Framsóknarblaðið - 30.03.1949, Síða 4
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
4
Úr bænum
Innanhússmót.
Innanhússmót í. B. V. fer fram
þ. 3. apríl n.k. eins og óður hef-
ur verið sagt. Keppt verður í'
langstökki ón atr., hástökki án
atr., þrístökki án atr. og hástökki
með atrennu. Þátttakendur gefi
sig fram við Símon Waagfjörð
formann frjálsíþróttaráðs eða E.
Mikson, þjálfara í. B. V. Þátt-
tökutilkynning verður að berast
fyrir 1. apríl n.k.
Vorfuglarnir.
Fyrstu farfuglarnir, forboðar
vorsins, eru komnir.
Tjaldurinn mun hafa sésf hér
16—17. s.l.
Lóan sást hér á s.l. sunnudags-
morgni. Koma þessara fugla er í
fyrra lagi. Gömlu mennirnir
mundu hafa talið það boða kalt
vor. En þrátt fyrir það er koma
þeirra fyrirboði þess að sumarið
er í nánd.
Skipafréttir.
„Ófeigur" seldi nýlega báta-
fisk héðan í Fleetwood fyrir £
16500.0.0.
„Helgi Helgason" seldi ísvar-
inn bátafisk héðan í Fleetwood
s.l. Föstudag fyrir £ 9415.0.0.
„Arnarnes hefir losað hér salt
til Vinnslustöðvarinnar undan-
farna daga.
„Rifsnes" fór héðan áleiðis til
Bretlands s.l. sunnudagsnótt með
bátafisk.
„Helgi" fermir hér nú báta-
fisk fyrir brezkan markað.
„Helgi Helgason" er væntan-
legur hingað í dag með kolafarm
frá Bretlandi.
„Herðubreið" kom hingað
með vörur ! gær.
Tannlækningastofa.
Tannlækningastofa hefir verið
opnuð í húsi Helga Benediktsson-
ar við Strandveg.
Mjólkurskorturinn
í bænum hefir nú lagast við
það að mjólkurbúð Helga Bene-
diktssonar hefir nýlega tekist að
afla sér nokkurs magns af mjólk-
urbrúsum til að flytja mjólk í frá
Reykjavík, en á mjólkurbrúsum
til þeirra hluta hefir undanfarið
verið tilfinnanlegur skortur.
Að gefnu tilefni.
Yfirskattanefnd Vestmanna-
eyja skipa Sigfús Scheving (vara-
m. hans Halldór Guðjónsson
skólastj.) og Sveinn Guðmunds-
son, (varam. hans Gunnar Hlíðar
dýralæknir). Formaður nefndar-
innar er Bæjarfógetinn, sem er
sjálfkjöri nn.
(Skv. frétt frá bæjarfógeta)
Falsaðar heimildir
og fávizka
Framhald i 4. síðu.
þeir voru búnir oð fórna blóði
sínu ó vígvellinum."
Hræddur er ég um, að hinn
ráðvandi íslenzkufræðingur Eyjg-
blaðsins hefði þurft að háríoga
notkunina á sögninni að fórna
hér, ef hún hefði verið þannig
sett fram í mínu máli.
Þá hefir ritstjórinn reynt að
gera sér mat úr brenglaðri setn-
ingu, sem slæddist inn í grein
hjá mér fyrir alllöngu1 síðan.
Miklir blessaðir vesalingar
geta sumir menn orðið í illkvittni
sinni og fræðahroka.
Lítið ó verður stundum lítils-
virði í augum slíkra manna sem
ritstjóra Eyjblaðsins, ef þeir telja
sér eða málstað sínum hag í að
sleppa því. Þeir eiginleikar geta
verið hallkvæmir í viðskiptalíf-
inu. Þá getur t. d. ólæsileg bók
orðið læsileg, óhreinn (klám-
kámugur) rithöfundur orðið
hreinn, ófrjór höfundur frjór o.-s.
f rv.
Jú, — það getur stundum ver-
ið arðvænlegt að sleppa ó-inu.
Og í stjórnmálum verður ó-
frelsi að frelsi, og þannig mætti
halda áfram.
Ég sé, að broddar kommúnista
flokksins hér skipa ritnefnd Eyja-
blaðsins, og ritstjórinn er þjónn
þeirra. Ég leyfi mér að óska
þroddunum til hamingju með
sannleiksást þjónsins og rit-
mennsku. Enginn skyldi efa það,
að hún eykur fylgið og verður
hugsjónunum til framdráttar.
Þess sjást líka nokkur merki.
Ekki er það ógæfusamlegt, allt
saman!
Þ. Þ. V.
Sjúkrabifreið
Rauðakrossdeild Vestmanna-
eyjahef'ir um nokkurt árabil safn-
að fé til kaupa á sjúkrabíl til
starfrækslu1 hér í Eyjum.
Á síðasta aðalfundi deildarinn
ar nú fyrir skömmu var ákveðið
að endurnýja umsóknir deildar-
innar um innflutnings og gjald-
eyrisleyfi. Bæjarbúar brugðust á
sínum tíma vel við þegar til
þeirra var leitað með fjáröflun í
þessu skyni fyrir tveimur árum,
en vegna aukinnar dýrtíðar verð-
ur vart komist hjá því að leita til
þeirra aftur, ef sjúkrabíllinn tæst
eins og vonir standa til.
Fram hjá því verður hinsveg-
ar ekki gengið, að það torveldar
öflun sjúkrabíls til Eyja, að á und
anförnum árum hafa verið leyfð-
ir hingað fólksflutningabílar
bæði til þess að aka yfirsetukon-
um og læknum, en bílar þessir
hafa ekki staðnæmst í plássinu,
og úti á landi hafa sést bílar
merktir V sem sögur ganga um
að inn hafi verið fluttir í sam-
bandi við heilbrigðismál Eyjanna.
