Freyr - 01.09.1974, Blaðsíða 17
Skjaldfönn í Nauteyrarhreppi.
byggingaframkvæmdum ásamt Landnámi
ríkisins. Er þessi vinna nú komin á loka-
stig og efnisáætlanir tilbúnar.
Ráðgert er að fá byggingameistara til að
taka að sér framkvæmdir og koma upp
vinnuflokkum í samstarfi við bændurna
sjálfa og með aðstoð þeirra.
Ræktunarsamböndin á Inn-Djúpssvæð-
inu hafa tekið að sér ræktunarfram-
kvæmdir og ennfremur að annast allan
gröft á grunnum fyrir nýjar byggingar.
Ræktunarsamböndin hafa þegar byrjað
umferðarvinnu á svæðinu. (20. maí 1974).
Byggingastofnun landbúnaðarins hefur
tekið að sér að hafa eftirlit með bygginga-
framkvæmdum og annast staðsetningu
nýrra bygginga.
Rætt hefur verið við Innkaupastofnun
ríkisins um að taka að sér alla efnisút-
vegun og annast greiðslur til vinnuflokka,
og hefur þessari málaleitan verið vel tekið,
enda verði útvegað nauðsynlegt fjármagn,
þar til stofnlán koma.
Ætla má, að byggingaframkvæmdir geti
hafist með fullum krafti um miðjan júní
1974.
Aðstöðumunur og skýringar á eðli hans.
í tillögum Inn-Djúpsnefndar segir svo orð-
rétt:
„Hér að framan eru talin upp atriði, sem
hafa áhrif á aðstöðumun, og sem til greina
kemur að jafna með beinum framlögum.
Þennan aðstöðumun þarf að rannsaka nán-
ar, samtímis og hafin er framkvæmd Inn-
Djúpsáætlunar, þar sem nefndinni hefur
ekki unnist tími til að kanna ýmis atriði,
er til mats gætu komið.
Lagt er til, að þessi aðstöðumunur verði
ákveðinn fyrir eitt ár í senn, og fyrir árið
F R E Y R
305