Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2006, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST2006
Fréttir DV
• Eyjamaðurinn og
Sjálfstæðismaðurinn
Ami Johnsen á pólit-
íska framtíð sína und-
ir engum öðrum en
Ólafl Ragnari Gríms-
syni, forseta Islands.
Til að verða kjörgengur
í alþingiskosningunum í vor þarf Árni
að leita uppreisnar æru hjá forsetan-
um í gegnum dómsmálaráðuneytið
vegna dómsins sem
hann fékk um árið.
Erfitt verður fyrir Ólaf
Ragnar að horfa fram-
hjá því að ekki eru
liðin fimm ár frá því
að Ámi lauk fanga-
vist sinni og því get-
ur hann ekki samkvæmt lögum veitt
honum uppreisn æru...
• Það hefur vakið athygli hversu
harkalega lögreglu-
menn á Austurlandi
hafa gengið fram við
mótmælendur við
Kárahnjúka undan-
fama daga. Því hef-
ur verið haldið fram
að skipanir þess efnis
komi að sunnan enda
hafa Bjöm Bjamason
dómsmálaráðherra og
Haraldur Johanne-
sen ríkislögreglustjóri
ekki verið þekktir fyrir
að sýna mótmælend-
um neina linkind eins
og Falun Gong-liðar
geta staðfest. Bjöm
og Haraldur eiga líka
sinn mann á Austur-
landi en þar ræður ríkj-
um Óskar Bjartmarz,
góður vinur Haraldar,
sem var ráðinn í starfið
án þess að það væri auglýst á sínum
tíma...
• Mikil titringur ríkir
í fjölmiðlaheiminum
eftir að stjömublaða-
maðurinn Reynir
Traustason tilkynnti
í kvöldfréttum RÚV á
mánudaginn að hann
hygðist stofna nýj-
an fjölmiðil. Enn veit enginn hvemig
fýrirkomulagið verður á þeim miðli
eða hver fjármagnar ævintýrið en
hitt er þó ljóst að það er áhugi fýrir
því sem Reynir er að gera. Alls sóttu
fimm manns um vinnu hjá honum
morguninn eftir að viðtalið var birt og
væntanlega fleiri eftir því sem líða tók
ádaginn...
• Dansarinnknái
Yasmine Olsen, sem
er eiginkona Adda
Fannars í hljómsveit-
inni Skftamóral, er
ólétt. Henni fellur þó
sjaldnast verk úr hendi
ogernúáfullu við að
búa tif æfingamyndband fýrir óléttar
konur sem á að koma út fýrir jólin.
Það styttist hins vegar í fæðingu hjá
Yasmine og því þarf hún að hafa hrað-
ar hendur við að klára myndbandið
áður en bamið kemur í heiminn...
• Hér á þessum stað fýrir viku birt-
ist klausa um að þre-
menningamir Hall-
grímur Thorsteinsson,
Ingvi Hrafn Jónsson
og Sigurður G. Tómas-
son væm í dómsmáli
gegn Amþrúði Karls-
dóttur, eiganda Út-
varps Sögu, vegna vangoldinna launa.
Að sögn Amþrúðar er það ekld rétt
að dómsmálið sé vegna vangoldinna
launa heldur vegna deilna um bónus.
Er hún hér með beðin velvirðingar á
þessum mistökum...
Jónas Þór Þorvaldsson. framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Stoða, keypti nýlegt ein-
býlishús í Grafarvogi fyrir skömmu. Hann gerði sér lítið fyrir og lét rífa það. Jónas Þór
ætlar að byggja tæplega 300 fermetra hús í staðinn.
-v
Ekkert hús Þórog
eiginkona hans hafa
rifiö hiö sjö ára gamalt
hús og ætla aö byggja
nýtt I staðinn.
Jónas Þór Þorvaldsson
Framkvæmdastjóri Fasteignafé-
lagsins Stoða keypti nýlegt hús á
Bakkastööum 47 oglét rlfa það.
Það verður sífellt algengara á íslandi að hús sem keypt eru fyrir
marga tugi milljóna króna eru rifin og glæsivillur byggðar í staðinn.
Jónas Þór Þorvaldsson, framkvæmdastj óri Fasteignafélagsins Stoða,
keypti 170 fermetra einbýlishús við Bakkastaði 47 og reif það. í stað-
inn ætlar hann að byggja tæplega 300 fermetra einbýfishús.
Húsið sem Jónas Þór keypti var
að sögn seljandans, Hermanns Þórs
Hermannssonar húsasmíðameist-
ara, í fínasta lagi þegar hann fékk það
afhent. „Þetta var gott hús sem ég
byggði. Það fór afar vel um okkur fjöl-
skylduna í því," sagði Hermann Þór.
