Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2006, Side 21
DV
Helgin
FÖSTUDAGUR 22. DESÉMBER 2006
> m^Va r>f
21
„Það er ekkert sem útskýrir þetta en ég veit
að hann Guðmundur hefur ekki verið að beita
nokkurn mann ofbeldi
í alvöru hvar?" spyr þá Guðmundur
aftur og setur fleiri á diskinn sinn.
„Það er blaðamaður við hliðina á þér
en íyrst þú spyrð þá svara ég hrein-
skilnislega, ég áttaði mig svo seint á
því að okkar voru búnar að ég fékk
lánaðar úr Byrginu," segir Helga og
brosir kankvíslega.
Ást við fyrstu sýn
Þau Helga og Guðmundur kynnt-
ust árið 1984. Hún var þá 16 ára en
hann 26 ára og átti fyrir þrjú börn.
Þótt aldursmunurinn hafi verið mik-
ill lýsir Helga kynnum sínum við
hann sem ást við fyrstu sín. „Ég veit
að þetta hljómar hallærislega en
þannig var það, það var bara eitt-
hvað sem gekk svo fullkomlega upp
á milli okkar tveggja," segir Helga
dreymin á svip.
„Vitanlega höfum við átt okkar
hæðir og lægðir eins og annað fólk
en allt hefur gengið afar vel eftir að
hann Guðmundur hætti að drekka,"
segir Helga og lítur ástúðlega til
manns síns.
Helga er lagleg kona, hún átti 38
ára afmæli daginn áður en þátturinn
umdeildi fór í loftið. Þrátt fyrir að
hún hafi borið sig vel í byrjun sam-
tals er augljóst að umræðan hefur
tekið á hana. „Maður má samt ekki
vera að velta sér upp úr þessu, það
er víst nóg annað að gera svona rétt
fyrir jól," segir hún en bætir við að
henni hafl fundist erfitt að fangarnir
sem hafa fengið að afplána í Byrginu
hafi verið færðir annað eftir þáttinn.
„Það versta í þessu er samt sem
áður að kona sem hefur búið í Byrg-
inu í tvö ár átti að fá dóttur sína 20.
desember. Hún hafði ekki haft hana
í tvö ár og þetta átti að verða mikill
gleðidagur. Stelpan hefur komið í
heimsókn til okkar og liðið afskap-
lega vel auk þess sem hún og Re-
bekka okkar eru miklar vinkonur.
Það var búið að skrá hana í skólann
sem Rebekka er í og þetta leit allt svo
vel út. Eftir þáttirm var samt hætt við
allt," segir Helga og útskýrir ásamt
Guðmundi að þær mæðgur búi nú
hjá ættingjum óvissar um hvaða
skóla barnið eigi að fara í, sem og allt
annað sem tengist framtíðinni.
Netið er Dýrið
Húsbændur, börn, hjú og gest-
ir koma sér fyrir á skrifstofu Guð-
mundar eftir matirm. Skrifstofan er
eini staðurinn í húsinu þar sem öllu
ægir saman og útskýrir Guðmund-
ur að söfnunarárátta sín hafl orðið
þess valdandi að Helga hafi þurft að
koma honum og dýrgripunum fyrir
þarna inni. Hún hafi þó bætt honum
það upp með því að koma fyrir litlu
húsi við hlið íbúðarhússins þang-
að sem hann geti farið og hugsað og
farið í sánu.
Einn af fáum hefðbundnum hlut-
um inni á skrifstofunni er tölvan,
á hana lítur Guðmundur og segir:
„Netið er það sem Guð kallar Dýrið
í Biblíunni. Með því er hægt að vekja
upp svo mikla sundrungu eins og nú
er verið að reyna gera við fjölskyldu
mína og Byrgið."
Þegar blaðamaður spyr hvort
hann viti ástæðuna segist hann ekki
getað ímyndað sér hana. Hann viti
þó vel að í meðferðarstarfi komi allt-
af upp viss afbrýðisemi milli skjól-
stæðinga sem telja að betur sé gert
við aðra en sig. Helga nefnir þá að
það sé þekkt að fólk sem hefur verið
í erfiðleikum verði ástfangið af þeim
sem reynir að koma þeim til aðstoð-
ar og nefnir það „læknasyndróm."
„Það er ekkert sem útskýrir þetta
en ég veit að hann Guðmundur hef-
ur ekki verið að beita nokkurn mann
ofbeldi," segir Helga ákveðin.
Linda sem fékk bót sinna meina
í Byrginu segir þá í gamni að hún sé
hálf afbrýðisöm yfir því að á þeim
árum sem hún hafi þekkt Guðmund
hafi hann aldrei nokkurn tímann
sýnt henni nokkurn áhuga. Ásta
dóttir Guðmundar hefur þó svör
við því: „Þú ert bara ekki nógu sexí,"
segir hún og uppsker hlátur heimil-
isfólks fyrir vikið.
