Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2006, Page 38
54 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST2006
Veiðimál DV
'TWifa/clfrib’
Umsjón: Jón Mýrdal (myrdal@dv.is)
Allar ábendingar eru vel þegnar; veiðisögur,
óvænt veiði, hverjir voru hvar við veiðar...
Allt sem við kemur veiðum og veiðimennsku.
StrandveiðimótArkó og Sportferða
Næstkomandi sunnudag verður hið árlega strandveiðimót
Arkó og Sportferða á Hauganesi við Eyjafjörð. Veitt er frá
ströndinni og mega menn nota þær tegundir stanga sem þeir
vilja, hvortsem er flugustöng eða kaststöng og spún. Mótið
hefst klukkan 12 og stendur til kl. 18. Svæðið sem um ræðir er 1
km norðan Hauganess og inn á svokallaðar Arnarnesnafir, 5-6
km. Bryggjusvæðið á Hauganesi veðrur ekki opnað fyrr en kl. 15.30. Að loknum veiðidegi er
boðið til grillveislu fyrir þátttakendur, verðlaunaafhending og síðan mótsslit. Verðlaun eru
veitt fyrir stærsta fískinn íhverri tegund og fyrir fjölda tegunda sem veiðast. Skráning hefst
kl. 10.00 um morguninn á bryggjunni á Hauganesi. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir veiðiáhuga-
manninn sem fékk ekki að veiða um verslunarmannahelgina.
Stórglæsilegur úr Grenlæk
Veiðimenn sem leggja leið
sina þangað geta lent I alveg
ótrúlegri veiði.
imann
Veiðimaður
vikunnar
Veiðimaður vikunnar að þessu
sinni er enginn annar er tónlist-
ar- og stórveiðimaðurinn Pálmi
Gunnarsson. „Það er nú bara þetta
hefðbundna sem ég geri. Ég byrja
snemma á vorin að veiða en þá fer
ég í silung bæði í Litluá og Lónsá
á Langanesi. Lónsáin var sérstak-
lega skemmtileg í maí í vor. Það
var alveg bullandi sjóbleikjuveiði.
Upp á síðkastið hef ég svo verið í
Brunná í öxarfirði. Þar er ævintýra-
legt að vera. Ég var svo að koma úr
vikuferð þar sem ég var með fjöl-
skyldu og vinum að veiða í Hofsá
í Vopnafirði. Við vorum á silunga-
svæðinu og það var alveg frábært.
Ég veiddi aðallega á þurrflugu al-
veg niður í númer 22. Ég held að
ég hafi bara náð einum á annað
en þurrflugu. Mér
finnst þurrflugu-
veiðin skemmti-
legust. Það er svo
mikil nákvæmni
sem þarf til veiða á
þurrflugu. Ég segi
oft að það sé loka-
takmarkið að verða
góður þurrflugu-
veiðimaður. Ég á svo
eftir að fara í sjóbirt-
ing í Vestur-Skafta-
fellssýslu. Ég hugsa
að ég gæti veitt á því
svæði blindandi, ég
þekki það svo vel.
Árnar sem ég fer í eru
Eldvatnsbotnar og
Brúará í Fljótshverfi
og svo fer ég senni-
lega í Grenlæk seinna
í haust."
Sumir veiðimenn segja að það sé skemmtilegra að takast á við sjóbirting en lax af svip-
aðri stærð. Yfirleitt er ódýrt að skjótast í sjóbirtingsveiði en verðið fer þó hækkandi.
Sjóbirtingsæði á íslandi
Það má segja að hálfgert æði hafi
gripið um sig í sjóbirtingsveiði á ís-
landi seinustu ár. Veiðimálin gerðu
úttekt á helstu sjóbirtingsám lands-
ins. Listinn er ekki tæmandi en gef-
ur þó góða mynd af því sem í boði
Tungufljót
Tungufljót í Skaftártungu er í hópi
eftirsóttustu sjóbirtingssvæða lands-
ins. Árlega veiðast rígvænir sjóbirt-
ingar í Tungufljóti, sem oft eru um
eða yfir 15 pund, og líklega er það
helsta ástæðan fýrir þessum miklu
vinsældum árinnar. Sjóbirtingurinn
gengur seint í ána og stærstu göng-
urnar koma stundum ekki fyrr en
undir lok veiðitímans.
Eldvatnsbotnar
Eldvatnsbotnar eru gott sjóbirt-
ingssvæði í landi Botna í Vestur-
Skaftafellssýslu, u.þ.b. 50 km austan
við Vík í Mýrdal. Þetta eru fornfræg-
ar sjóbirtingsslóðir, þekktar fýrir
væna fiska og rómaðar fyrir náttúru-
fegurð. Áin á upptök sín við svokall-
að Rafstöðvarlón sem er sunnan við
bæinn Botna og rennur í tveimur
kvíslum úr vatninu. Veiði er í báð-
um kvíslunum, einkum þó þeirri
vestari.
