Freyr

Árgangur

Freyr - 15.08.1979, Blaðsíða 9

Freyr - 15.08.1979, Blaðsíða 9
Ræður og ávörp voru flutt. Steingrímur Hermannsson, landbúnaðarráðherra, Magnús B. Jónsson skólastjóri, Guðmundur Jónsson, fyrr- verandi skólastjóri. landbúnaðarnám og rannsóknirstefna í rétta átt. Atvinnuvegurinn rær nú andróður. Því þurfa bændur að svara með því að þjappasér betur saman, efla stéttarvitund sína, mennt- un og félagasamtök til baráttu fyrir stéttina. Það verður að gera lýðum Ijóst, að úr auð- lindum lands og hafs þiggjum við lífsfram- farir okkar. Þar er öflug búnaðarmenntun þungt lóð á vogarskál. Sú tíska ryður sér nú til rúms í þjóðfélaginu, að réttur hins sterka skuli njóta sín óhindrað. Það hefur á hinn bóginn verið aðalsmerki sveitanna að virða rétt lítilmagnans og efla samvinnu og samhjálp, einstaklingum og samfélaginu til hagsbóta. Megi svo verða áfram. Bænda- skólarnir hafa hér miklu hlutverki að gegna. Næstur talaði Steingrímur Hermannsson, landbúnaðarráðherra. Framsýnir menn stofnuðu þennan skóla og stjórnuðu honum, mælti ráðherra. Skammsýnir menn halda því hins vegar fram nú, að þekkingin og skól- arnir eigi þátt í offramleiðslu búvöru og hafi orsakað erfiðleika og vanda. Ekki er þessu svo farið. Hér mun einmitt þekkingin verðatil þess að leysa vandann, og er nú unnið að því af mörgum aðilum. Þingmenn verða hér að láta skynsemina ráða. Líklegt er, að við þurf- um að draga saman seglin, en sigla með gát. Við þurfum að gera búskapinn fjölbreyttari, og þar munu skólarnir hjálpa til. íslenskir bændur munu í framtíðinni verða hvattir til aðframleiðaallarþærafurðir, sem þeirgeta. Ráðherrann drap á nýju búfjárræktarlögin og 10 ára áætlun, sem nú er unnið að fyrir skólann. Hann kvað þess þörf að varðveita gömul verðmæti til gagns og ánægju fyrir samtíð og framtíð. Guðmundur Jónsson, skólastjóri, talaði næstur. Hann bar kveðju frá konu sinni, Ragnhildi Ólafsdóttur, sem gat ekki sótt af- mælishátíðina af heilsufarsástæðum. Hann rakti ýmsa þætti úr sögu skólans. Á þessum 90 árum hafa 2306 nemendur verið í Hvann- eyrarskóla, þar af voru 20, sem voru í al- mennu búnaðarnámi annars staðar (aðal- lega á Hólum), en voru í framhaldsnámi á Hvanneyri. Skólastjórar hafa verið 7, fastir kennarar um 50 og stundakennarar um 100. Fyrsti skólastjórinn, Sveinn Sveinsson, and- aðist áður en hann fengi brautskráð fyrstu FREYR 511

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.