Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Qupperneq 11
DV Sport
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 45
Átta liða úrvalsdeild karla í handbolta hefst í vikunni og fyrirfram er hægt að sjá fyrir sér mörg félög blanda
sér af alvöru í baráttuna um titilinn. Það verður líka spennandi að sjá hvernig nýtt fyrirkomulag fer í hand-
boltaáhugamenn.
Mörg meistaraefni
Hin nýja úrvalsdeild karla í handbolta fer af stað í næstu viku en
aðeins átta félög eiga lið meðal þeirra bestu og fá 21 leik til þess
að útkljá hvaða lið verður íslandsmeistari í handbolta árið 2007.
Framarar unnu í fyrra, en það var í fyrsta sinn síðan 1990 sem
ekki var leikið um íslandsmeistaratitilinn í úrslitakeppni og Safa-
mýrarpiltar eru til alls líklegir í upphafi nýrrar leiktíðar. Valsmenn
stefna augljóslega á sinn fyrsta titil í 9 ár, Stjörnumenn hafa styrkt
sig á „veika kantinum" og það má aldrei afskrifa Hauka sem eru
alltaf sterkir. Eins verður fróðlegt að fýlgjast með hver hinna lið-
anna koma til með að bíta frá sér en nýja fyrirkomulagið ætti að
bjóða upp á marga jafna og spennandi leiki.
Fram
Haukar
Framarar komu flestum á óvart í
fyrravetur með því að verða íslands-
meistarar í fyrsta sirm síðan 1972 en
það er ljóst að starfsumhverfi Guð-
mundar Guðmundssonar verður allt
annað í vetur. Meistaravömin er alltaf
erfið en það er þó ljóst á öllu að Safa-
mýrarliðið ætlar sér að halda sér á
toppnum enda hafa menn verið dug-
legir að safiia leikmönnum. Framliðið
missti vamartröllið Sverre lakobsson
og markvörðinn Egidijus Petkevicius
en hafa náð í öfluga leikmenn í þeirra
stað. Þar munar mest um unglinga-
landsliðsmennina Björgvin Pál Gúst-
afsson (markvörður úr ÍBV), Andra
Berg Haraldsson (leikstjómanda úr
FH) og Einar Inga Hrafosson (línu-
mann úr Aftureldingu).
Spá DV Sport: 2. sœti
Haukar héldu uppteknum hætti
og misstu enn fleiri leikmenn úr gull-
aldarliði sínu sem vann titilinn þrjú ár
í röð ffá 2003 tii 2005. Að þessu sinni
missir liðið landsliðsmarkvörðinn
Birki ívar Guðmundsson til Þýska-
lands og fyrrverandi fyrirliða sinn
Halldór Ingólfsson til Noregs. Báðir
em þetta miklir reynsluboltar og enn
á ný þurfa Haukamenn að treysta á
ungu strákana sína til þess að bera hit-
ann og þungann af leik liðsins næsta
vetur. Haukamir vom í 2. sæti í bæði
deild og bikar á síðasta vetri og unnu
að lokum deildarbikarinn. Frábær ár-
angur en samt vonbrigði fyrir metn-
aðarfulla Haukamenn sem em orðn-
ir vanir góðu. Þeir þurfa ömgglega að
lækka kröfumar talsvert í vetur.
Spá DV Sport: 4. sœti
Erfiður vetur? Guðmundur Guömundsson,
þjálfari Fram, gerði frábæra hluti með liðið
síðasta vetur. DV-mynd Vilhelm
Valur
Valsmenn hafa ekki orðið íslands-
meistarar á þessari öld (unnu síð-
ast 1998) og það er ljóst á öllu að
Valsmenn hafa verið að safna sam-
an íslandsmeistaraliði. Markús Máni
Michaelsson er kominn heim á ný
og liðið er komið með einn efiiileg-
asta handboltamann landsins, Emi
Hrafn Amarson, í skyttustöðuna hin-
um megin. Valsmenn hafa fyrir unga
og góða leikmenn í flestum öðmm
stöðum og það er ekkert sem segir
að þeir geti ekki farið alla leið í vetur.
Valsmenn em heldur ekki að tjalda til
einnar nætur því þessi leikmannahóp-
ur gæti gefið félaginu margar gleði-
stundir á næsm árum takist Oskari
Bjama Óskarssyni vel upp með liðið.
DV Sport telur að Valsliðið hafi allt til
þess að Islandsmeistaratitillinn rati á
ný upp á Hlíðarenda.
Spá DVSport: 1. sœti
Fyrsti titillinn í hús Patrekur Jóhannesson,
fyrirliði Stjörnunnar, með bikarinn fyrir
sigurinn Imeistarakeppninni.
