lATA HRÆÐA ÚR SÉR LÍFTÓRUNA. ÞETTA VITA MARGIR OG MUN ÞV( EFLAUST VERA ÞÉTT SEIIÐ Á HROLLVEKJUNNITHE OMEN UM HELGINA. Það komust eflaust færri en vildu til að sjá hrollvekjuna The Omen þegar hún var frumsýnd út um allan heim á þriðjudag- inn. Þá var vitanlega sjötti dagur sjötta mánaðar sjötta árs árþúsundsins, mjög viðeigandi dagsetning til að vekja upp and- krist í kvikmyndahúsum heimsins. The Omen er endurgerð á samnefndri mynd frá 1976 og þykir hafa heppnast mjög vel. Litli drengurinn, sem breytist í andkrist og gerir allt brjálað hvar sem hann fer, er með eindæmum skuggaiegur. Marga hryll- ir við að horfa á strákinn, enda hrikaleg tii- hugsun að einhver af guttunum í kringum okkur taki jafn helvíska u-beygju og hann. Liev Schreiber og Julia Stiles fara með hlutverk foreldranna en með hlutverk litla Damien fer drengur að nafni Seamus Da- vey-Fitzpatrick. Djöfulleg barnfóstra hans er leikin af Miu Farrow. Það leikaraval er viðeigandi því Farrow fór með aðalhlut- verkið í Rosemary’s Baby, hrollvekju um fæðingu andkrists á svipuðum tíma og gamla Omen var gerð. Fleiri vísanir í gömlu myndina er að finna, þvf Harvey Stephens, sem lék litla Damien árið 1976, mætir aftur til leiks sem blaðamaður. Semsagt, ferð á Omen er að eyða kvöldstund og láta upp í taugunum á sér. MÆLIRMEÐ Sirkus mælirsvo sannnar- lega með bókinni Enda- laus orka þar sem eru yfir 200 bráðhollir ávaxta- og grænmetisdrykkir fyrir alla eldhressa. Þarna eru hin ýmsu ráð sem hjálpa manni að skilja það hvern- ig sumir ávextir fara illa í mann og aðrirvel, hvenær dags er gott að skella í sig gulrótarsafa og hvenær appelsínusafa. Hvort greipdjús sé góður fyrir svefn eða ekki. Kíkið á bókina, Vala Matt mælir iíka með henni og það hlýtur að þýða að hún klikkar ekki. Sirkus mælir með plötunni Broken Boy Soldier með The Raconteurs, nýju hljómsveit Jacks White úr White Stripes. Lagið Steady As She Goes er nú þegar að gera góða hluti og er komið á toppinn á lista X-ins. Platan öll er svöl og fagna margir því að Jack sé loksins kominn með almennilegan trommuleikara, eins og Meg erflott þá þykir hún oft ansi einhæfmeðkjuðana. Eins og glöggir hafa kannski áttað sig á mælir Sirkus með Bright Nights Festival sem er skipt á þrjá daga, frá deginum í dag og til sunnudags. Það er um að gera að hætta snemma að vinna í dag, versla gott í matinn og slá helginni upp í geggjaðan kokkteil. Smá af öllu, tónleikar, öl og tjaldútilega með tilheyrandi. Kíkið á Árnes sem er staðsett í minni Þjórsárdalsíns, um 97 km frá Reykjavik. Bright Nights \ er málið. Þaeldénú! ISUMARIÐ ER TÍMI | hAtídanna 1/1 Það fer ekki milli mála að sumarið er komið í allri sinni mynd. Ekki það að veðrið hafi verið til fyrirmyndar síðustu daga heldur vegna þess að nú er bjart allan sólarhringinn og sumarhátíðirnar komnar á fullt. Reykjavík Trópík fórfram með miklum glæslbrag um síðustu helgi, þrátt fyrir hnökra, og er vonandi að hún lifi áfram. Þessa helgina eru þrír ungir Reykvikingar síðan að skipuleggja metnaðarfulla tónlistarhátíð í Gnúpverjahreppi, Bríght Nights. Þar verður boðið upp á ógrynnin öll af tónlist auk þess að myndlistarmenn mæta í bunkum til að gleðja augað og andann. Við hvetjum alla sem geta til að kíkja. Þá er vinsælasta tónlistarhátíð Islendinga erlendis, Hróarskelda, á næsta leyti og eins og kemur fram í Sirkus í dag er metfjöldi á v> leiðinni þangað. Síðast en ekki síst hefst ein stærsta hátíð sumarsins um helgina. Sjálft Heimsmeistara- mótið f fótbolta. Allan júnímánuð verður standandi partý f býskalandi, sem teygir anga sína inn í stofur og vinnustaði út um allan heim. Og þá er bara eitt að gera... skemmtið ykkur vel. Tlrml Svelnsson Auglýsingastjóri: Jóhannes Már Sigurðarson Kynningarstjóri: Guðmundur ArnarGuðmundsson Sölustjóri: Hörður Jóhannesson hordur.johannesson@365.is Ritstjóri: Tinni Sveinsson Ritstjóm: Halldór Halldórsson, Hjörvar Hafliðason og Sigríður Ella Jónsdóttir. Áskrift 550 5000 / askrift@365.is Prentun: ísafoldarprentsmiðja ÉForsHumyndina tókHari af Reyni, Jóhanni Hetga og Halldóm, skipuleggjendum BrightNlghts- hátffiaitnnar. 26 4 - Bríet Sunna skefur ekki af hlutunum 6- ReykjavíkTrópík í máli og myndum 7 - Húðflúrarar fara úr fótunum 9 - Heitustu gæjarnir á HM 12 - Metaðsókn (slendinga á Hróarskeldu 16-17 - Bright Nights fer á flug 18 - Neytendur fara í stríð við iPod 19 - Hver verður valin Pravdaprinsessan? - Fékk jakkafót Ólafs Thors og fór f he'itan pott 27-29 - Allt sem þú vilt vita um menningar- og skemmtanalífið í Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.