Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 8
50 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 Menning DV Óttar Norðfjörö Það var eins og að vakna upp úr dái þegar ég las tilkynn- ingu um það um síðustu helgi að Magni myndi spila með Á móti sól í Vetrargarðinum í Smára- lind. Þá rann skyndilega upp fýrir mér að ég hef aldrei þolað Magna eða Á móti sól. Þá rann upp fyrir mér að strákurinn sem ég hafði fylgst með síðustu mánuði eins og brjálæðingur og stutt og varið með kjafti og klóm í kaffiteríunni var „Magni úr Á rrióti sól". Það fór hrollur um mig, mér leið líkt og ég hefði afhelgað eitthvað, einhvern helgidóm, eigin líkama, musteri sálar minnar. Ekki bætti úr skák þegar ég sá sýnt þaðan í fréttatímanum. 8000 manns stóðu þarna og fylgdust með Magna og einni leiðinlegustu hljómsveit íslands spila, téðri Á móti sól. Allir allt í einu orðnir „aðdáandi númer eitt". En ekki áður, þá var þetta bara einhver sveitaballahljómsveit eins Sól: dögg, Skítamórall, Land og synir, írafár, í svörtum fötum og hvað þær nú allar heita. En þetta hefur greinilega breyst. Leiðinleg tónlist er orðin skemmtileg vegna þess að „rétti" aðilinn kemur henni frá sér. Máttur sannfæringarinnar er mikill. Hreint út sagt magnað. Með þessu vil ég þó ekki draga úr afreki Magna. Hann stóð sig frábærlega í Rock Star. Hann var frábær í hlutverki „tryllta rokk- arans" á sviðinu. Ég horfði á alla þættina, kaus og dýrkaði þetta. En þetta er tvennt ólíkt, Magni í L.A. og Magni í Vetrargarðinum. Magni í L.A. var keppnismaður, lfkt og Vala Flosa á ólympíuleik- unum, og þess vegna studdi ég hann. Ég vildi að hann kæmist langt, því þá kæmist ísland langt. En það væri jafn fáránlegt að ég byrjaði að æfa stangarstökk vegna afreka Völu hér áður fyrr - eða færi á öll frjálsíþróttamót og öskr- aði eins og sjúkur: „Koma svo, Vala! Yfir helvítis slána!" - og að ég valhoppaöi í Skífuna og keypti mér alla diskana með Á móti sól vegna afreka Magna í Hollywood. Magni í Bandaríkjunum var ekki Magni frá Austurlandi. í Bandaríkjunum var Magni að leika „The Iceman" í þætti sem heitir Rock Star. Þætti sem á ekkert skylt við raunveruleikann. Magni í Vetr- argarðinum var aftur á móti Magni Ásgeirsson, raunveruleg persóna, „Magni úr Á móti sól". Að dýrka þann Magna og elta til að fá eigin- handaráritun, eins og hálfur bær- inn gerir víst núna, væri eins og að hlaupa á eftir Jennifer Aniston °g garga móður: PSÉfefe - ’ „Rachel! Rachel! Málþingum heimspekiJohn StuartMills Leikhúsárið fer á l Spjall og gjörning fullt m r . uríHafnarhúsi Hljómsveitin Ske, með Höskuld Ólafsson innanborðs Stórtónleikarí Þjóðleikhúskjall aranum Siðfræðistofnun og Heimspeki- W Jk jf stofnun standa I ’ fyrir málþingi um * heimspeki Johns laugardaginn 23. ||Jfl september 2006, i "Æít tilefni þess að 200 Kristján Kristjáns árvorufrá sonræðirá fæðingu hans ma|Þln9|nu þann 20. mais.l. Málþingið verður haldið i stofu N- 132 í Öskju og halda alls 10 heimspekingar fyrirlestra um heimspeki Mills, sem óhætt er að fullyrða að hafi haft mikil áhrifá íslenska heimspeki og stjórnmála- umræðu. Það verður líf og fjör um , helgina i Hafnarhúsi, enda stendur k - Pakkhús postul- annaenn yfir. Á ' *l» föstudaginn kl. 12.15 verður stutt hádegis- leiðsögn um sýninguna. Á laugardaginn si9rlður Björg verður Magnús Sigurðardóttir Árnason með gjörning kl. 16ogá sunnudaginn kl. 15 verða myndlistarmennirnir Sigríður Björg Sigurðardóttir og Davið Örn Halldórsson með leiðsögn og spjall. um helgina. Á föstudaginn verður Hvít kanína frumsýnt á Litla sviði Borgarleik- hússins, en það er i höndum Nemendaleikhúss Listaháskólans. Á laugardaginn verður Mein Kampfí leikstjórn Hafliða Arngrímssonar frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Sama kvöld verður Karíus og Baktus frumsýnt fyrir norðan, með nýrri tónlist sem hljómsveitin 200.000 naglbitar annast. daginn 23. stórtónleik- arí Þjóðleikhúskjallaranum þarsem hljómsveitirnar Langi Seli og Skuggarnir, Ske og Jeff Who? munu troða upp. Húsið verður opnað kl. 23 og miðaverð er 1.000 krónur. Langi Seli og Skuggarnir stiga á svið kl 23.30. Að loknum tónleikum hyggjast meðlimir sveitanna þriggja þeyta skifum fram á rauðanótt. Hildur Bjarna- dóttiríi8 í gær opnaði Hildur Bjarnadóttir sýning- una Bakgrunnur i i8 gallerii. Þetta er fyrsta einkasýning Hildar í galleriinu en áður hefur hún haldið fjölmargar sýningar bæði hér á islandi, víðs vegar um Evrópu og í Bandarikj- unum þar sem hún var búsett um nokkurt skeið. Þess má geta að Hildur var nýlega tilnefnd til islensku sjónlistaverðlaunanna. Tværsýningarí Gerðubergi Sýningog máiþing í Þjóðarbókhlöðu Alltsem Nýlóá sýnt 528 'nn' Ein Ijósmynda Ara Gerðu- bergi. Ljósmyndasýning Ara Sigvaldssonar Úr launsátri verður opnuð kl. 16 á neðri hæðinni i tilefni af220 ára afmæli Reykja- víkurborgar. Þá verður sýningin Flóðhestar og framakonur - Afrískir minjagripir á Íslandi opnuð, en hún er i samstarfi við Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur mann- fræðing. Safneign Nýlista- safnsins verður til i á sýnis i heild sinni i húsakynnum þess j að Laugavegi 26 frá frá 24. sept- ember til 1. október. Opið verður daglega frá 13-17 og munu valdir góðkunn- ingjar safnsins stýra óhefðbund- inni leiðsögn kl. 14 daglega. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja kynna sérstefnur og strauma i samtimalist frá árunum 1978- 2005, innlenda sem erlenda. Á föstudaginn opnar sýning i Þjóðarbókhlöð- unni til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili, en það eru ISOár liðin frá fæðingu hans. Sýningin verður opnuð kl. 16.30 ogstendur til 31. desember. Á laugardaginn verður málþing haldið sem er tileinkað Jónasi og hefstþaðkl. 13.00. Terry Gunnell heldur erindi á laugardeginum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.