Litríkar flugur gefa vel Stundum þurfa
veiðimenn að prufa margar fiugur áður en
sjóbirtingurinn tekur. Litrikar flugur virka
yfirleitt best.
Veiða og sleppa Sumar sjóbirtingsár hafa
„veiða og sieppa“ fyrirkomutagið en þó má
hirða nokkra fiska I þeim flestum.
Steinsmýrarvötn og
Grenlækur II
Steinsmýrarvötn og Grenlækur
II eru skemmtileg blanda sem veiði-
menn geta fengið í einum pakka.
Eru þessi svæði seld saman og eru
fjórar stangir í boði. Svæðið er mjög
skemmtilegt en það samanstendur
af tveimur vötnum og
o lækjum sem renna
■ vötnunum, í þau
á milli og eru þess-
staðir oft mjög gjöf-
ir. Grenlækur II er
nokkurra kílómetra
arlægð og er farið eft-
■ vegslóða að honum
g er hann aðeins fær
eppum eða jeppling-
í Steinsmýrar-
ötnum er staðbund-
bleikja og urriði
samt sjóbirtingi og
jóbleikju. í ágúst
yrjar svo sjóbirting-
rinn að ganga og er
ann að ganga alveg
angt fram að ára-
ótum og tímabilið
rá ágúst og út veiði-
er því yfir-
Tungufljót Er eittvinsælasta sjóbirtingssvæði iandsins. Enda veiðastþar stórir birtingar á
hverju ári.
Ódýrara en laxveiði Þaðerstundum baristum veiðiteyfi ibestu sjóbirtingsánum enda
veiðifleyfið ódýrara en i laxinn. Sumir segja að það sé mun skemmtilegra að veiða sjóbirting
en iax.
leitt mjög gott.
í Grenlæk II er besti tíminn frá
miðjum júlí og fram í miðjan sept-
ember og þeir veiðimenn sem leggja
leið sína þangað geta lent í alveg
ótrúlegri veiði, bæði af mjög vænni
sjóbleikju sem og sjóbirtingi. Leyfi
fást hjá agn.is.
Eldvatn
Góð veiði var í Eldvatni á síð-
asta ári síðsumars og um haustið
og mál manna að fiskur hafi gengið
óvenjusnemma. Stórir fiskar voru í
bland í aflanum, eins og Eldvatn er
þekkt fyrir, allt að 14 punda fiskar.
Leyfi fást hjá agn.is.
Vesturbakki Hólsár
Þangað er hægt að bregða sér
með stuttum fyrirvara og nýta
margir sér einmitt það. Góð skot
voru þarna í sumar og haust, bæði
lax og sjóbirtingur. Þetta er ódýr
og sniðugur kostur. Leyfi fást hjá
agn.is.
Það er svo sannarlega ekki ofsögum sagt að úrvalið af veiðiflugum sé mikið. Við fengum strákana í
Veiðiportinu til að velja fyrir okkur nokkrar góðar sjóbirtingsflugur.
I
Refsarinn „Svarta og hvíta útgáfan af
Bestu sjóbirtingsflugumar
Þegar komið er inn í veiði-
vörubúð og úrvalið af veiðiflug-
um er skoðað er auðvelt að verða
ringlaður. Úrvalið er mjög mikið
og litadýrðin einnig. Við fengum
Tómas og Kristján hjá Veiðiport-
inu til að velja fyrir okkur nokkr-
ar góðar flugur sem verða að vera
með í fluguboxinu þegar veiða á
sjóbirting.
Black ghost „Ótrúlega góð tluga i
urriða og sjóbirting. Til eru ótal afbrigði
afþessari mögnuðu flugu, oftastmeð
hárvæng nú til dags. Virkar enn betur
með keilu og zonker (kanlnuskinn).“ ,
Dentist „Góð fluga I sjóbirting og urriða.
Nú setja menn keilu á fluguna til fá hana
til að sökkva. Þessi útgáfa hefur reynst
mér mjög vel. Hot orange sést mjög vel
þó að flugan sé Iftil. Best fstærðum 6-10
með legglöngum öngli. Þessa flugu er
gottað notaþegar það byrjarað frysta
og vatnið verður tært og kalt"
pessuri uuyu vuu/ ---------------
fyrir svefn. Ég tók saman þá liti sem
reynst höfðu mér best í sjóbirting og
útkoman varð þessi. Þó að flugan sé
nýleg hefur hún heldur betur sannað sig.
Frábær fluga IViðidalsá og Vatnsdalsá.
Höfundur er Tómas Skúlason."