Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2006, Blaðsíða 8
Heimsk eða gáfnaljós Hér sést Paris eiga í smá vandræíum með hurðma á bílnum sínum. Mörgum finnst Paris afar heimsk. En hún kallar þetta markaðssetningu. HBMSVELDK) Paris Hilton. Eitt nafn sem allir þekkja, hvort sem þeir vilja það eða ekki. Paris Hilton hefur tekist að troða sér inn í líf allra, þökk sé fyrsta flokks almannatengslaliði. Paris Hilton, dóttir Richards og Kathy Hilton, erfingi Hilton-hótelkeðjanna og fast- eignafyrirtækis föður síns, ólst upp í New York. Lítið fór fyrir henni þangað til stúlkan komst á táningsaldur og varð meira áberandi í hástétt- arfélagslífinu f New York. Hún stundaði nám við Dwight-grunnskólann í New York en ákvað að hætta og fékk GED-gráðu í staðinn sem samsvarar grunnskólaprófi. KYNLÍF KOM HENNIÁ KORTIÐ Paris var 23 ára og orðin þekkt í New York. En það var ekki eftirnafnið sem gerði hana heimsfræga heldur kynlífsmyndband sem hún tók upp ásamt þáverandi kærasta sínum, Rick Solomon, aðeins 19 ára gömul. Rick og Paris hættu saman eftir frekar stutt samband en þegar raunveruleikaþátturinn The Simple Life var frumsýndur í bandarísku sjónvarpi ákvað Rick að græða pening á nýfrægri Paris og lak myndbandinu á netið. Níunda 8júní 2004 var One Night in Paris 1 gefið út á DVD. Paris lögsótti Rick og sátt náðist í málinu. Hlaut Paris 400 þúsund dollara fyrir ónæðið. Hluti greiðslunnar rann til líkn- armála. En Paris var orðin fræg. Eins og þruman úr heiðskýru lofti var Paris alls staðar, í sjónvarpinu, í hverju einasta partíi og í slúðurpressunni. í þættinum The Simple Life brá mörgum í brún að sjá hversu heimsk Paris var, en í viðtali við The Guardian Observer á dögunum útskýrir Paris: „Það virðist enginn ætía að fatta að í The Simple Life er ég karakter. Ég veit meira að segja hvað Wal-Mart er! Ég þykist vera heimsk, rétt eins og Jessica Simpson gerir, en við vitum nákvæmlega hvað við erum að gera. Við erum gáfaðar ljóskur." í þáttunum spyr Paris hvað Wall-Mart sé, hvort búnir séu tiJ veggir þar. LÍFIÐ ERVINNA Paris uppgötvaði fljótlega að hún gæti grætt milda peninga á því að vera hún sjálf. Hún hafði þegar leiJcið í fimm seríum ásamt Nicole Richie þrátt fyrir að þær hefðu ekld tal- að saman í rúmt eitt og hálft ár. Einnig sér hún um að hanna handtöskur fyrir línu Samönthu Thavasa ásamt systur sinni Nicky Hilton sem eru einungis til sölu í Japan ásamt því að hanna skartgripi sem eru til sölu á amazon.com. Á síðasta ári var kynnt Paris Hilton-úr með 18 karata hvítagulli og demöntum. Úrin kosta allt frá 100 þúsund dollurum sem jafngildir sjö og hálfri milljón íslenslcra króna. Hún hefur opnað tvo skemmtistaði í Flórída og vonast til þess að opna fleiri bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Umvatn Parisar sem kom út fyrir tveimur árum sýnir mátt hennar og frægð. Umvatnið heitir einfaldlega Paris Hilton og var hannað af henni sjálfri ásamt fyrirtækinu Parlux. Um- vatnið kom út en var selt í litlu magni. Það var svo vinsælt að fyrirtækið þurfti að framleiða meira. Hagnaður fýrirtækisins óx um 47 pró- sent eftir að ilmvatn hennar kom út. Síðan þá hefur Paris hannað tvö ilmvötn til viðbótar. Eitt fýrir karlmenn og annað fyrir bæði kynin. Auk ilmvatnsins er í bígerð snyrti- og tísku- lína. HEIMSKEÐAOFURGÁFUÐ Það virðist enginn geta viðurkennt að hafa gaman af Paris HiJton, þó vilja allir lesa um hana. Hún er eins og forboðni ávöxturinn sem alla langar að fá sér bita af. „Það er til fullt af erfingjum, en ég get ekki séð að neinn þeirra sé að gera það sem ég hef gert. Ég er með svo mildð í gangi, töskur, ilm- vötn, snyrtivörur. Ég flýg í kringum heiminn á þriggja daga fresti til að hanna og samþykkja allt sem er hannað fyrir mig. Ég er að leika í kvilonyndum, á tónleikaferðalagi og með sjón- varpsþátt. Hver einasti dagur í fullbókaður þangað til 2007,“ sagði Paris í viðtali við The Guardian. „Ég var í kvöldverði hjá afa mínum í síðustu viku og hann sagði: „Þú ert duglegasti forstjóri sem ég þekkJ." Það nýjasta á dagskrá Parísar er platan hennar. Fyrsta smáskífan er nú þegar komin ím. Fyrsta myndbandið Smá óhapp varð við töku á fyrsta myndbandi Parísar. út og heitir Blinded by the Stars. Lagið er í 18. sæti á bandaríska vinsældalistanum og í því þriðja á kanadíska vinsældalistanum. í Jok viðtalsins við The Guardian Observer svarar Paris Hilton nokkrum spumingum. Er þetta erfitt? „Það getur verið það. Stundum finnst mér eins og fjölmiðlar noti mig sem boxpúða." Við hverju bjóstu? „Ég veit, en það er samt hallærislegt. En ég elska starfið mitt og mér finnst ég hafa unnið mér inn þau réttindi að vera hamingjusöm. Guð gefúr þér gott karma ef þú vinnur mikið og ert góð." Ertu trúuð? „Já, kaþólilcki." Ertu með biblíu við hliðina á rúminu? „Nei." Bara myndavél? „Gildir einu, maður. Það munu að minnsta kosti allir alltaf muna eftir mér." Eigin yfirmaður Paris hannar hand töskur, ilmvötn, snyrtivörur og föt allt i eigin nafni,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.