Aðspurður hvort honum þætti sárt
að sjá svo nýlegt hús rifið, svaraði Her-
mann Þór því neitandi. „ Þetta er vænt-
anlega gert til að mæta öðrum þörfum
en fýrir voru í gamia húsinu. Þetta er
í takt við tímann og það er ekki hægt
að vera fúll."
40 milljónir fyrir lóð
Ekki hefur fengist uppgefið kaup-
verð á eigninni að Bakkastöðum 47
en þeir fasteignasalar sem DV ræddi
við telja líklegt að það hafi verið um 40
milljónir króna. Gatan er vel staðsett
nálægt golfvellinum á Korpu en með-
ai annars búa við hana þeir kumpán-
ar Damon Albam og Einar öm Bene-
diktsson, fýrrverandi Sykurmoli.
300 fermetra hús
Húsið sem Jónas Þór hyggst reisa
og hefur fengið leyfi fýrir hjá skipu-
„Þetta er væntanlega
gert til að mæta öðrum
þörfum en fyrir voru í
gamla húsinu."
lags- og bygginganefnd Reykjavíkur-
borgar er 274 fermetrar auk tvöfaldr-
ar bílageymslu sem er 45,5 fermetrar
að stærð. Jónas Þór og fjölskylda ætla
aukinheldur að koma fýrir setlaug í
garðinum hjá sér.
Ekki á vonarvöl
Það þarf þó ekki að koma á óvart að
Jónas Þór hafi lítið fýrir því að láta rífa
eitt stykki hús upp á 40 milljónir. Hann
er, eins og áður sagði, framkvæmda-
stjóri Fasteignafélagsins Stoða, og var
með rúmar fjórar milljónir í mánað-
arlaun á síðasta ári, samkvæmt tekju-
blaði Frjálsrar verslunar sem kom út á
dögunum. Jónas Þór býr ásamt konu
sinni og þremur börnum í parhúsi við
Vættaborgir en það er greinilega orð-
ið of h'tið fýrir þessa fimm manna fjöl-
skyldu.
oskar@dv.is
Vættaborgir 99 /þessuparhúsibýrJónasÞórásamtkonusinni ogþremurbörnum idag.
Árni Johnsen hættur sem Þjóðhátíðarkynnir og Bjarni Ólafur tekinn við
Árni á bakvakt - en með Brekkusöng í 300 ár
Eyjamaðurinn geðþekki Ámi
Johnsen tílkynnti á síðustu Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum að hann hefði
afsalað sér stöðu Þjóðhátíðarkynnis.
Árni hafði gegnt stöðunni í þrjátíu ár.
Aðspurður segir Árni að álagið sem
fýlgir kynnisstarfinu hafi sagt til sín.
„Það er svo rosalegt álag á kynnin-
um og maður var líka búinn að vera
að í 30 ár. Samhliða Brekkusöngnum
varð þetta erfiðara, þar sem söngur-
inn vegur alltaf þyngra," segir Ámi
Johnsen í samtali við DV í vikunni.
„Þetta eru vaktaskipti en ég verð þó
viðloðandi Þjóðhátíð alveg á fullu
næstu árin. Eini munurinn er að nú
er maður bara á bakvaktinni," segir
Árni í gamansömum tón.
Aðspurður segist hann síð-
ur en svo vera að fara að hætta
með Brekkusönginn, sem af mörg-
um hefur verið talinn fjölmennasti
hópsöngur heims. „Ég verð með
hann næstu 30 árin - eða 300
ef því er að skipta."
Árni segir þann sem tek-
ur við kyndlinum af honum
vera fínan í hlutverkið. Það er
Bjarni Ólafur Guðmundsson,
landskunnur útvarpsmaður
og kynnir.
„Fyrir mér er þetta frábært.
Svo mikill heiður - og manni
þykir að sjálfsögðu mjög vænt
um þetta," segir Bjami Olafur.
„Þjóðhátíðin stendur manni
svo nálægt og maður er líka
búinn að tryggja sig á hana
næstu árin," segir Bjarni Ól-
afur sem undanfarin 20 ár
hefur starfað við kynningar-
störf og verið mest áberandi
í fegurðarsamkeppnum. „Af
öllu þykir mér þó vænst um
þetta," segir hann.
gudmundur@dv.is
Á bakvaktinni Árni segir í
samtaliaöhérséumað
ræöa vaktaskipti. Samhliða
Brekkusöngnum hafí
kynnisstarfíö verið
þungbært. Hann ætlarþó
aö vera á bakvaktinni.
Nýi kynnirinn Útvarpsmaö-
urinn góðkunni er tekinn viö
Þjóöhátlðarkynniskyndlinum,
DV-mynd GuömundurÞ
l)V mynd Vilhelm