Óneitanlega væri ánægjulegt,
ef þeir, sem á undanförnum ár-
um hafa bætt hag sinn með inn-
flutningi bíla til þarfa heilþrigðis
mála Eyjanna, án þess að úr
slíkri notkun hafi orðið, létu
Rauðakrossdeildinni í té verulega
fjármuni til kaupa sjúkrabíls, og
væri ekki óeðlilegt að stjórn
rauðakrossdeildarinnar hér bæri
slík tilmæli fram við viðkomandi
menn, áður en leitað verður til al
mennings á ný.
H. B.
Fiskveiðarnar.
Framhald af í. síðu.
heppilegasta form fyrir útgerð
þessari.
Flotvarpan danska vekur mikla
athygli og er talin stærsta fisk-
veiðauppgötvunin síðustu 200
árin.
Flotvarpan kostar 3500 dansk-
ar krónur, en uppfyndingamaður
inn Robert Larsen telur hana
jafn fengsæla og herpinót sem
kostar 65000 krónur.
Erlendar fiskiveiðaþjóðir eru
nú sem óðast að kynna sér upp-
götvun þessa og tryggja sér af-
notarétt af uppfyndingunni.
Islenzkir útgerðarmenn eru
á meðal þeirra, sem spurst hafa
fyrir ym vörpuna.
H. B.
/,Milli fjalls og fjöru"
Islenzka talmyndin „Milli
fjalls og fjöru", eftir Loft Ijós-
myndara var sýnd hér í Sam-
komu'húsinu um s.l. helgi við
mikla aðsókn.
Myndin er fyrsta talmynd á ís-
lenzku sem gerð hefir verið. Efn-
ið er sögulegar heimildir. Þrátt
fyrir ýmsa ágalla á myndinni, er
þessi fyrsta tilraun lofsverð og
þakkarvert brautryðjendastarf.
Sá óvenjulegi háttur var á
hafður við sölu aðgöngumiða, að
sætin voru ótölusett, og er það
síst til ánægjuauka fyrir gestina.
Troðningur var mjög mikill við
dyrnar, sem von var, þar sem
fólkið tróðst út og inn hvað á
móti öðru. Einn lögregluþjónn
var þarna, og var hann með dyra-
verði að taka á móti aðgöngumið
um ! innri forstofu, og mun mörg
um hafa þótt eðlilegra, að hann
hefði verið fyrir framan yið yti i
dyr, og haldið þar uppi einhveiju
skipulagi, þv! að ekki ætti það að
vera „Bióinu" um megn að ann-
ast sjálft dyravörslu.
Svona fyrirkomulag er til van-
virðu, og má ekki koma fyrir
aftur. Og það er hægt að fyrir-
byggja það me5|því einu að selja
aðeins tölusetta aðgöngumðia.
Samvinnuskólmft 30 óra
Hinn 1 1. marz s. I., var 30 ára
starfsafmælis Samvinnuskólans
minnst með veglegu hófi að
Hótel Borg í Reykjavík.
Eldri og yngri nemendur skól-
ans fluttu þarna ræður og kveðj-
ur og skólastjórinn Jóns Jónsson
og kona hans frú Guðrún Stefáns
dóttir voru óspart hyllt í hófi
þessu.
Nemendur Samvinnuskólans
tilkynntu þarna sjóðsstofnun til
styrktar efnilegum Samvinnu-
skólanemendum., Sjóður þessi
heitir Menningarsjóður Jónasar
Jónssonar.
I undirbúningi er útgáfa vand-
aðs afmælisrits Samvinnuskól-
ans.
H. B.
....—
Furðulegir verzlunarhættir.
Ríkisvaldið rekur margháttaða
verzlun og hefir einkasölu ! surn-
um greinum, svo sém tóbaks-
einkasölu og áfengisverzlun-
Höfuðstöðvar þessara einkasalo
er í Reykjavík. Af þessu virðasf
sumar þeirra draga þá furðulega
ályktun, að þeim beri að selja
varning sinn öðru verði til Reyb'
víkinga en annarra lcndsmanna-
Tóbakseinkasalan t. d. selur to-
baksvörur öðru verði til Reykvík'
inga en annarra landsmanna-
Sígarettupakkinn kostar þar ^
—15 aurum minna en hér. Þett°
ríkisfyrirtæki lætur okkur bor9a
kostnaðinn við flutning vörunnar
hingað í stað þess að jafna verð-
inu og selja þegnunum vörur sin-
ar sama verði á öllu landinU-
Þessir verzlunarhættir eru ósvífn'
ir og óþolandi. Ríkiseinkasala 0
að gera öllum þegnum þjóðfe
lagsins jafnhátt undir höfði. Þétf
heimkynni ríkisfyrirtækis sé 1
Reykjavík réttlætir það er\Q°n
veginn það sjónarmið, að a®r,r
landsmenn verði að greiða ser
stakan skatt til þess að fá ein^a
söluvöruna flutta til annarra
verzlunarstaða. Þetta ástand ^
ir viðgengist í möi
landsmenn ekki að
ur. Fáist einkasölu
til þess að gera öllum þegnun11
þjóðfélagsins jafn hátt und^
höfði, verður Alþingi oð fV1"^1"
skipa þeim það. Það er skyl
þingmanna utan af landi, að S)
til þess að þetta óþolandi misrét
verði tafarlaust leiðrétt.
Dagur*
g ár og asttU
þola þoð leag
■ ríkisins ek 1