Freyr

Árgangur

Freyr - 15.08.1979, Blaðsíða 32

Freyr - 15.08.1979, Blaðsíða 32
Meðaltölur frá 152 búreikningum 1978. Framleiðslukostnaður Kr. Áburður ................................. 1.065.585 Kjarnfóður .............................. 1.591.058 Útihús .................................... 514.248 Vélar ..................................... 983.673 Jörð ...................................... 402.604 Aðkeypt þjónusta .......................... 790.782 Launagreiðslur ............................ 586.015 Vextir, tryggingar og fl................... 959.953 Alls 6.893.918 Framleiðslutekjur .......................+ 12.173.459 Fjölskyldulaun og vextir af eigin fé .... 5.279.541 Vinnustundir fjölskyldu 4211 klst. Fjölskyldutekjur á vinnustund 1254 kr. Bústærð í ærgildum 608. Að jafnaði seldu bændur afurðir fyrir 12.173 þús. kr. en af því fara 6.894 þús. kr. í greiðslur fyrir áburð, kjarnfóður, þ. e. a. s. fram- leiðslukostnað annan en vinnu fjölskyldu og vexti af eigin fé, er nemur þá 5.280 þús. kr. eins og að ofan greinir. Samsvarar það 1254 kr. á klst. Nautgriparækt. Meðal framleiðslumagn mjólkur á býli var 51.545 lítrar, en var 47.040 I árið 1977. Árskýr voru 15,16 og meðalnyt því 3.400 I og er það 2% hærri meðalnyt en árið 1977, sem var 3.332 I. Innlagt nautakjöt var 923 kg á býli. Framleiðslutekjur á árskú voru 461.772 en breytilegur kostnaður 176.218 kr. og fram- legð því 285.554 kr. og er það 124% hækkun f. f. ári. 7 bændursýndu framlegð áárskú yfir 400 þúsund kr. en 10 undir 200 þúsund kr. Kjarnfóðurmagn á árskú var 1.020 kg og hafði minnkað um 74 kg en graskögglarvoru 121 kg og höfðu aukist um 44 kg. Sauðfjárrækt. Meðalinnlegg kindakjöts var 3.929 kg en var 3.826 kg árið 1977. Vetrarfóðraðar kindur voru 212 eða jafn margar og árið áður. Inn- lagðir voru 229 dilkar eða 1,08 dilkar eftir vetrarfóðraða kind. Meðalfallþungi var 14,68 kg og reiknað dilkakjöt eftir vetrarfóðraða kind 18,1 kg en var 18 kg árið áður. Reikn- aður kjötþungi eftir á (meðaltalin gemsa- lömb) var 22,19 kg en var 22,17 kg árið áður. Kjarnfóðurmagn á kind var20,3 kg og 5,3 kg graskögglar. Meðalframlegð á kind var 16.566 kr. en árið áður 8.822 kr. og er það 88% hækkun. Framleiðslutekjur á kind voru 22.623 kr. en breytilegur kostnaður 6.057 kr. 25 býli sýndu framlegð á kind yfir 20.000 kr. en 8 neðan við 10.000 kr. Afkoman sjaldan betri. Eftir þessum niðurstöðum að dæma hefur afkoma í landbúnaði sjaldan verið betri en á árinu 1978. Mjólkurframleiðslan jókst um 9.6% á bú- reikningabúunum og sauðfjárinnlegg um 2.7%. Áburðarnotkun jókst um 5,82 og kjarnfóðurnotkun um 2% en búin stækkuðu um 5%. Árið 1977 var veltan um 7.089 þúsund kr. en árið 1978 um 12.173 þúsund kr. og nemur sú hækkun um 72%, en fram- leiðslukostnaður hækkaði um 50%. Áburður og kjarnfóður eru stærstu kcstnaðarliðir við búreksturinnog þeir liðir hækkuðu minna eða um 37%. Af framleiðslutekjum áttu bændur 43,3% eftir fyrir vinnu fjölskyldunnar og vexti af eigin fé. Hlutfall útgjalda og tekna í búrekstri hefur ekki orðið hagstæðara síðan árið 1967 eða eftir að búreikningar voru gerðir upp á þennan hátt. Árið 1965 var hagstætt bændum og ekki er ólíklegtað árið 1978 sé nokkuð sambærilegt, eða jafnvel enn betra. Gin- og klaufaveiki í Frakklandi. Hundruðum nautgripa hefur verið slátrað og stórgripamörkuðum í Caenborg í Norður- Frakklandi og vissum hlutum Normandí hef- ur verið lokað vegna gin- og klaufaveiki. Yfirvöld hafa hneppt þessa staði í stranga sóttkví og hefur það alvarleg áhrif á allan búrekstur á þeim slóðum. Árið 1974 herjaði gin- og klaufaveiki í Bretagne í Frakklandi. 534 FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.