Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Side 2
36 . FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Sport PV
Ur
oskar@dv.is
búningsldefanum
•Teitur Þórðarson,
þjálfari KR, hefur í
hyggju að hvíla alla þá
leikmenn sem eru á
hættusvæði vegna gulra
spjalda fyrir bikarúr-
slitaleikinn gegn Keflavík um næstu
helgi í leiknum gegn Val á laugardag-
inn. Meðal þeirra sem eru
— á hættusvæði og munu
væntanlega hvíla eru lyk-
1 ilmenn á borð við Gunn-
' laug Jónsson og Bjam-
ólf Lárusson. Króatíski
vamarmaðurinn Dali-
bor Pauletic, sem er reyndar meidd-
ur, er einnig með þrjú gul spjöld auk
bakvarðanna Sigþórs Júlíussonar og
Vigfúsar Amars Jósepssonar...
•Júlíus Jónasson, fyrrver-
andi þjálfari ÍR, verður að
öllum líkindum ráðinn
þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins í handbolta í
næstu viku. Júlíus var að-
■raj stoðarþjálfari
hjá ÍR síðasta
I vetur með Finnboga Grétari
Pf-.T S Sigurbjörnssyni en Finn-
bogi var einmitt aðstoðar-
■“ maður Júlíusar árin á und-
an. Finnbogi mun aðstoða
Júlíus með landsliðið en ekki er vit-
að hvað fráfarandi þjálfari landsliðs-
ins Stefán Amarson, tekur sér fyrir
hendur. IJann er nú íþróttafulltrúi hjá
KR en hefur lýst því yfir að hann vilji
gjaman halda áfram að þjálfa...
♦Þjálfarastaðan hjá Þrótti
er laus eftir að Atli Eð-
valdsson hætti sem
þjálfari liðsins nú fyrir
skömmu þar sem mark-
mið liðsins á tímabilinu
náðist ekki. Þróttarar hafa
ekki beðið boðanna og em þegar fam-
ir að leita að nýjum
þjálfara enda stefnan
á hverju ári að komast
upp. Hermt er að Ól-
afur Þórðarson hafi
afþakkað boð þeirra og
að forráðamenn liðsins
hafi þegar snúið sér að Sigurði Jóns-
syni, fyrrverandi þjálfara Grindavíkur,
Víldngs og FH...
•Ólafur Kristjánsson,
þjálfari Breiðabliks, ku
vera á nálum fyrir loka-
umferðina í Lands-
bankadeildinni. Breiða-
blik er ekki enn sloppið
við fall og þarf nauðsyn-
lega á sigri að halda gegn Keflvíking-
um í lokaleiknum. Ólafur féll í 1. deild
með Frömumm á síðasta tímabili og
vill ógjarnan endurtaka leikinn nú.
Það er enda ekki gott að hafa tvö föll á
fýrstu tveimur árunum á þjálfaraferl-
inum á ferilskránni... —
Knattspyrnukappinn Guðmundur Benediktsson ætlar að spila eitt ár til viðbótar með
Valsmönnum í Landsbankadeildinni. Hann skrifaði undir eins árs samning við félagið
í gær.
Held áfram
meðan
skrokkurínn
Guðmundur Benediktsson hefur leikið lyk-
ilhlutverk í uppgangi Valsmanna í Lands-
bankadeildinni undanfarin tvö ár. Þótt
mörkin hafi látið á sér standa hefur
framlag hans verið liðinu ómetanlegt.
Hann skrifaði undir nýjan eins árs samn-
ing við félagið í gær og ætlar að vera með í
áframhaldandi uppbyggingu Valsliðsins.
„Ég held áfram meðan skrokk- mætti gera bet-
urinn er í lagi," sagði Guðmundur
Benediktsson í samtali við DV í gær
en hann skrifaði undir nýjan eins
árs samning við Valsmenn í gær.
Félagið á siglingu
„Ég sé ekki nokkra ástæðu til
að leggja skóna á hilluna á með-
an ég hef enn gaman af þessu, geng
þokkalega heill til heilsu og fé-
lagið er á slíkri siglingu sem raun
ber vitni. Valur hefur sýnt mikinn
metnað á undanförnum árum og
það er í raun og veru bara heiður
að fá að taka þátt í áframhaldandi
uppbyggingu liðsins. Stefnan er
auðvitað sett á að nálgast FH enn
meir og vonandi gengur það eftir á
næsta ári," sagði Guðmundur.
Vill alltaf spila betur'
Aðspurður sagðist Guðmund-
ur vera þokkalega sáttur við eigin
spilamennsku í sumar þótt alltaf
„Ég sé ekki nokkra
ástæðu til að leggja
skóna á hilluna á með-
an ég hefenn gaman af
þessu"
ur. „Þetta hefur
gengið upp og
niður en það
sem er gleði-
legt er að ég
hef verið heill
heilsu. Auð-
vitað vill
maður allt-
af spila bet-
ur en þegar á
heildina er lit-
ið er égþokka-
lega sáttur við
tímabilið."