Blaðamaður furðar sig á því hve
auðvelt heimilisfólki reynist að ræða
um þessi mál og spyr hvernig á því •
standi. „Við mæðgurnar ákváðum
strax að við skyldum ekki fara í fel-
ur eða skammast okkar fyrir nokk-
urn skapaðan hlut, því það er ekk-
ert sem gefur okkur ástæðu til þess,"
segir Helga og Ásta bætir við að þeg-
ar faðir hennar hafi spurt hana um
líðan sína eftir að tilkynnt var um
efni Kompásþáttarins hafi hún sagt.
„Pabbi, heldur þú að ég skammist
mín fyrir eitthvað?"
Þykir„gripurinn" í myndskila-
boðunum væskilslegur
„Vinir okkar komu strax til okkar
eftir að fréttin á Stöð 2 var sýnd og
saman ákváðum við að hunsa þenn-
an þátt. Það var ótrúlegt að sama
kvöld og þátturinn var sýndur fór-
um við öll brosandi í háttinn. Við
segjum líka að við eigum bestu vini
í heimi," segir Helga.
„Það besta í þessu máli er að það
fari fram rannsókn. Ég hef beðið um
það í tengslum við þessa umfjöllun
en eins og Ólafur Helgi sýslumað-
ur á Selfossi hefur greint frá þá þyk-
ir ekki ástæða til að rannsaka neitt
í tengslum við mig enda liggur ekki
fyrir kæra eða nokkur skapaður
hlutur annað en það sem fram kem-
ur í Kompásþættinum," segir Guð-
mundur en hann heldur því fram
að myndskilaboðin, sem hann á að
hafa sent skjólstæðingi sínum og
meintum kynlífsfélaga, séu fölsuð.
Upptakan á andliti hans hafi verið
gerð einhvern tímann þegar hann
kom of seint á fund og fólk beið fyr-
ir utan, það sem hann hafi sagt hafi
verið eitthvað á þá leið: „Hættiði nú
þessari vitleysu."
„Svo þótti mér þetta ógurlega
væskilslegur gripur eitthvað sem
sýndur var á þessu myndskeiði, ég
veit að ég á ekkert í honum," segir
Guðmundur og viðstaddir hlæja.
„Hvað ertu með í laun?" spyr
blaðamaður, en í skýrslu um fjár-
mál Byrgisins er fjallað um að
fjármál Byrgisins og einkaneyslu
Guðmundar renni of mikið sam-
an. Guðmundur segir að hann
eigi von á að í næsta skattayfirliti
verði laun hans á mánuði á bilinu
240-270 þúsund krónur á mánuði.
Hann svarar svo ásökunum um að
í Byrginu sé verið að afeitra fólk án
tilskilinna leyfa á þá leið að það sé
byggt á misskilningi þar sem af-
eitrun hafi farið fram undir eftirliti
læknis á meðan Byrgið hafði aðset-
ur í Rockville. Afeitrun hafi aldrei
átt sér stað í Byrginu eftir að það
flutti.
„Við mæðgurnar ákváðum strax að við skyldum
ekki fara í felur eða skammast okkar fyrir nokk-
urn skapaðan hlut, því það er ekkert sem gefur
okkur ástæðu til þess"
„Kannski að maður ætti að
verða sér úti um handjárn"
„Hefur þú stundað BDSM?" spyr
blaðamaður. „Nei, en ég hef styrkt
SÍBS," svarar Guðmundur og enn er
hlegið í kring.
„Hvers vegna kannaðist þú við
listana sem þáttastjórnandi Komp-
áss sýndi þér? Hefði ekki verið eðli-
legt að þú spyrðir hvaða lista hann
væri að tala um heldur en að segja
að þeim hefði verið pfantað inn í
tölvuna hjá þér," spyr blaðamað-
ur þá. „Ég hef oft séð þessa lista,
þá bjó ég ekki til heldur koma þeir
frá BDSM-samtökunum. Þá hef ég
einfaldlega séð í tengslum við allt
það ólíka fólk sem hingað hefur
leitað," segir Guðmundur en upp-
runa listans hefur Geir Guðmunds-
son, stofnfélagi BDSM-samtakanna
staðfest.
r Framhaldá l IX
næstu síðu UJ
Gólflampar
á tilboði
■v
Burstað gyllt
Rafkaup
Ármúla 24 • S: 585 2800
Opið: 22 des. 09:00 - 22:00
23 des. 09:00 - 23:00
24 des. 09:00- 12:00
Burstað stál
IttsalMP
Antík