DV-mynd Vilhelm
Fylkir
Fylkismenn vom spútniklið síð-
asta vetrar og Sigurður Valur Sveins-
son gerði flotta hluti með liðið sem
endaði í 4. sæti og fór alla leið í úrslita-
leik deildabikarsins. Fylkismeim áttu
leikmann ársins í Heimi Emi Áma-
syni, sem bar uppi vamar- og sóknar-
leik liðsins. Heimir er horfinn á braut
sem og markahæsti leikmaður liðsins
í fyrra Arnar Jón Agnarsson og í harðn-
andi samkeppni í minni deild gæm
Fylkismenn lent í erfiðleikum með að
m ® m B i
kii* 'kL
Markús mættur Valsmenn verða griðarlega sterkirmeð Markús Mána Michaetsson l
fararbroddi nýrra ieikmanna iiðsins. DV-mynd GVA
fylgja eftir árangri síðasta vetrar. Brott-
hvarf Heimis gæti verið það erfiðasta
til að yfirstíga enda frábær leikmaður
sem hentaði leikstíl liðsins einstaklega
vel.
Spá DV Sport: 8. sceti
Stjarnan
Stjaman fagnaði sínum fyrsta titli
í 17 ár þegar liðið vann Hauka í bikar-
úrslitaleiknum og ekkert lið lék betur
um mitt mót. Slæm byrjun og meiðsla-
hrjáður endir sá til þess að Garðbæing-
ar náðu ekki nema 5. sætinu. Þrír af
bestu leikmönnum deildarinnar spila
með Stjömunni, markvörðurinn Rol-
and Valur Eradze, Patrekur Jóhannes-
son og stórslcyttan Tite Kalandaze og
reynist nýi erlendi leikmaðurinn, Vol-
odymyr Kysil, vel þá er aldrei að vita
nema að.þessir fjórir sterku leikmenn
verði hreinlega of stór biti fyrir and-
stæðinga að kyngja. Meiðsli og fjarvera
hjá þeim myndu að sama skapi spilla
mikið fyrir og eins og staðan er í dag em
einhverjir lykilmenn liðsins tæpir og
það gæti reynst Stjömumönnum dýrt
komist þeir ekki sem fyrst á ferðina.
Spá DV Sport: 3. sœti
Akureyri
Bæjarslagur ICA og Þórs heyrir nú
sögunni til og þess í stað tefla Akur-
eyringar fram sameiginlegu liði í fyrsta
sinn í mörg ár. KA-menn hafa ekld ver-
ið neðar í mörg ár (6. sæti í fyrra) og
Þórsliðið hafði gefið eftir í kjölfar at-
hyglisverðs árangurs tfmabilin á und-
an. Nú þurfa erkiíjendumir að standa
saman og mestu gæti skipt hvemig
gengur að fá Alaireyringa til að fjöl-
menna á bak við nýja liðið lflct og þeir
hafa gert á bak við KA og Þór undan-
farin ár. Rúnar Sigtryggsson og Sævar
Ámason þekkja vel til sinna liða, Þórs
og KA, og ættu í sameiningu að geta
búið til sterkt lið sem verðttr til alls lflc-
legt haldi heimavöllurinn áfram velli
en stuðningur við norðanliðið hefur
oft verið þeirra áttundi maður inni á
vellinum.
Spá DV Sport: 5. sceti
HK
Litháinn Miglius Astrauskas er á
sínu öðm ári með HK og að þessu sinni
hefur hann fengið Gunnar Magnús-
son sér til aðstoðar en Gunnar hefur
þjálfað lið Vfldnga undanfarin tímabil.
HK-liðið er spumingamerki, því lið-
ið er nokkuð breytt frá síðasta tímabili
og hefur fengið til sín mikið af ungum
og lofandi strákum sem hefur kannski
vantað aðeins upp á að sanna sig sem
toppleikmenn í deildinni. Sigurgeir
Ámi Ægisson er kominn frá FH, Ragn-
ar Snær Njálsson frá KA og Gunnar tók
síðan með sér homamennina Áma
Bjöm Þórarinsson og Ragnar Hjalte-
sted úr Vfldnni. Þá munar miklu um
að hinn frábæri markvörður Egidijus
Petkevicius mun standa í markinu.
Spá DV Sport: 6. sceti
ÍR
ÍR-ingar mæta nú í fyrsta sinn í sex
ár án liðsinnis Júlíusar Jónassonar
sem hefur komið að liðinu sem spil-
andi þjálfari, þjálfari og aðstoðarþjálf-
ari undanfarin fimm ti'mabil. ÍR-ingar
hafa líkt og Haukar misst mikið af leik-
mönnum síðustu árin og hafa einn-
ig farið þá leið að treysta á yngri leik-
menn liðsins. Unglingastarf ÍR hefiir
verið með miklum blóma og nú er Er-
lendur ísfeld tekinn við sem þjálfari
liðsins en hann hefur verið einn af að-
almönnunum í unglingastarfi Breið-
hyltinga síðasta áratuginn. ÍR-liðið á
eftir að eiga erfitt og það hjálpar ekki
að liðið er brothætt og eins og deild-
in er í dag em engir auðveldir lefldr
og það gæti orðið erfitt í Breiðholtinu
byrji liðið illa.
SpáDV Sport: 7. sceti
ooj@dv.is
BOLTINN I BEINNI
VEISLUSALUR
afmæli, steggir / gæsir og einkasamkvæi
POOL & SNOKERr
Jafnaseli og Hverfisgötu