Þónokkuð
hefur verið tal-
að um marka-
leysi Guð-
mundarísumar
en hann sagð-
ist ekki kippa
sér mikið upp við
það. „Égmyndivilja
skora fleiri mörk,
það er alveg ljóst en
síðustu ár hefur ekki
beinlínis verið mitt
starf að skora mörk. Ég
Willum Þór Þórsson
Þjálfari Vals segir nærveru
Guðmundar í hóp og
reynsiu vera
ómetanlega. ,
Guömundur Benediktsson Spilar eitt ár Iviðbót með Valsmönnum og segirþað heiður að
fá að taka þáttl áframhaldandni uppbyggingu félagsins. DV-mynd Hörður
hef dregið mig aðeins aftar á völl-
inn og verið meira í því að leggja
upp á samherja mína. Á meðan fé-
lagar mínir skora þá hef ég engar
áhyggjur," sagði Guðmundur sem
þaggaði þó niðri í gagnrýnisrödd-
um með sínu fyrsta marki á tíma-
bilinu gegn Keflavík í síðustu
umferð.
Mikilvægur innan
vallar sem utan
Willum Þór Þórsson, þjálf-
ari Valsmanna, var afskaplega kát-
ur þegar DV rgeddi við hann í gær
eftir að Guðmundur hafði skuld-
bundið sig til að spila með liðinu
næsta árið.
„Hann er gífurlega mikilvæg-
ur fyrir liðið bæði innan vallar og
utan. Hann hefur hæfileika sem
eru hreinlega elcki á hverju strái í ís-
lenskri knattspyrnu, sjaldgæfa eig-
inleika sem gefa okkur fleiri mögu-
leika sóknarlega heldur en öðrum
liðum. Síðan má ekki gleyma allri
reynslunni og nærveru hans í hóp.
Það tvennt er ómetanlegt," sagði
Willum Þór.
oskar@dv.is
Draumalið Eggerts Magnússonar
Eggert Magnússon, formaður Knatt-
spyrnusambands íslands, er forfallinn
fótboltafíkill eins og haim segir sjálfur.
Hann situr í framkvæmdanefnd Knatt-
spymusambands Evrópu og ferðast starfs
síns vegna mikið um álfuna til að horfa á
leiki. DV fékk Eggert tíl að velja heimslið-
ið í dag, ellefu bestu leikmenn í lieimi í
eittogsamaliðið.
„Ég vil spila sóknarbolta og tel að
þessi vöm haldi öllu. Liðið myndi í það
minnsta vinna Landsbankadeildina,"
sagðiEggertoghló. ,
Markvörðun
Gianlugi Buffon, Juventus og Italíu
„Hann er langbesti markvörður I heimi.
Það stóð öllum stuggur afhonum í HM
þar sem hann var eins og klettur."
Hægri bakvörður.
Gianluca Zambrotta, Barcelona og
Italíu
„Hann byrjaði framar á vellinum en
hefurhraða og erjafnframt góður
varnarmaður. Hann er fæddur I þessa
stððu."
Vinstri bakvörður.
Ashley Cole, Chelsea og Englandi
„Hann er góður varnarmaöur en um
leið er hann hættulegur þegar hann
sækirhrattfram."
Miðvörður:
Fabio Cannavaro, Real Madrid og
Itallu
„Hann var aðminu mati maður HM og
var ótrúlegur I mörgum leikjum. Hann
var klettur I vörninni. Cannavaro er
ekkistóren gnæfír yfir stærstu menn
þegar áþarfað halda. Hann er fyrirliði
liðsins."
Miðvörður.
William Gallas, Arsenalog
Frakklandi
„Hann erstór, sterkurog fljótur. Hann
hefuralltsem góðan miðvörð á að
prýða."
Vamarmiðjumaður
AndreaPirlo
„Hann var frábær á HM. Hann er með
eitraðar sendingar og mjög fímur með
boltann."
Hægri miðjumaður
Kaka, AC Milan og Brailíu
„Hann er frábær leikmaður. Hann er
hugsandi, með óviðjafnanlega
knattmeðferð og frábæra skottækni."
Vinstri miðjumaður
Ronaldinho, Barcelona og Brasiliu
„Hann spilaði ekki vel á HM en ég held
aðþaðhafí ekki verið honumað
kenna. Brosið segir alltfyrir utan að við
erum að tala um besta knattspyrnu-
mannlheimi."
Hægri framherji
Steven Gerrard, Liverpool og
Englandi
„Hann hefuralltsem frábær
knattspyrnumaður á að hafa en á enn
eftiraðsýnasittallra besta. Hann á
enn inni að vera stöðugur í 90 mlnútur
I fleiri leikjum yfir tlmabilið."
Framherji
Thierry Henry, Arsenal og
Frakklandi
„Hann er aðminu mati besti framherji I
heimi.'Hann ersá fljótasti, markaskor-
ari afguðs náð, hann hefurþetta aljt."
Vinstri framherji
Ryan Giggs, Manchester United og
Wales
„Hann er frábær knattspymumaður.
Hann hefur verið að sýna sittallra besta
á þessu tlmabili. Hann er kominn I sitt
gamla form. Ég hugsaði þetta mikið og
liður bestmeö hann I þessari stöðu."
ÞjáHari:
Marcelo Lippi, fyrrverandi þjálfari
ítalska landstiðsins ogJuventus
„Hann byggði upp nýtt landslið af
mönnum sem margirhöföu ekki trú á.
Frábærþjálfari og sorglegt að hann hafí
lentlþessu leiðindamáli á ftalíu. Hann
hefursýnt og sannað hvað hann er
frábær. Hann ermikillhugsuðurþvl það
er ekki nógað öskra I nútlmafótboltaf